Tæknirisar undirbúa sókn á lánamarkað

Bankarnir á Wall Street – sem fyrir aðeins áratug voru stærstu fyrirtæki Banda­ríkjanna þegar horft er til markaðs­virðis – eru nú smá peð í saman­burði við stærstu tækni­fyrirtækin. Þau nýta sér nú bankanna til að útfæra nýja kynslóð fjármála­þjónustu.

Bandaríski fjár­festinga­bankinn Goldman Sachs er samstarfs­aðili Amazon, í undir­búningi tækni- og smásölu­risans fyrir innreið á fyrirtækja­lánamarkað.

Amazon hefur nú þegar stigið stór skref inn á neytenda­lánamarkað í Banda­ríkjunum, og var stærsta skrifið stigið fyrir tveimur árum þegar fyrir­tækið setti Amazon Credit Card í loftið, í samstarfi við JP Morgan Chase.

Frá þeim tíma hefur fyrir­tækið smám saman útvíkkað þjónustu sína á sviði neytenda­lána, t.d. með rýmkun á heimild til notkunar á kortinu og dýpri afsláttar­þjónustu. Föst heimild í upphafi á Amazon greiðslu­kortinu eru 1.500 Bandaríkja­dalir, en hægt er að hækka hana nú í skrefum. Fastur afláttur fyrir Amazon meðlimi (Prime) er 5 prósent á öllum viðskiptum í gegnum Amazon og Whole Foods, smásölu­keðju fyrir­tækisins, og svo er einnig 1 prósent afsláttur á öllum öðrum viðskiptum.

En af hverju er Amazon að vinna sig hratt inn í fjármála­þjónustu?

Fyrir­tækið er með einstaka yfirsýn yfir neyslu­hegðun fólks um allan heim, og á auðveldara með að greina áhættu hjá einstökum viðskiptum – t.d. þegar kemur að ákvörðunum um veita fjármála­þjónustu – heldur en hefð­bundnir og rótgrónir viðskipta­bankar. Í ljósi stöðu sinnar sem stærsta markaðs­svæði heims á sviði netviðskipta, ásaman Alibaba í Kína, þá gefur fyrir­tækið byggt upp sitt eigið gæða- og þjónustu kerfi (sambærilegu við Credit Score kerfið í Banda­ríkjunum) og þannig byggt upp áreiðanlegra kerfi en keppinautar, en á sama tíma veitt ódýrari þjónustu.

Financial Times greindi frá því í morgun, að Amazon væri að undirbúa sókn á lána­markað fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Samkvæmt umfjölluninni, er meðal annars horft til þess að Amazon geti lánað fyrir tiltekinni starfsemi, í samstarfi við Goldman Sachs, og einnig fyrir tryggingum og fleiru, sem smærri fyrirtæki eru með sem hluta af föstum kostnaði.

Ekki er nema um áratugur síðan, að stærstu bankarnir á Wall Street - þar á meðal Goldman Sachs - voru stærstu fyrir­tækin í bandarísku efnahags­lífi, þegar horft er til markaðs­virðis. Með miklum og hröðum vexti tækni­fyrir­tækjanna í Banda­ríkjunum – einkum Amazon, Microsoft, Alphabet (Google), og Apple – hafa orðið miklar breytingar á markaði. Tækni­risarnir eru nú í forystu­sveit í ýmsum geirum.

Markaðs­virði Amazon er nú um 1.100 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 137 þúsund milljörðum króna, en til saman­burðar er markaðs­virði Goldman sags um 90 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 11.200 milljörðum króna.

Þegar jóla­sölu­tölurnar voru kunn­gjörðar í síðustu viku, í uppgjöri Amazon, hækkaði félagið um sem nam öllu markaðs­virði Goldman Sachs, á einum degi.

Búist er við því, að stærstu bankarnir á Wall Street muni í vaxandi mæli, vinna með tækni­risunum að því að bjóða upp á næstu kynslóð fjármála­þjónustu. Goldman Sachs hefur nú þegar stigið stórt skref með Apple Credit Card samstarfinu, en hyggur nú á lána­markað með Amazon, eins og áður segir.

Amazon hefur nú þegar fengið banka­leyfi í Evrópu, líkt og fleiri tækni­fyrirtæki, þar á meðal Facebook. Búist er við því að tækni­fyrirtækin muni smám saman sýna meira á spilin, um hvernig fjármála­þjónusta þeirra verður útfærð í Evrópu, á næstu misserum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár