Við frekari sölu Íslandsbanka þurfi að meta hvað jafnræði og gagnsæi megi kosta

Fjármála- og efnahags­ráðherra sat fyrir svörum á fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar þingsins í morgun. Hann sagðist telja útilokað að ríkis­stjórnin notaðist aftur við tilboðs­fyrir­komulag við sölu á hlut í Íslands­banka.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra kom fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd í dag. Mynd úr safni.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kom fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd í dag. Mynd úr safni. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahags­ráðherra segir að við áfram­haldandi sölu á Íslands­banka þurfi hann, ríkis­stjórnin og eftir atvikum Alþingi „að gera það upp við sig hvers virði það er að leggja aukna áherslu á gagnsæi og jafnræði og hvort það sé svo mikils virði að hægt sé að sætta sig við eitthvað lægra verð þegar fram í sækir“.

Ráðherra vék að því að lengri undir­búnings­tími sölu með almennu útboði á markaði gæti haft ófyrirséð áhrif á verð bréfa og leitt til þess að ríkið fengið minna en ella fyrir eftir­standandi hlut sinn í bankanum.

Hann sagðist telja útilokað að sú ríkis­stjórn sem nú situr muni notast við tilboðs­fyrir­komulag eins og notað var við seinna útboðið í Íslands­banka fyrr á þessu ári, vegna galla sem því fylgi, „ekki síst í svona smáu samfélagi eins og við búum í“.

Jafnræðið „veikur blettur“ á útboðinu

Í því samhengi vísaði Bjarni, sem sat fyrir svörum á fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar Alþingis í morgun, til þess að ekki hefði tekist að tryggja fullt jafnræði. Kallaði hann það „veikan blett“ á útboðinu og að tryggja hefði mátt betur að allir sölu­ráðgjafar væru að beita sömu aðferða­fræði til að hlaupa áhuga­sömum kaupendum að ferlinu.

Þannig hafi umræða verið á þann veg að sumir hafi verið hvattir til að taka þátt, á meðan aðrir hafi þurft að sýna frumkvæði. „Þetta truflar mann aðeins þetta með jafnræðið,“ sagði Bjarni, sem þó sagði tilboðs­fyrir­komulagið hafa marga augljósa kosti. Með því hefði tekist að selja stóran hlut í bankanum á verði sem hann telji mjög ásættanlegt.

Bjarni var spurður um það hvort stefnt væri að frekari sölu á hlut ríkisins í Íslands­banka á næsta ári og svaraði því til að hann vildi ekki svara til um það, þó að hans vilji stæði til þess að svo yrði. Einnig sagði hann það alrangt að forsendur fjárlaga ársins 2023 væru í uppnámi ef sala á eignar­hlutnum færi ekki fram þá. Eign ríkisins í Íslands­banka myndi ekki hverfa, þrátt fyrir að salan færi ekki fram á næsta ári og skulda­staða ríkisins væri mun betri en fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir.

Spurður um það hvaða eining myndi taka við hlutverki Banka­sýslu ríkisins, sem ríkis­stjórnin hefur ákveðið að leggja niður, sagði Bjarni að hann sæi fyrir sér að eignar­hlutir ríkisins í fjármála­fyrirtækjum myndu renna inn í stofnun sem héldi á öðrum eignar­hlutum ríkisins, en ræddi þessar hugmyndir þó ekki í smáatriðum.

Tekur ekki undir gagnrýni Bankasýslu á Ríkisendurskoðun

Bjarni var einnig spurður hvernig hann horfði á þau ummæli sem forsvars­menn Banka­sýslunnar hefðu haft um Ríkis­endurskoðun frá því að skýrslan kom út, sem Þórunn Svein­bjarnar­dóttir formaður nefndarinnar sagði að hefðu slegið sig illa.

Bjarni sagði að þarna vísaði þing­maðurinn væntanlega til ummæla sem lýstu einhverjum efa um að Ríkis­endurskoðun hefði verið fullbær til að tjá sig um öll þau atriði sem voru til umfjöllunar í skýrslunni.

„Við getum ekki tekið undir þetta,“ sagði Bjarni og sagði ráðuneytið hafa verið í mjög fagmannlegum samskiptum við Ríkis­endurskoðun og að það teldi enga ástæðu til að draga í efa hæfni eða færni Ríkis­endur­skoðunar til að tjá sig um efni málsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár