Björgólfur Thor metinn á 263 milljarða króna

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son er á meðal 100 rík­ustu manna í Bret­landi. Auður hans hefur vaxið hægt og bít­andi síð­ustu ár eftir að staða hans var tví­sýn eftir banka­hrunið.

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son fjár­festir er í 91. sæti yfir rík­ustu menn Bret­lands sam­kvæmt nýbirtum lista The Sunday Times. Alls er auður hans met­inn á 1.654 millj­ónir punda, eða 263 millj­arða króna.

[links]Auður Björg­ólfs Thor jókst um 98 millj­ónir punda, 15,6 millj­arða króna, á síð­asta ári. Björgólfur Thor er því eini íslenski millj­arða­mær­ing­ur­inn í pundum talið.

Líkast til er Björgólfur Thor sá Íslend­ingur sem best hefur tek­ist að end­ur­heimta þá eigna­stöðu sem hann var með fyrir banka­hrunið. Á árinu 2007 var hann í 23. sæti á lista The Sunday Times yfir rík­ustu menn Bret­lands og í 29. sæti í árs­lok 2008. Þá var auður hans met­inn á 2.070 millj­ónir punda, eða 329,1 millj­arð króna á núvirði.

Mjög fyrirferðamikill fyrir bankahrun

Á þeim tíma var Björgólfur Thor þekkt­astur fyrir fjár­fest­ingar í lyfja­iðn­aði og fjar­skipta­fyr­ir­tækjum, og stærsta ein­staka eign hans var hlutur í lyfj­aris­anum Actavis. Auk þess var Björgólfur Thor vit­an­lega afar umsvifa­mik­ill á Íslandi þar sem hann átti, ásamt föður sínum og öðrum við­skipta­fé­laga, kjöl­festu­hlut í Lands­banka Íslands um nokk­urra ára skeið.

[adspot]Björgólfur, faðir hans og Magnús Þor­steins­son höfðu fyrst efn­ast veru­lega á því að selja bjór­verk­smiðj­una Bravo í Rúss­landi til Heineken skömmu eftir ald­ar­mót.

Fjár­mála­hrunið setti hins vegar veldi Björg­ólfs Thors í tví­sýna stöðu þar sem hann var í per­sónu­legum ábyrgðum fyrir skuldum sem námu minnst 40 millj­örðum króna.

Skömmu eftir hrun hófust við­ræður milli Björg­­ólfs Thors og trún­­að­­ar­­manna hans, og síðar full­­trúa lán­­ar­drottna sem áttu kröfu á Björgólf Thor og félög hans.

Í ágúst 2014 var síðan til­­kynnt að skulda­­upp­­­gjöri Björg­­ólfs Thors Björg­­ólfs­­sonar væri lokið og að hann hefði greitt kröf­u­höfum sín­um, að mestu stórum alþjóð­­legum bönk­­um, sam­tals um 1.200 millj­­arða króna. Þessi upp­­­gjör tryggði honum mik­inn auð þar sem hann fékk að halda góðum eign­­ar­hluta í Actavis að því loknu. Sá eign­­ar­hluti hefur gert Björgólf Thor ævin­týra­lega ríkan á ný. ­Björgólfur Thor gaf árið 2015 út bók um fall sitt og end­­ur­komu. Kjarn­inn birti umfjöllun um bók­ina skömmu eftir að hún kom út.

Var einnig á lista Forbes

Björgólfur Thor birt­ist einnig á lista tíma­rits­ins Forbes yfir rík­ustu menn heims fyrr á þessu ári. Þar sat hann í 1.116 sæti og fór upp um 90 sæti milli ára.

[adspot]Í umfjöll­un ­Forbes ­sagði að ­Björgólf­ur eigi hlut í pólska fjar­­skipta­­fyr­ir­tæk­in­u Play en það er á meðal stærstu far­síma­fyr­ir­tækja Pól­lands. Til­kynnt var um það sum­arið 2017 að Novator, fjár­fest­inga­fé­lag Björg­ólfs Thors, ætl­aði að selja tæp­lega helm­ings­hlut í Play, sem þá var metið á 261 millj­arð króna. Í umfjöll­un ­Forbes kom einnig fram að Björgólfur eigi einnig hluti í WOM frá Síle. Auk þess hafi hann fjár­fest í raf­mynt og sprota­fyr­ir­tækj­unum á borð við Zwif, BeamUp og Deliveroo.

Í umfjöllun The Sunday Times segir að á meðal nýj­ustu fjár­fest­inga Björg­ólfs Thors séu meðal ann­ars kaup á hlut í Atai Life Sciences, fyr­ir­tæki sem stað­sett er í Þýska­landi og von­ast til þess að geta fundið leiðir til að nota ofskynj­un­ar­lyf til að lækna geð­sjúk­dóma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár