Bankasýslumenn ekki orðnir afhuga tilboðsfyrirkomulaginu

Forsvars­menn Banka­sýslunnar sátu fyrir svörum í stjórn­skipunar- og eftirlits­nefnd í morgun og voru þar spurðir hvort þeir myndu mæla með tilboðs­fyrir­komulagi í framtíðar banka­sölum ríkisins.

Forsvarsmenn Bankasýslunnar á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í morgun, ásamt tveimur lögfræðingum frá Logos.
For­svars­menn Banka­sýsl­unnar á fundi stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar í morgun, ásamt tveimur lög­fræð­ingum frá Logos. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Jón Gunnar Jónsson forstjóri Banka­sýslu ríkisins sagði á fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar í morgun að í hans huga væri seinna útboð ríkisins á hlutum í Íslands­banka í mars síðastliðnum „farsæ­lasta hlutafjár­útboð Íslands­sögunnar“.

„Við getum aldrei litið framhjá því þegar við ákveðum næstu sölu á eignar­hlutum ríkisins,“ sagði forstjórinn, í kjölfar þess að Orri Páll Jóhannsson þingmaður Vinstri grænna hafði spurt hann og Lárus Blöndal stjórnar­formann Banka­sýslunnar hvort að þeir myndu mæla með því, eftir þá gagnrýni sem fram hefur komið, að ríkið notaðist aftur við tilboðs­fyrir­komulag við sölu á frekari eignar­hlut ríkisins í Íslands­banka eða öðrum fjármála­stofnunum í fram­tíðinni.

Lárus sagði í svari sínu að í aðdrag­anda útboðsins hefði verið fjallað um ýmsar sölu­aðferðir og gerð grein fyrir þeim og tilboðs­fyrir­komulaginu, og því að sú aðferð væri ekki gallalaus. Þetta væri hins vegar lang­vinsælasta sölu­aðferðin, og hefði verið mikið notuð af ríkis­sjóðum, eins og oft hefði komið fram.

„Í sjálfu sér snýst þetta ekki um það að þessi aðferð sé ótæk. Hún hefur ákveðna kosti, mikla kosti, hún t.d. gerði það að verkum að við gátum boðið þetta út. Við hefðum ekki getað farið út í almennt útboð sem hefði tekið marga daga miðað við þá áhættu sem hefði þá skapast á markaðnum miðað við að það er stríð í miðri Evrópu og allt annað sem er að gerast í efnahags­málum heimsins. Ég tel að þetta hafi verið eini valkosturinn á þessum tíma­punkti,“ sagði Lárus.

Hann sagði að ef taka ætti ákvörðun um nýtt útboð þá verði að horfa til þess hvað megi læra af þessu og hvaða gallar voru við útboðið í mars og hvort þeir hafi verið það stórir að menn vilji ekki fara þessa leið. Hann sagði að það væru einnig stórir og miklir vankantar á því að fara í almennt útboð, sérstak­lega þegar tímar væru eins óvissir og þeir eru núna, en að þetta væri bara „samanburðar­fræði“. Horfa þyrfti til þess hvaða árangri menn vildu ná.

Breska ríkið hafi tvívegis þurft að stíga frá almennu útboði

Jón Gunnar bætti því við að í minnis­blaði Banka­sýslunnar í janúar hefðu verið reifaðar fjórar aðferðir við sölu, auk almenns útboðs og tilboðs­fyrir­komulagsins hafi verið fjallað um svokallaða miðlunar­áætlun þar sem bréf væru seld í smá skömmtum, sem ætti betur við ef ríkið ætti orðið undir 20 prósent í bankanum, og svo útgáfu skiptanlegra skulda­bréfa.

„Þetta eru nákvæmlega þær sömu aðferðir og t.d. systur­stofnun okkar í Bretlandi, UKFI, mat á sínum tíma þegar breska ríkið var að selja hlut í Lloyd’s bankanum. Þeir þurftu tvisvar að hverfa frá útboði frá almennings út af markaðs­aðstæðum. Þannig að kostir þessa fyrir­komulag eru gríðar­lega miklir sérstak­lega vegna þess að með þessum hætti náum við hæsta verði og lágmarka verðmætinu,“ sagði Jón Gunnar.

Hann bætti því við að hann teldi að Bjarni Benediktsson fjármála­ráðherra hefði gert nefndinni grein fyrir þessu með skýrum hætti er hann kom fyrir nefndina nýlega, að það gæti verið fórnar­kostnaður falinn í því að tryggja mismun­andi þætti í útboði, eins og hæsta verð eða gagnsæi.

Í máli Bjarna á þeim fundi kom fram að hann teldi útilokað að sú ríkis­stjórn sem nú situr myndi notast við tilboðs­fyrir­komulagið við frekari sölu á eignar­hlutum ríkisins í bankanum, vegna galla sem því fylgi, „ekki síst í svona smáu sam­fé­lagi eins og við búum í“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár