Washington ríki lagði Trump aftur

Áfrýjunar­dómstóll staðfesti niður­stöðu alríkis­dómstólsins í Washington ríkis.

Áfrýjunar­dómstóll í San Francisco hefur úrskurðað að tíma­bundið lögbann sem sett var á tilskipun Donalds Trumps Bandaríkja­forseta, um ferðabann borgara sjö ríkja, Líbíu, Jemen, Sýrlands, Írak, Íran, Sómalíu og Súdan, skuli standa. Forseta­tilskipunin hefur því ekkert gildi lengur, eins og staðan er, og mega borgarar þessara landa fara inn í landið með lögmæta vegabréfs­áritun.

Donald Trump hefur þegar tjáð sig á Twitter, og segir að málinu verði haldið til streitu fyrir dómstólum - þá væntanlega hjá Hæstarétti - og segir að öryggi þjóðarinnar sé í húfi.

Þann 27. janúar síðastliðinn gaf Trump út tilskipun þess efnis, að íbúar Írans, Íraks, Jemens, Líbíu, Sómalíu, Súdans og Sýrlands, skyldu ekki fá að stíga fæti á bandaríska grund, jafnvel þótt þeir hefðu gildar vegabréfs­áritanir undir höndum. Þá náði bannið einnig til fólks sem bjó í Banda­ríkjunum og hafði tengsl við ríkin sjö, jafnvel þó það hefði græna kortið.

Á sama degi og bannið var sett á var horfið frá því að taka á móti 10 þúsund flótta­mönnum frá Sýrlandi, eins og ákveðið hafði verið í tíð Baracks Obama, fyrr­verandi Bandaríkja­forseta.

Washington ríki kærði ferða­bannið til alríkis­dómstóls og 3. febrúar og setti Jason L. Robarts, dómari við svæðis­dómstól allríkis­dómstólsins í Washingtonríki, tímbundið lögbann á framkvæmd tilskipunarinnar. 

Megin­rökin voru þau, í dóms­málinu, að það fæli í sér brot á stjórnar­skrá Banda­ríkjanna og væri alltof víðtæk aðgerð, án nægilegs rökstuðnings. Tíma­bundið lögbanna var sett á grund­velli þessi að vafi væri uppi um hvort lögbannið væri í takt við lög og stjórnar­skrá, og var það sett á þeim forsendum.

Bandarísk stjórn­völd áfrýjuðu lögbanninu til áfrýjunar­dómstólsins í San Francisco, sem teygir sig yfir vestur­strönd Banda­ríkjanna, Alaska, Hawaii og fleiri ríki. Málflutningur fór þar fram á þriðjudag, og sagði ríkis­stjóri Washington, Bob Ferguson - sem hefur leitt undir­búning mála­ferlanna gegn komubanni Trump - að hann væri sann­færður um að bannið væri ólöglegt, stæðist ekki stjórnar­skrá og að Washington ríki - og fleiri meðstefnendur í málinu - myndu sigra. 

Það hefur nú gerst en líklegt má telja, sé mið tekið af Twitter færslu Trumps forseta, að málið verið lagt fyrir Hæstarétt Banda­ríkjanna að dæma um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár