Ætlar að flytja til Ísafjarðar þótt hann hafi aldrei komið þangað

Máni Snær Örvar ætlar að flytja úr bænum og klára stúdentinn á Ísafirði.

Máni Snær
Máni Snær Flytur vestur á firði til að ljúka námi.

Ég var uppruna­lega í Tækni­skólanum á tölvu­braut og fékk smá ógeð á því að vera í námi. Svo var ég á myndlistar­braut í Fjölbrauta­skólanum í Breið­holti en átti erfitt með námið þar. Ég er að fara að klára stúdentinn í haust, ég er að fara til Ísafjarðar og taka hann þar. Það er planið. Ég valdi nýsköpunar­braut eða opna braut, ég á eftir að ákveða hvað ég vil gera en ákvað bara að vera búinn með stúdents­prófið þannig að ég geti gert eitthvað við það. Ég er spenntur, frænka mín býr þar og það var hún sem fékk mig til að fara þangað. Hún vinnur þarna í mennta­skólanum. Ég hef samt aldrei farið til Ísafjarðar, bara keyrt þarna í gegn. Ég verð minnst eitt og hálft ár á Ísafirði og mögulega lengur ef mér líkar við að búa þar.  Ég vinn núna í Tiger og mér líkar það ágætlega, það er fínt og líka stutt frá þar sem ég á heima. Annars er fólkið sem vinnur með mér það skemmtilegasta við starfið, það er auðvelt að spjalla við það. Ég verð örugglega í sambandi við þá sem ég þekki í bænum, en ég held ég muni sakna mest 24 tíma búða því ég enda oft á því ég er oft vakandi seint á kvöldin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár