Fjölmiðlafyrirtækið Birtingur selt til nýs eiganda

Birt­ingur útgáfu­fé­lag hefur tapað rúmum hálfum millj­arði króna frá því að nýir eig­endur tóku við því árið 2017. Tapið í fyrra var 236 millj­ónir króna. Fram­kvæmda­stjór­inn hefur keypt allt hlutafé í útgáfu­fé­lag­inu.

Birtingur hefur meðal annars gefið út fríblaðið Mannlíf síðastliðin þrjú ár.
Birt­ingur hefur meðal ann­ars gefið út frí­blaðið Mannlíf síð­ast­liðin þrjú ár. Mynd: Bára Huld Beck

Sigríður Dagný Sig­ur­björns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Birtings útgáfu­fé­lags ehf., hefur samið um kaup á öllu hlutafé í fyr­ir­tæk­inu, sam­kvæmt frétt sem birt­ist á vefnum Mannlif.is í dag. Útgáfu­fé­lagið, sem gefur út tíma­ritin Vikuna, Gest­gjafann og Hús og híbýli. Síðustu þrjú árin hefur það einnig gefið út frí­blaðið Mannlíf og haldið úti vefnum mann­lif.is. Kaupin hafa verið til­kynnt til fjöl­miðla­nefndar.

Birt­ingur hafði frá árinu 2017 verið í eigu Fjár­fest­inga­fé­lags­ins Dalurinn ehf. Upp­haf­lega var það félag í eigu Árna Harð­­­­­ar­­­­­son, Róberts Wessman og þriggja ann­arra manna. Síðustu miss­eri hefur Halldór Krist­manns­son, fram­kvæmda­stjóra hjá Alvogen og náins sam­starfs­manns Róberts Wessman og Árna Harð­ar­sonar til margra ára, verið einn skráður eig­andi félags­ins.

[adspot]Birt­ingur tap­aði sam­tals 317 millj­ónum króna á árunum 2017 og 2018. Samkvæmt nýbirtum árs­reikn­ingi fyrir árið 2019 nam tapið í fyrra 236 millj­ónum króna. Samtals hefur tapið á rekstr­inum frá því að Dalurinn tók við honum árið 2017, og út síð­asta ár, numið 553 millj­ónum króna.

[links]Samhliða söl­unni á öllu hlutafé í Birtingu verður gerður sam­starfs­samn­ingur um rekstur vef­svæðis þar sem birt­ast efni um lífs­stíl, tísku, heim­ili, hönnun og mat fyrir vöru­merki Birtings. „Þar mun útgáfu­fé­lagið einnig selja áskriftir tíma­rita og bjóða upp á staf­ræna útgáfu Mannlífs. Birt­ingur fær sér­stak­lega greitt fyrir fram­leiðslu og notk­un­ar­rétt á umræddu efni,“ segir í frétt á vef Mannlífs.

Vef­svæðið verður í eigu og umsjón Halldórs Krist­manns­sonar, fyrr­ver­andi eig­anda Birtings , sem verður áfram útgef­andi Mannlífs. Allur rit­stjórn­ar­kostn­aður vegna vinnslu frétta­efnis fyrir Mannlíf ásamt rekstri og þróun vef­svæð­is­ins mun falla undir umræddan sam­starfs­samn­ing. Stefnt er að því að sam­starfið hefj­ist 1. ágúst næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár