Huldumaðurinn á bakvið DV reyndist vera ríkasti Íslendingurinn

Komið hefur í ljós að rík­asti Íslend­ing­ur­inn, og einn rík­asti maður heims, lán­aði að minnsta kosti 745 millj­ónir króna til að hægt væri að kaupa DV og tengda miðla og reka þá í miklu tapi í rúm tvö ár. Um er að ræða Björgólf Thor Björg­ólfs­son.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið opin­ber­aði á fimmtu­dag að Novator, fjár­fest­inga­fé­lag rík­asta manns Íslands, Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, hefði fjár­magnað kaup á DV og tengdum fjöl­miðlum haustið 2017 og gríð­ar­legan tap­rekstur þeirra alla tíð síðan.

Það gerði Novator með því að lána eig­enda útgáfu­fé­lags fjöl­miðl­anna að minnsta kosti 745 millj­ónir króna vaxta­laust.

Lengi hefur verið orðrómur um að Björgólfur Thor væri sá sem stæði á bak­við DV, en skráður eig­andi hefur ætið verið lög­mað­ur­inn Sigurður G. Guð­jóns­son. Sá orðrómur byggði meðal ann­ars á því að með kaup­unum á miðl­unum, í sept­em­ber 2017, hafi hann náð að gera gömlum fjand­mönnum sínum, Róberti Wessman og Árna Harð­ar­syni, skrá­veifu.

Kjarninn hefur sent fyr­ir­spurnir um málið á tals­mann Björg­ólfs Thors, en ætið fengið þau svör að orðróm­ur­inn væri ekki sannur. Heim­ildir Kjarnans herma að fjöl­miðla­nefnd hafi líka kallað eftir upp­lýs­ingum um það til að meta raun­veru­leg yfir­ráð yfir einu stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki á Íslandi en því hafi ein­fald­lega verið neitað.

Nefndin taldi sig ekki hafa nein lög­mæt tól til að grípa til aðgerða vegna þessa og því fékk leyndin að lifa.

Nið­ur­staðan var sú að hér var rekið stórt fjöl­miðla­fyr­ir­tæki fyrir pen­inga huldu­manns árum saman án þess að gerð væri opin­ber grein fyrir aðkomu hans. Í milli­tíð­inni var meðal ann­ars farið í tækni­lega upp­stokkun á vef­miðlum fjöl­miðla­sam­stæð­unnar sem leiddi til þess að gamlar fréttir af DV, frá árunum eftir banka­hrun, urðu ekki lengur aðgengi­legar.

Á end­anum brast þó þol­in­mæðin gagn­vart tap­rekstri útgáf­unnar og henni var rennt inn í Torg, útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins og fleiri miðla, fyrr á þessu ári. Það var við skoðun á þeim sam­runa sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið krafð­ist þess að fá upp­lýs­ingar um hver hefði fjár­magnað DV.

Hér að neðan verður þessi saga öll rakin.

Björn Ingi Hrafnsson smíðar fjölmiðlaveldi

Mikil drama­tík var á fjöl­miðla­mark­aði á árinu 2017. Mest var hún í kringum Pressu­sam­stæðu Björns Inga Hrafns­sonar, sem hafði árin á undan farið mik­inn og sankað að sér allskyns fjöl­miðlum oft með skuld­settum yfir­tökum. Síðasta yfir­takan var á tíma­rita­út­gáf­unni Birtingi í lok árs 2016 og eftir hana voru tæp­lega 30 miðlar í Pressu­sam­stæð­unni. Þeirra þekkt­astir voru DV, DV.is, Eyj­an, Pressan, sjón­varps­stöðin ÍNN og tíma­ritin Vikan, Gest­gjaf­inn, Nýtt líf og Hús og híbýli.

Í apríl 2017 var til­kynnt um að hlutafé Pressunnar yrði aukið um 300 millj­ónir króna og að sam­hliða myndi Björn Ingi stíga til hliðar. Sá aðili sem ætl­aði að koma með mest fé inn í rekst­ur­inn var Fjár­fest­inga­fé­lagið Dalurinn, félag í eigu Róberts Wessman, Árna Harð­ar­sonar og þriggja ann­arra manna, sem höfðu áður lánað Birni Inga. Með þeim var hópur ann­arra fjár­festa og svo virt­ist sem Pressu­sam­stæð­unni væri borgið.

Björn Ingi Hrafnsson var um skeið einn helsti fjölmiðlamógul þjóðarinnar. Hann nánast ryksugaði upp miðla fyrir fjármagn sem ekki var gerð sérstaklega grein fyrir hvaðan kæmi. Í dag rekur hann vefmiðilinn Viljann.
Björn Ingi Hrafns­son var um skeið einn helsti fjöl­miðla­mó­gul þjóð­ar­innar. Hann nán­ast ryksug­aði upp miðla fyrir fjár­magn sem ekki var gerð sér­stak­lega grein fyrir hvaðan kæmi. Í dag rekur hann vef­mið­il­inn Viljann.

Þessi hópur hefur eldað grátt silfur saman við Björgólf Thor Björg­ólfs­son árum saman, eða frá því að Róbert og Árni störf­uðu hjá Actavis þegar Björgólfur Thor átti það félag að mestu. Birt­ing­ar­myndir þess hafa verið margs­konar.

Björgólfur Thor hefur ætið haldið því fram að hann hafi rek­ið Ró­bert fyrir að setja félagið á hlið­ina en Róbert hefur hafnað því. Björgólf­ur T­hor hefur meðal ann­ars stefnt bæði Róberti og Árna til greiðslu skaða­bóta ­fyrir mein­tan fjár­drátt og báðir aðilar hafa atyrt hinn á opin­berum vett­vang­i við hvert tæki­færi árum saman. Deil­urnar náðu síðan nýjum hæðum í haustið 2015 þegar í ljós kom að um 60 pró­sent þeirra hluta­bréfa sem var að baki hóp­mál­sókn fyrr­ver­andi hlut­hafa Lands­bank­ans gegn Björgólfi Thor voru í eigu félags­ ­sem Árni Harð­ar­son á. Björgólfur Thor sagði á heima­síðu sinni að „fingraför þess­arra kump­ána [Ró­berts og Árna] hafa verið á mál­inu frá upp­hafi“.

Þeir kump­ánar, sem hafa und­an­farin ár ein­beitt sér að upp­bygg­ingu sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen, voru þarna, á árinu 2017, komnir á fullt í fjöl­miðla­geir­ann.

DV og tengdir miðlar seldir fyrir huldufé

Þeir komust þó fljótt að því að mun meira vant­aði til þess að rétta af rekst­ur­inn en þeir höfðu talið áður. Um miðjan maí voru þeir hættir við aukna fjár­fest­ingu en áttu þó enn meiri­hluta hluta­fjár í sam­stæð­unni. Á sama tíma var kaupum Pressunnar á Birtingi rift og Dalurinn keypti í kjöl­farið allt hlutafé þess fyr­ir­tækis.

Róbert Wessman og Björgólfur Thor Björgólfsson hafa átt í útistöðum í á annan áratug. Þátttaka þeirra í fjölmiðlarekstri ber keim af því að vera hluti af þeim deilum. Mynd: Aðsend
Róbert Wessman og Björgólfur Thor Björg­ólfs­son hafa átt í úti­stöðum í á annan ára­tug. Þátttaka þeirra í fjöl­miðla­rekstri ber keim af því að vera hluti af þeim deilum. Mynd: Aðsend

Drama­tík­inni var þó hvergi nærri lokið. Í byrjun sept­em­ber var til­kynnt að Sig­­urður G. Guð­jóns­­son hæsta­rétt­­ar­lög­maður hef­ði ásamt hópi fjár­­­festa keypt flesta lyk­ilmiðla Pressu­sam­stæð­unnar með hluta­fjár­aukn­ingu. Um var að ræða DV, DV.is, Pressuna, Eyjuna, Bleikt, ÍNN og tengda vefi. Eftir í gamla eign­ar­halds­fé­lag­inu voru skildir hér­aðs­frétta­miðlar. For­svars­menn Dalsins sögðu að þeir hefðu ekki vitað um þennan gjörn­ing fyrr en hann var afstað­inn. Verið væri að selja undan þeim eignir sem þeir ættu með réttu.

Í til­kynn­ingu frá Birni Inga sem send var út vegna þessa sagði að kaup­verðið væri „vel á sjötta hund­rað millj­ónir króna og er greitt með reiðufé og yfir­töku skulda.“

Ekki var gerð grein fyrir því hvernig kaupin voru fjár­mögnuð.

Reyndi að greiða fyrir hlutafé með steikum

Eigendur Dalsins kærðu Björn Inga í kjöl­farið fyrir fjár­svik og sögðu hann hafa haft í hót­unum við sig per­sónu­lega. Í yfir­lýs­ingu sem Árni Harð­ar­son sendi frá sér í febr­úar 2018 sagði að mark­mið þeirra hót­ana hafi verið að kom­ast hjá „skoðun opin­berra aðila á bók­haldi og fjár­reiðum Press­unar og tengdra miðla.“ Þá sagði Árni að Björn Ingi hafi reynt að greiða fá að greiða fyrir hlutafé í Press­unni með steikum frá veit­inga­hús­inu Argent­ínu, að Björn Ingi hafi fengið per­sónu­lega greiddar 80 milj­ónir króna þegar hann seldi allar eignir DV og Pressunnar og að í smá­skila­boðum sem hann hafi sent Árna á kjör­degi í fyrra hafi Björn Ingi sagt: „Er núna að klastra saman rík­is­stjórn og langar að koma á friði okkar í mill­u­m“.

Þar sagði enn fremur að hót­anir hefðu borist þegar Dalurinn „vildi ekki láta hann per­sónu­lega fá meiri pen­ing[...]þegar hann sá að Dal­ur­inn vildi ekki setja meiri pen­ing í að bjarga illa reknum einka­banka hans í formi Pressunnar og[...]þegar Dal­ur­inn vildi ekki láta hann fá hlutafé sitt í Press­unni eftir að hann seldi allar eigur þess.“

Í febr­úar 2020 gerði Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands Birni Inga að greiða þrota­búi Pressunnar millj­ón­irnar 80, sem hann fékk greiddar eftir að Frjáls fjöl­miðlun keypti fjöl­miðla úr veldi hans, vegna þess að ekk­ert hafi bent til þess að Pressan hafi í raun skuldað honum pen­ing­anna. Um „örlæt­is­gjörn­ing“ hafi verið að ræða.

Það breytti því ekki að flestir miðlar fjöl­miðla­veldis hans höfðu verið seldir til Frjálsrar fjöl­miðlar. Eftir í eign­ar­safni Dalsins var ein­ungis útgáfu­fé­lagið Birt­ingur, sem gaf út Mannlíf og nokkur tíma­rit.

Ljóst var að nýir eig­endur fjöl­miðl­anna sem seldir voru í sept­em­ber 2017 vildu núa Dals­mönnum því um nasir. Skýrasta birt­ing­ar­mynd þess var að eign­ar­halds­fé­lagið utan um útgáfu­fé­lagið Frjálsa fjöl­miðlum var nefnt Dals­dalur.

Skuldir upp á 759 milljónir króna

Birt­ingur er enn í eigu Dalsins. Það félag er nú skráð í eigu Halldórs Krist­manns­sonar, fram­kvæmda­stjóra hjá Alvogen og náins sam­starfs­manns Róberts Wessman og Árna Harð­ar­sonar til margra ára. Í mars 2020 dæmdi Lands­réttur að Frjáls fjöl­miðlun ætti að greiða Dalnum 15 millj­ónir króna auk vaxta vegna samn­ings sem gerður var í tengslum við kaupin á miðl­unum í sept­em­ber 2017.

Taprekstur DV og tengdra miðla hefur verið gríðarlegur síðustu ár.
Tap­rekstur DV og tengdra miðla hefur verið gríð­ar­legur síð­ustu ár.

Birt­ingur tap­aði sam­tals 317 millj­ónum króna á árunum 2017 og 2018. Árs­reikn­ingur fyrir árið 2019 hefur ekki verið birtur. Það tap hefur að öllu leyti verið greitt af Dalnum.

Frjáls fjöl­miðlun hefur gengið enn verr. Kjarninn greindi frá því í lok októ­ber í fyrra að Dals­dalur, eig­andi útgáfu­fé­lags­ins, hefði skuldað tæp­lega 759 millj­ónir króna í lok árs 2018. Uppi­staða skuld­ar­innar var vaxta­laust lang­tíma­lán upp á alls 745 millj­ónir króna sem átti að greið­ast síðar en 2022. Skuld­irnar juk­ust um 270 millj­ónir króna á árinu 2018.

Sigurður G. Guð­jóns­son, skráður eig­andi Dalsdals, hefur aldrei viljað upp­lýsa um við hvern þessi vaxta­lausa skuld var.

Rennt inn í Torg

Sigurður hafði ráðið Karl Garð­ars­son, fyrr­ver­andi þing­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins sem stofn­aði frí­blaðið Blaðið með Sigurði árið 2005, sem fram­kvæmda­stjóra Frjálsrar fjöl­miðl­unar strax eftir kaupin á DV og tengdum miðlum haustið 2017. Karl sótti um stöðu útvarps­stjóra RÚV fyrr á þessu ári en var ekki ráð­inn. 

Rekst­ur­inn gekk hins vegar hörmu­lega og tapið var mikið. Á fyrstu fjórum mán­uðum starf­­­sem­innar tap­aði félagið 43,6 millj­­­ónum króna. Á árinu 2018 jókst tapið umtals­vert og var um 240 millj­­­ónir króna. Sam­tals tap­aði fjöl­miðla­­­sam­­­stæðan því 283,6 millj­­­ónum króna á 16 mán­uð­u­m. Ekki liggur fyrir hversu mikið tapið var 2019 em ljóst að það var umtals­vert. Sig­­­urður sagði við RÚV í des­em­ber að „rekst­­­ur­inn er mjög erf­iður[...]þetta er búið að vera rekið með tapi frá árinu 2017.“

Þann 12. des­em­ber 2019 greindi Kjarn­inn frá því að Torg, útgáfu­­­fé­lag Frétta­­­blaðs­ins, væri að kaupa DV og tengda miðla af Frjálsri fjöl­mið­l­un. Útgáfu­­­fé­lögin stað­­­festu svo kaupin dag­inn eft­­­ir. Ástæðan fyrir kaup­unum var sögð vera erfitt rekstr­­ar­um­hverfi.

Helgi Magnússon er aðaleigandi Torgs.
Helgi Magn­ús­son er aðal­eig­andi Torgs.

Með kaup­unum á DV og tengdum miðlum var Torg, sem hafði nokkrum mán­uðum áður tekið yfir sjón­varps­stöð­ina Hring­braut, orðið að einu stærsta einka­rekna fjöl­miðla­­fyr­ir­tæki lands­ins. Stærsti eig­andi Torgs er Helgi Magn­ús­son fjár­festir, sem á 82 pró­sent í sam­stæð­unni.

Sam­keppn­is­eft­ir­litið bless­aði kaupin í mars síð­ast­liðnum án þess að það teldi ástæðu til að aðhaf­ast.

Samkeppniseftirlitið stígur inn

Á fimmtu­dag birt­ist ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna sam­run­ans á vef þess. Þar kom meðal ann­ars fram að DV og tengdir miðlar hefðu átt í rekstr­ar­erf­ið­leikum sem m.a. birt­ist í fækkun útgáfu­daga og gríð­ar­legum tap­rekstri, sem væri afl­vaki sam­run­ans. Í sam­runa­skránni rök­studdu aðilar máls­ins hann með því að benda á að „Morg­un­blaðið sé rekið ár eftir ár með mörg hund­ruð millj­óna tapi á ári og tap Birtíngs sem gefi út Mannlíf og tíma­rit sé rekið með tapi upp á annað hund­rað millj­ónir á liðnu ári. Fljótt á litið virð­ist sem inn­lendir einka­reknir fjöl­miðlar hafi á árinu 2018 tapað í kringum eitt þús­und millj­ónum og upp­safnað tap inn­lendra miðla á liðnum árum sé nokkur þús­und millj­ónir[...]Yfirvöld í land­inu verði að fara að gera sér grein fyrir því að það sé engan veg­inn sjálf­gefið í þessum veru­leika að inn­lendir fjöl­miðlar muni starfa áfram. Einn dag­inn gæti staðan verið sú, ef fram fer sem horfir að í land­inu verði ein rík­is­rekin frétta­stofa.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið óskaði eftir umsögnum frá sam­keppn­is­að­ilum fjöl­miðla­fyr­ir­tækj­anna tveggja. Í álit­inu segir að þrír umsagn­ar­að­ilar hafi tjáð sig um sam­run­ann og töldu fyr­ir­hug­aðan sam­runa ekki koma til með að hafa telj­andi áhrif á sam­keppni á þeim mörk­uðum sem um væri að ræða. „Einn af þeim óskaði þó eftir því að Sam­keppn­is­eft­ir­litið setti það sem skil­yrði fyrir sam­run­anum að upp­lýst yrði um raun­veru­lega eig­endur Frjálsrar fjöl­miðl­unar. Leyndin yfir því hver raun­veru­legur eig­andi þess sé valdi öðrum fjöl­miðla­fyr­ir­tækjum miklum skaða og bjagi mark­aðs­stöðu óhjá­kvæmi­lega.“

Sam­keppn­is­eft­ir­litið ákvað að taka til­lit til þessa og krafð­ist þess að upp­lýst yrði hver það væri sem fjár­magn­aði rekstur Frjálsrar fjöl­miðl­unar. Þann 14. jan­úar 2020 barst svar. í því kom „fram að félagið Novator ehf. hefur verið eini lán­veit­andi Dals­dals og Frjálsrar fjöl­miðl­unar og helsti bak­hjarl fjöl­mið­ils­ins frá eig­enda­skiptum árið 2017.“

Einn ríkasti maður heims

Novator er aðal­lega í eigu Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, sem hefur lengi verið einn rík­asti Íslend­ing­ur­inn. Hann efn­að­ist á því að selja bjór­verk­smiðju í Rúss­landi, fjár­festi svo mikið í lyfja- og fjar­skipta­iðn­að­inum auk þess að kaupa ráð­andi hlut í Lands­banka Íslands ásamt föður sínum og við­skipta­fé­laga þeirra. Fjár­mála­hrunið 2008 setti veldi hans í hættu.

Í ágúst 2014 var til­­­­kynnt að skulda­­­­upp­­­­­­­gjöri Björg­­­­ólfs Thors væri lokið og að hann hefði greitt kröf­u­höfum sín­um, að mestu stórum alþjóð­­­­legum bönk­­­­um, sam­tals um 1.200 millj­­­­arða króna. Það upp­­­­­­­gjör tryggði honum mik­inn auð þar sem hann, og Novator, fengu að halda góðum eign­­­­ar­hluta í Actavis að því loknu, sem hefur síðan verið seld­ur. Sá eign­­­­ar­hluti hefur gert Björgólf Thor og aðra eig­endur Nota­vor mjög efn­aða á ný. ­Björgólfur Thor gaf árið 2015 út bók um fall sitt og end­­­­ur­komu. Kjarn­inn birti umfjöllun um bók­ina skömmu eftir að hún kom út.

Björgólfur Thor, og sam­starfs­menn hans í Novator, þeir Birgir Már Ragn­ars­son og Andri Sveins­son, hafa farið mik­inn í fjár­fest­ingum síð­ast­lið­inn rúman ára­tug, að mestu ann­ars staðar en á Íslandi. Novator er þó enn með umsvif hér­lend­is, og er meðal ann­ars stór hlut­hafi í fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Nova. Þá tók Björgólfur Thor þátt í skulda­bréfa­út­boði WOW air í sept­em­ber 2018, nokkrum mán­uðum áður en að flug­fé­lagið fór í þrot, en í gegnum eigin félag. Og nú liggur fyrir að Novator fjár­magn­aði líka mik­inn tap­rekstur DV og tengdra miðla árum saman.

Í mars í fyrra var sagt frá því að Björgólfur Thor sæti í 1.116 sæti á lista Forbes yfir millj­arða­mær­inga heims­ins og að auður hans væri met­inn á 2,1 millj­arð Banda­ríkja­dali.

Tveimur mán­uðum síð­ar, í maí 2019, var Björgólfur Thor í 91. sæti yfir rík­­­ustu menn Bret­lands sam­­kvæmt lista The Sunday Times.

Sterkur orðrómur hafði verið um það frá upp­hafi að Novator eða Björgólfur Thor per­sónu­lega væru að fjár­magna rekstur Frjálsrar fjöl­miðl­unar. Þegar Kjarninn hefur leitað eftir svörum hjá félag­inu um hvort það væri sagt var því ætið neitað.

Áhyggjur af fjársterkum aðilum og markmiðum þeirra

Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur látið sig fjöl­miðla­mark­að­inn varða á fleiri vegu und­an­farnar vikur. Í jan­úar skil­aði það inn umsögn um fjöl­miðla­frum­varp Lilju D. Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, sem átti að koma upp styrkja­kerfi fyrir einka­rekna fjöl­miðla á Íslandi, að sam­bæri­legu meiði og er til staðar á öðrum Norð­ur­löndum. Þar sagði eft­ir­litið að það teldi brýnt að stuðn­ingur við fjöl­miðla af almannafé hafi það að meg­in­mark­miði að styðja við fjöl­ræði og fjöl­breytni. „Í þessu sam­bandi hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið í huga að eign­ar­hald stærri einka­rek­inna fjöl­miðla hefur í vax­andi mæli þró­ast á þann veg að eign­ar­haldið hefur færst á hendur fjár­sterkra aðila sem standa fyrir til­tekna skil­greinda hags­muni í íslensku atvinnu­lífi. Í sumum til­vikum blasir við að ráð­stöfun þess­ara aðila á fjár­munum í fjöl­miðla­rekstur hefur það meg­in­mark­mið að Ijá hags­munum við­kom­andi aðila enn sterk­ari rödd og vinna þeim þannig frek­ari fram­gang.“

Umsögn Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins er dag­sett 13. jan­úar. Daginn eftir fékk það upp­lýs­ingar um að rík­asti maður Íslandi hefði fjár­magnað umtals­verðan tap­rekstur fjöl­miðla­fyr­ir­tækis í lengri tíma án þess að gert væri nokkur opin­ber grein fyrir aðkomu hans.

Í áliti eft­ir­lits­ins vegna kaupa Torgs á Frjálsri fjöl­miðlun segir að þau „muni hafa í för með sér að fjöl­miðlar Torgs verði í meiri­hluta­eigu eins manns, auk þriggja ann­arra sem fari með smærri hlut. Að því leyt­inu til feli fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar í sér sam­þjöppun á fjöl­miðla­mark­aði sem áhrif hafi á fjöl­ræði á mark­aði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár