Björgólfur Thor þýtur upp milljarðamæringalistann

Björgólf­ur Thor Björg­ólfs­son fjár­fest­ir tekur stökk á nýjum lista Forbes yfir rík­ustu menn í heimi. Björgólf­ur fer upp um 99 sæti milli ára og er auður hans nú met­inn á 2,1 millj­arð Banda­ríkja­dala eða um 254 millj­arða ís­lenskra króna.

Björgólfur Thor Björgólfsson
Björgólfur Thor Björg­ólfs­son

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son fjár­festir fer upp um 90 sæti á lista Forbes yfir millj­arða­mær­inga heims­ins á milli ára. Í fyrra var Björgólfur Thor í 1.215 sæti en er nú í 1.116 sæti á nýjum lista Forbes sem birtur var í dag. Björgólfur Thor er eini Íslend­ing­ur­inn á list­an­um, og reyndar eini Íslend­ing­ur­inn sem hefur nokkru sinni kom­ist á hann. Auður hans er met­inn á 2,1 millj­arð dala eða um á 254 millj­arða króna.

Eignir Bezos nema nú 131 milljarði dala

Stofn­andi Amazon, Jeff Bezos, er áfram á toppi lista Forbes yfir auðug­asta fólk heims en næst­ir á eft­ir hon­um koma þeir Bill Gates og Warren Buffett. Sam­kvæmt nýrri út­tekt Forbes hafa eign­ir Bezos auk­ist um 19 millj­arða Banda­ríkja­dala und­an­farið ár og nema nú 131 millj­arði dala. Fyrsta konan á list­an­um er í fimmt­ánda sæti en það er Françoise Bettencourt Meyers, rík­asta kona heims en eign­ir henn­ar eru metn­ar á 49,3 millj­arða Banda­ríkja­dala. Bettencourt-fjöl­skyld­an er aðal­eig­andi franska snyrti­vöru­fyr­ir­tæk­is­ins L'Oreal. Í sam­an­tekt Forbes segir að í ár fækk­aði millj­arða­mær­ing­unum um 55 og eru nú um 2153 millj­arða­mær­ingar í heim­inum. Í heild­ina duttu 247 manns af list­anum milli ára en það er hæsta talan frá árinu 2019.

Björgólfur Thor sat einu sinni í 249. sæti listans

Árið 2007 var Björgólfur Thor Björg­ólfs­son í 249. sæti yfir rík­ustu menn ver­aldar á lista Forbes. Ári síð­ar, eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins lá fyrir að Björgólfur Thor var í per­sónu­legum ábyrgðum vegna skulda sem námu minnst 40 millj­örðum króna. Skömmu eftir hrun hófust við­ræður milli Björg­ólfs Thors og trún­að­ar­manna hans, og síðar full­trúa lán­ar­drottna sem áttu kröfu á Björgólf Thor og félög hans.

Í ágúst 2014 var síðan til­kynnt að skulda­upp­gjöri Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar væri lokið og að hann hefði greitt kröfu­höfum sín­um, að mestu stórum alþjóð­legum bönk­um, sam­tals um 1.200 millj­arða króna. Þessi upp­gjör tryggði honum mik­inn auð þar sem hann fékk að halda góðum eign­ar­hluta í Actavis að því loknu. Sá eign­ar­hluti hefur gert Björgólf Thor ævin­týra­lega ríkan á ný. Björgólfur Thor gaf árið 2015 út bók um fall sitt og end­ur­komu. Kjarn­inn birti umfjöllun um bók­ina skömmu eftir að hún kom út.

Í umfjöllun Forbes segir að Björgólf­ur eigi hlut í pólska fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Play en það er á meðal stærstu far­síma­fyr­ir­tækja Póllands. Tilkynnt var um það sum­arið 2017 að Novator, fjár­fest­inga­fé­lag Björg­ólfs Thors, ætl­aði að selja tæp­lega helm­ings­hlut í Play, sem þá var metið á 261 millj­arð króna. Í umfjöllun Forbes kemur einnig fram að Björgólfur eigi einnig hluti í WOM frá Síle. Auk þess hafi hann fjár­fest í raf­mynt og sprota­fyr­ir­tækj­unum á borð við Zwif, BeamUp og Deliveroo.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár