Mynd: Alvogen

„Andsetnar strategíur“ í stríðinu innan Alvogen

Frá lokum mars­mán­aðar hafa skeyta­send­ingar gengið fram og til baka á milli fyrr­ver­andi sam­starfs­manna í fram­kvæmda­stjórn lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen. Ásakanir eru alvar­legar og inni­halda ávirð­ingar um ofbeldi, hót­anir, trún­að­ar­brot og græðgi.

Þann 6. októ­ber 2020 sendi blaða­maður sem sagð­ist vinna í lausa­mennsku fyrir miðla á borð við FOX, Dow Jones og ýmsa aðra miðla tölvu­póst til Eef Schimmelpennink, fyrr­ver­andi for­stjóra Alvotech.

Í póst­inum sagð­ist blaða­mað­ur­inn vera að vinna að frétt um Alvogen og for­stjóra þess fyr­ir­tækis, Róbert Wessman. Meg­in­þemað var að stjórn­ar­tíð Róberts væri „umdeild“ og að hegðun hans gagn­vart öðrum stjórn­endum og starfs­mönnum væri athug­un­ar­verð. Blaða­mað­ur­inn vildi fá að ræða við Scimmelpennink, sem nú stýrir lyfja­fyr­ir­tæk­inu Pfenex, um reynslu hans á meðan að hann starf­aði hjá Alvotech, syst­ur­fyr­ir­tæki Alvogen. Sam­bæri­legir póstar voru sendir á ýmsa aðra sem tengj­ast Alvogen/Alvotech, meðal ann­ars stjórn­ar­menn.

Róbert velkt­ist ekki í vafa um hver stæði á bak­við fyr­ir­spurn­ina. Í tölvu­pósti sem hann sendi nán­ustu sam­starfs­mönnum sínum skrif­aði hann: „Björgólfur er búinn að borga þessum til að skrifa um mig[...]ljóst að Björgólfur og hans stm hafa engin vanda­mál að ljúga upp á menn í fjöl­miðlum frekar en rétt­ar­sölum.“ Skamm­stöf­unin „stm“ stendur að öllum lík­indum fyrir „starfs­menn“ í þessu til­felli.

Sá Björgólfur sem þarna er rætt um er Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, rík­asti Íslend­ing­ur­inn og fyrr­ver­andi sam­starfs­maður Róberts frá þeim tíma þegar sá síð­ar­nefndi var for­stjóri Actavis en sá fyrr­nefndi helsti eig­andi þess fyr­ir­tækis. Það slett­ist illa upp á vin­skap­inn hjá þeim árið 2007. Björgólfur Thor seg­ist hafa rekið Róbert en Róbert seg­ist hafa hætt út af Björgólfi Thor. Síðan þá hafa þeir rif­ist, og tek­ist á, með oft barna­legum hætti. Þær orr­ustur hafa verið háðar í rétt­ar­sölum, með því að dæla sam­an­lagt millj­örðum króna í fjöl­miðla­fyr­ir­tæki að ein­hverju leyti með það fyrir augum að koma höggi á hinn og með allskyns opin­berum skeyta­send­ingum sem óvana­legt er að sjá millj­arða­mær­ing í Banda­ríkja­dölum talið og for­stjóra alþjóð­legs lyfja­fyr­ir­tækis stunda.

Kjarninn hafði sam­band við umræddan blaða­mann. Ekkert bendir til ann­ars en að hann hafi verið að vinna að frétt sem hann ætl­aði sér að fá birta á við­ur­kenndum fjöl­miðli. Hann hefur engin sýni­leg tengsl við Björgólf Thor Björg­ólfs­son.

Af birt­ingu frétt­ar­innar hefur þó ekki orðið, meðal ann­ars vegna þess að þáver­andi sam­skipta­stjóri Alvogen, með hjálp lög­manns- og almanna­tengsla­stofa, hót­aði honum lög­sókn ef af yrði.

„Hef enga trú á að Bingi sé í þessu….Hann þekkir enga“

Á meðal þeirra sem Róbert sendi póst­inn á innan Alvogen var Árni Harð­ar­son, aðstoð­ar­for­stjóri Alvogen, og sam­skipta­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, Halldór Krist­manns­son. Hann hafði starfað að mestu við hlið Róberts í 18 ár, allt frá Actavis-árunum, og á milli þeirra hafði líka verið per­sónu­leg vin­átta.

Halldór sendi Róberti og Árna tölvu­póst 7. októ­ber 2020 þar sem hann lagði til að reynt yrði að taka sím­tal við blaða­mann­inn í gegnum þriðja aðila, að þar yrði gefið í skyn að mögu­leiki væri á að fá hjá við­kom­andi upp­lýs­ingar og að sím­talið yrði tekið upp. Til­gang­ur­inn væri að kom­ast að því hvað blaða­mað­ur­inn raun­veru­lega vissi. „Hvaðan kemur þetta – ef búið að tala við Mark eða ef hann hefur sms eins og þú hélst Árni þá vitum við að Novator er á bak­við þetta. Hef enga trú á að Bingi sé í þessu….Hann þekkir enga“.

Halldór Kristmannsson starfaði náið með Róberti Wessman í 18 ár. Hér sjást þeir saman árið 2004 þegar nafni Pharmaco var breytt í Actavis.
Halldór Krist­manns­son starf­aði náið með Róberti Wessman í 18 ár. Hér sjást þeir saman árið 2004 þegar nafni Pharmaco var breytt í Actavis.

„Bingi“, sem Halldór hafði enga trú á að stæði á bak­við málið er fjöl­miðla­mað­ur­inn Björn Ingi Hrafns­son. Sá Mark sem þarna er minnst á er Mark Keatley, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri Actavis, og sms-in eru nú orðin vel þekkt á Íslandi, eftir að hafa verið birt í fjöl­miðlum í síð­asta mán­uði. Þau sendi Róbert Wessman á Keatley og Claudio Albrecht, fyrr­ver­andi for­stjóra Actavis, eftir að sá fyrr­nefndi hafði borið vitni í skaða­bóta­máli sem Björgólfur Thor hafði höfðað á hendur Róberti, sem mis­lík­aði mjög vitn­is­burð­ur­inn. Smá­skila­boðin sem hann sendi á menn­ina tvo urðu á end­anum 33 tals­ins og í þeim hót­aði hann þeim meðal ann­ars dauða. Á meðal skila­boða sem Keatley fékk var: „Halló skít­hæll ég mun rústa þér og fjöl­skyldu þinni“ og „Ég mun drepa þig“. Albrecht fékk meðal ann­ars sent: „Bott­om­lænið er að þú ert dauður ég lofa“.

Andsetin strategía

En þarna, í októ­ber í fyrra, höfðu þessi skila­boð ekki komið fyrir sjónir almenn­ings. Örfáir höfðu séð þau, þótt stærri hópur hefði vit­neskju um til­veru þeirra. Á meðal þeirra sem vissu af skila­boð­unum voru stjórn­ar­menn í Alvogen. Þeim hafði verið greint frá þeim strax eftir að þau voru send 2016 og Róbert hafði beðið alla hlut­að­eig­andi, jafnt þá sem fengu skila­boðin og stjórn­ar­menn, afsök­unar á fram­ferði sínu. Skoðun fór fram á fram­ferð­inu á vett­vangi stjórnar á þeim tíma. Og þeir Keatley og Albrecht höfðu sam­þykkt að gleyma mál­inu.

Að kvöldi þriðju­dags­ins 13. októ­ber var málið enn á dag­skrá. Ekkert hafði birst eftir blaða­mann­inn og stjórn­endur Alvogen voru að velta fyrir sér næstu skrefum. Halldór sendi póst á Árna og Róbert þar sem hann reyndi „að setja mig inn í svona and­setna stra­tegíu þá myndi þetta vinn­ast ca svona:

A. Blaða­maður fær greitt fyrir að þyrla ryki, hringja út og suður og sjá hvað hann finnur. Fær gögn og upp­lýs­ingar sem við vitum ekki ennþá hvers eðlis eru og verk­efnið er að skrifa meið­andi grein um RW og Alvogen/Alvotech.

B. Greinin birt­ist á plat­formi eins og hann hefur skrifað á sem hefur engan trú­verð­ug­leika og lít­inn lestur.

C. Hann deilir á Twitter hjá sér og vinir og vanda­menn deila og má alveg ímynda sér nokkur hund­ruð manns að deila og gefa comment en allt ein­hverjir apa­k­ettir.

D. En svo munu þeir mögu­lega senda þessa frétt á stjórn­ar­menn, partners og aðra til að skaða ímynd RW og þau verk­efni sem við erum að vinna í.

a. Hér mæli ég með því að um leið og greinin birt­ist látum við ber­ast boð á nokkra vel valda staði að láta okkur vita osfrv.

E. Við­kom­andi sendir þetta svo á haug af blaða­mönnum og eng­inn pikkar þetta upp – nema það sé ein­her alvöru source í þessu eða gögn sem ekki hafa sést áður osfrv.

Það er ýmist­legt sem við getum gert til að und­ir­búa okkur og best að byrja á morgun. Possum samt að gera þetta allt yfir­vegað og ekki láta neinn heyra að þetta gæti verið BTB osfrv.....höldum því öllu bara fyrir okkur í bili amk því mark­miðið með þessu er vænt­an­lega að skoða process og koma okkur úr jafn­vægi og við látum það ekki ger­ast.“

Halldór hittir Björgólf Thor

Um mán­uði síðar, í nóv­em­ber 2020, fór Halldór Krist­manns­son á fund Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar. Sá fundur var hluti af veg­ferð Halldórs sem í fólst að setja sig í sam­band við alla meinta óvild­ar­menn Róberts Wessman, sem Róbert hafði borið þungum sökum og vildi að sögn Halldórs koma höggi á.

Björgólfur Thor Björgólfsson og Róbert Wessman hafa verið ósáttir frá því fyrir hrun.
Björgólfur Thor Björg­ólfs­son og Róbert Wessman hafa verið ósáttir frá því fyrir hrun.

Eitthvað hafði gerst í milli­tíð­inni, frá byrjun októ­ber og fram í nóv­em­ber, sem gerði það að verkum að Halldór taldi sig þurfa að eiga slíka fundi. Sjálfur hefur Halldór síðar sagt, í yfir­lýs­ingu sem hann sendi á fjöl­miðla 29. mars 2021, að það hafi mynd­ast alvar­legur ágrein­ingur milli hans og Róberts í sept­em­ber 2020 „þegar Róbert bar hátt­setta emb­ætt­is­menn á Íslandi, alþjóð­legan fjár­festi og blaða­mann þungum sökum. Í tugum tölvu­pósta og texta­skila­boða Róberts eru umræddir óvild­ar­menn bornir þungum sökum, sem ég tel að hafi í senn verið algjör­lega ósannar og sví­virði­legar.“

Síðar hefur verið upp­lýst um að emb­ætt­is­menn­irnir sem um ræðir eru Haraldur Johann­es­sen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, og Páll Winkel, fang­els­is­mála­stjóri. Alþjóð­legi fjár­festir­inn er Björgólfur Thor en ekki hafa feng­ist óyggj­andi upp­lýs­ingar um hver blaða­mað­ur­inn sé, en fyrir liggur stað­fest­ing um að hann er íslenskur og starfi á íslenskum fjöl­miðli.

Einn þeirra sem Róbert Wessman á að hafa hafa borið þungum sökum er Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri.
Einn þeirra sem Róbert Wessman á að hafa hafa borið þungum sökum er Haraldur Johann­es­sen, fyrr­ver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri.

Í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér 7. apríl sagð­ist Halldór hafa hitt Björgólf Thor til að spyrja hann um „ósæmi­lega hegðun Róberts, þegar hann var for­stjóri Actavis. Hann hafi stað­fest við mig ákveðna atburða­rás í ágúst 2008, sem ég taldi mik­il­vægt að upp­lýsa um. Á þessum tíma hafi Róbert hringt í Sigurð Óla Ólafsson, aðstoð­ar­for­stjóra Actavis og gert til­raun til að segja honum upp störfum undir áhrifum áfengis. Ég stað­festi við nefnd­ina að Björgólfur Thor hafi umsvifa­laust rekið Róbert frá Actavis fyrir þessa ósæmi­legu hegðun. Ég taldi þessar upp­lýs­ingar mik­il­vægar fyrir rann­sókn máls­ins og sýni að ósæmi­leg hegðun Róberts nái yfir að minnsta kosti 12 ára tíma­bil. Björgólfur Thor virð­ist því vera eini mað­ur­inn sem hafi sýnt kjark til að stöðva ósæmi­lega hegðun Róberts“.

Í veikindaleyfi

Þann 16. des­em­ber 2020 fór Halldór Krist­manns­son svo í veik­inda­leyfi um óákveð­inn tíma frá störfum hjá Alvogen. Í lækn­is­vott­orði sem fylgdi með tölvu­pósti sem Halldór sendi til yfir­manna voru ekki gefnar nán­ari skýr­ingar á ástæðum þess að þörf væri á slíku leyfi. Í stefnu Alvogen á hendur Halldóri, sem birt var honum nýverið fyrir utan lík­ams­rækt­ar­stöð­ina World Class í Kópavogi, kemur þó fram að hann hafi upp­lýst í tölvu­póst­inum að hann hefði höf­uð­kúpu­brotnað í febr­úar 2020 og að það hafi haft heilsu­fars­legar afleið­ingar.

Í stefn­unni segir að næsta dag, 17. des­em­ber, hafi Halldór farið með tveimur und­ir­mönnum sínum út að borða á veit­inga­stað í Reykja­vík. „Yfir kvöld­matnum fór stefndi að bera upp ýmsar sakir á for­stjóra stefn­anda og stjórn­un­ar­hætti hans.“

Þar segir enn fremur að sem lyk­il­starfs­maður hjá Alvogen í meira en ára­tug hafi Halldór haft „aðgang að ýmsum við­kvæmum trún­að­ar­upp­lýs­ingum um bæði fjár­hags­mál­efni og önnur innri mál stefn­anda [Alvogen]“.

Fjölmiðlaumsvifin

Róbert Wessman hafði tekið þátt í fjár­mögnun á fjöl­miðla­rekstri á Íslandi á bak­við tjöldin árum saman. Sú fjár­mögnun hófst þegar félag í hans eigu ákvað að leigja Press­unni, net­fjöl­miðli undir stjórn áður­nefnds Björns Inga Hrafns­sonar, skrif­stofur í Turninum í Kópavogi skömmu eftir banka­hrunið. Við­mæl­endur Kjarnans sem þekkja til segja að leigu­greiðslur hafi reglu­lega ekki skilað sér og þeirri skuld hafi síðar verið breytt í hlutafé.

Á næstu árum, sér­stak­lega á milli 2014 og 2017, tók Róbert þátt í fjár­mögnun á sístækk­andi fjöl­miðla­veldi Björns Inga. Eftir að það veldi hrundi sátu þeir eftir með tíma­rita­út­gáf­una Birting og ákváðu að hefja útgáfu á frí­blað­inu Mannlífi, sem reynd­ist mjög kostn­að­ar­samt.

Alls telja við­mæl­endur Kjarnans að kostn­aður Róberts og sam­starfs­manna hans vegna fjöl­miðla­þátt­töku þeirra síð­ast­lið­inn rúma ára­tug nemi nálægt millj­arði króna.

Þessu ævin­týri lauk í lok júní 2020 með því að útistand­andi rimla­gjöld voru hreinsuð upp og fram­kvæmda­stjóri Birtings tók yfir fyr­ir­tækið án greiðslu. Samhliða var gerður sam­starfs­s­ann­ingur um rekstur vef­svæð­is­ins Mannlífs.is, sem þá var í rit­stjórn Reynis Trausta­sonar, sem yrði í eigu og umsjón Halldórs Krist­manns­sonar.

Í stefnu Alvogen á hendur Halldóri er til­greint að dag­anna 16. til 19. jan­úar 2021 hafi birst nokkrar fréttir um Róbert Wessman á Mannlíf.is sem að mati lög­manns fyr­ir­tæk­is­ins báru flestar það með sér „að verið væri að reyna að kasta rýrð á per­sónu­legt mann­orð for­stjóra stefn­anda og stuðla að nei­kvæðri ímynd hans, með til­heyr­andi skað­legum áhrifum“.

Umræddar fréttir fjöll­uðu um að Róbert hefði fjár­magnað mála­rekstur fyrr­ver­andi hlut­hafa Lands­banka Íslands gegn Björgólfi Thor. Kjarninn hafði opin­berað í meg­in­at­riðum sama mál í frétta­skýr­ingu í októ­ber 2015.

Bréf sent til stjórnar

Daginn eftir að síð­asta fréttin í þess­ari seríu Mannlífs birt­ist, 20. jan­úar 2021, sendi Halldór fjögur bréf í gegnum lög­menn sína í Bret­landi og Banda­ríkj­unum til stjórn­ar­manna móð­ur­fé­lags Alvogen, stjórn­ar­manna Alvotech, stjórn­ar­manna í Lotus Pharmaceuticals sem teng­ist sam­stæð­unni og á Róbert Wessman sjálfan.

Í einu bréf­inu, sem Kjarninn hefur undir höndum, eru settar fram alvar­legar ásak­anir á hendur Róberti. Hann er sagður hafa orðið upp­vís að morð­hót­un­um, lík­ams­árásum, sví­virði­legum ásök­unum og æru­meið­ingum í garð meintra óvild­ar­manna. Þá hafi Róbert lagt á ráðin um rógs­her­ferðir í fjöl­miðlum gegn ýmsu fólki sem hann hafi borið kala til. Þar á meðal hafi verið alþjóð­legur fjár­festir, tveir emb­ætt­is­menn og blaða­maður. Sjálfur segir Hall­dór að hann hafi verið „kýldur kald­ur“ í vitna við­ur­vist.

Í bréf­inu sem stílað er á Róbert sjálfan, er fjallað um per­sónu­legar skuld­bind­ingar Róberts við Halldór. Þar er farið fram á að Róbert segi af sér sem for­stjóri Alvogen og að Halldóri verði gert kleift að snúa aftur í sitt starf hjá fyr­ir­tæk­inu. Auk þess segir að Halldór búist við því að Róbert geri honum umtals­vert til­boð um fjár­hags­lega greiðslu vegna þess skaða sem Halldór taldi sig hafa orðið fyrir. Engin upp­hæð er þó nefnd í því sam­bandi.

Halldór hefur ætið haldið því fram að hann hafi geri engar fjár­hags­legar kröfur á hendur Alvogen eða Alvotech. Hann hafi þó áskilið sér rétt til að sækja bætur til Róberts per­sónu­lega.

Ekkert að sjá hér

Málið hafði strax þær afleið­ingar að skipuð var nefnd sem sögð var mönnuð óháðum stjórn­endum auk þess sem banda­ríska lög­manns­stofan White & Case LLP var ráðin til að fram­kvæma athugun á ásök­unum Halldórs. Thomas Ekman, einn af eig­endur CVC Capital Partners (eins stærsta hlut­hafa Alvogen) leiddi umrædda rann­sókn fyrir hönd stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins.

Nið­ur­staðan lá fyrir í síð­asta mán­uði, átta vikum eftir að rann­sóknin hófst. Í yfir­lýs­ingu sem stjórn Alvogen sendi frá sér vegna þessa sagði að efni kvart­anna Halldórs ætti sér ekki stoð. „Ekk­ert bend­ir til þess að starfs­hætt­ir Rób­erts Wessman séu þess eðl­is sem greint er frá í bréf­in­u og eng­in á­stæð­a er til þess að að­haf­­ast neitt vegn­a þess­a máls.“

Kjarninn hefur ekki fengið aðgang að gögnum rann­sókn­ar­innar.

Í kjöl­farið fór allt opin­ber­lega upp í háa loft. Halldór sendi frá sér yfir­lýs­ingu þar sem efni þeirra atriða sem hann lagði fyrir stjórnir Alvogen og Alvotech var opin­berað að mestu. Auk smá­skila­boð­anna voru settar fram ásak­anir um vilja Róberts Wessman til að vega að æru og mann­orði manna sem hann taldi sig hafa átt eitt­hvað sök­ótt við með mis­notkun á fjöl­miðlum sem hóp­ur­inn stýrði og um lík­ams­árásir sem Róbert átti að hafa framið undir áhrifum áfengis. Önnur þeirra átti að vera gegn Halldóri sjálfum og hin gegn ónafn­greindum stjórn­anda innan sam­stæð­unnar á við­burði í Aust­ur­ríki fyrir nokkrum árum síðan fyrir framan tugi vitna.

Engin vitni hafa þó gefið sig fram opin­ber­lega þrátt fyrir umleit­anir fjöl­miðla hér­lendis og erlendis. Halldór hefur sjálfur kallað eftir því að öll gögn sem teng­ist yfir­heyrslum sem ráð­ist var í vegna rann­sóknar á mál­inu verði gerð aðgengi­leg fjöl­miðlum.

Við því hefur ekki verið orðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

uppljóstrari

Mest lesið undanfarið ár