Greiðslur frá Halldóri gerðu Reyni vanhæfan til að fjalla um Róbert

Reynir Traustason ritstjóri Mannlífs er í tveimur aðskildum kærumálum talinn hafa gerst brotlegur við siða­reglur Blaðamanna­félagsins, vegna skrifa sem varða málefni Róberts Wessman.

Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs.
Reynir Trausta­son, rit­stjóri Mannlífs. Mynd: Bára Huld Beck

Siðanefnd Blaðamanna­félags Íslands komst undir lok maí að þeirri niður­stöðu að Reynir Traustason ritstjóri Mannlífs hafi gerst brotlegur við siða­reglur Blaðamanna­félags Íslands, og að brot hans, í tveimur kærumálum, teldust alvarleg.

Athafna­maðurinn Róbert Wessman er kærandi í báðum málunum sem lögð voru fyrir siða­nefndina, en umkvartanirnar varða skrif Reynis um Róbert, sem Róbert staðhæfir að séu röng og kvartar yfir að fáist ekki leiðrétt.

Ástæðan fyrir því að Reynir telst hafa brotið gegn siða­reglum Blaðamanna­félagsins er sú að hann hefur þegið greiðslur frá Halldóri Krist­mannssyni, að eigin sögn vegna fyrir­hugaðrar bóka­útgáfu um Róbert Wessman.

Metur siða­nefndin það sem svo að hann hafi með móttöku fjármuna frá Halldóri „orðið vanhæfur til að fjalla um málefni kæranda í frétta­miðli með þeim hætti sem hin kærða umfjöllun er fram sett“ enda hafi honum borið samkvæmt 5. grein siða­reglna Blaðamanna­félagsins að forðast hagsmuna­árekstra.

„Með hinum kærðu skrifum sínum hefur kærði, Reynir Traustason, því ekki farið að þeirri grundvallar­reglu að blaða­manni beri fyrst og síðast að gæta að hagsmunum lesenda. Siðanefnd telur að hann hafi fært hagsmuni Halldórs Krist­mannssonar framar og hafi því brotið gegn 5. gr. siða­reglna,“ segir í úrskurði nefndarinnar.

Halldór er fyrr­verandi samstarfs­maður Róberts, en hefur staðið í miklum illdeilum við hann á opinberum vettvangi undan­farin misseri, sem meðal annars var fjallað um í frétta­skýringum í Kjarnanum síðasta vor.

Í kæru Róberts til siða­nefndar var því haldið fram að Halldór hafi greitt Mannlífi 30 milljónir króna „fyrir herferð gegn sér“ á síðasta ári en í úrskurði siða­nefndar segir að Reynir hafi komið því á framfæri við nefndina að fjárhæðin sem Halldór hafi greitt Reyni vegna útgáfu bókar sem hann er að skrifa um Róbert „sé langt frá því sem kærandi fullyrðir“.

Trausti Hafsteinsson, frétta­stjóri Mannlífs, var einnig kærður í öðru málinu þar sem hann skrifaði eina af fimm umfjöllunum sem Róbert tiltók í annarri af tveimur kærum sínum. Mat siða­nefndarinnar var að hann teldist ekki hafa brotið siða­reglur þar sem af gögnum málsins fengist ekki séð að hann hefði þegið greiðslur frá Halldóri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár