Segir vinnudaga þingmanna of langa: „Er ekki hægt að klára aðeins fyrr?“

Karólína Helga Símonar­dóttir, verðandi þingkona Bjartrar framtíðar, gagnrýnir vinnu­umhverfið.

Vara­þingkonan Karólína Helga Símonar­dóttir, sem tekur við þingsæti Theodóru S. Þorsteins­dóttur eftir áramót, gagnrýnir karllægt vinnu­umhverfi á Alþingi í viðtali í Morgun­blaðinu í dag og nefnir sérstak­lega að vinnu­dagar séu langir.

„Það er bara spurning hvort þetta þurfi að vera svona, þarf alltaf að geyma allt til þess síðasta, er ekki hægt að klára aðeins fyrr og vera aðeins skipulagðari?“ er haft eftir Karólínu.

Sem kunnugt er þiggja þingmenn meira en 1,1 milljón í laun á mánuði og fá fleiri frídaga en flestar aðrar starfs­stéttir. Þá eru engin viðurlög við því að þingmenn mæti ekki til vinnu mánuðum saman, sniðgangi atkvæða­greiðslur og nefndar­fundi. 

Theodóra, þing­flokks­formaður Bjartrar framtíðar, tilkynnti í viðtali við Kópa­vogsblaðið um helgina að hún ætlaði að hætta þing­mennsku. Fullyrti hún að þingmenn kæmu „hvergi að neinni stefnu­mót­un eða ákv­arðana­töku um strauma og stefn­ur“ og gagnrýndi að flest mál sem væru samþykkt kæmu úr ráðuneyt­um í gegn­um rík­is­stjórn. Sjálf hefur Theodóra aldrei lagt fram þingmál, hvorki laga­frumvarp né þings­ályktunar­tillögu.

Karólína Helga hefur undan­farin ár starfað sem verkefna­stjóri hjá fyrir­tækinu Seeds, en hún er mann­fræðingur að mennt. Á vef Bjartrar framtíðar líkir hún sjálfri sér við vasahníf. „Hnífinn er hægt að nýta á marga vegu, hann er harðgerður, vinnu­samur, þú veist alltaf að hverju þú gengur, hann er öllu viðbúin og alltaf til staðar. Þar er mér ágætlega lýst, ég er ekki mikið fyrir að berja mér á brjóst en ég hef ástríðu fyrir þeim verkefnum sem ég tek mér fyrir hendi og klára þau af fagmennsku,“ skrifar hún.

Fram kemur að ástæða þess að Karólína valdi Bjarta framtíð sé fyrst og fremst sú að hún „trúi á þær hugsjónir sem Björt framtíð hefur fram að færa, meiri vinnu og minna tuð. Flokkur með fram­tíðarsýn í öllum málum, ekki skammtíma­lausnir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár