Landlæknir: Aðgengi að heilbrigðiskerfinu misskipt og geðheilbrigðisþjónustan „nánast í molum“

Birgir Jakobsson land­læknir fór yfir helstu veikleika íslensks heilbrigðis­kerfis á ráðstefnu í HÍ.

Aðgengi að heilbrigðis­þjónustu er misskipt og samfella í þjónustunni er slæm. Heilsu­gæslan annar ekki hlutverki sínu sem fyrsti viðkomu­staður inn í heilbrigðis­kerfið. Háskóla­sjúkrahúsið er undir­mannað og annar ekki hlutverki sínu og geðheil­brigðis­þjónusta er nánast í molum. 

Þetta er á meðal helstu veikleika íslensks heilbrigðis­kerfis að því er fram kom í erindi Birgis Jakobs­sonar land­læknis á Þjóðar­speglinum í Háskóla Íslands á dögunum. Ágrip af erindi hans birtist á Skemmunni fyrr í vikunni. 

Birgir benti á það í erindi sínu að íslenskt heilbrigðis­kerfi væri skipað vel menntuðu og hæfu starfs­fólki og kæmi jafnframt vel út í alþjóð­legum saman­burði hvað varðar árangur og aðgengi, sérstak­lega þegar tekið er tillit til þess að Ísland ver mun minni hluta af vergri lands­framleiðslu til heilbrigðis­mála en nágranna­ríkin. Engu að síður sé víða pottur brotinn.

„Opinber þjónusta er fjár­mögnuð samkvæmt fjárlögum sem hefur lamandi áhrif á afköst þjónustunnar meðan einka­rekin þjónusta er fjár­mögnuð samkvæmt mjög hvetjandi kerfi sem augljós­lega leiðir til oflækninga á mörgum sviðum,“ segir í ágripi af erindi land­læknis. Hann benti á að samkvæmt nýlegri skýrslu Ríkis­endur­skoðunar hefur fjármagn til einka­rekinnar þjónustu aukist um 40 prósent eftir hrun meðan það hefur dregist saman um 10% fyrir opinbera þjónustu. 

„Þetta gerist algerlega án íhlutunar stjórn­valda samkvæmt opnum ramma­samningi Sjúkra­trygginga Ísland við sérgreina­lækna,“ sagði land­læknir og benti á að fara þyrfti yfir framtíð og hlutverk LSH, taka á ráðninga­málum lækna, efla göngu­deildar­þjónustu spítalans, bæta heilsu­gæsluna um land allt og sérfræði­þjónustu á lands­byggðinni. „Gera þarf auknar kröfur um gæðavísa og árleg uppgjör um hvaða gæðum er komið til leiðar, breyta þarf fjár­mögnunar­kerfi heilbrigðis­þjónustunnar og samræma það á milli opinberrar og einka­rekinnar þjónustu. Nýlegt fjár­mögnunar­kerfi á heilsu­gæslu höfuð­borgar­svæðisins er þar til eftir­breytni.“

Telur Birgir að yfirfara þurfi stjórn­skipulag heilbrigðis­kerfisins og nýta þann möguleika sem felst í því að heilbrigðis­stofnanir landsins eru nú aðeins níu talsins. Best færi á því að forstjórar þessara stofnana væru sjálf­kjörin framkvæmda­stjórn heilbrigðis­mála í landinu undir stjórn heilbrigðis­ráðuneytisins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár