Vörubílar myndu aka 120 ferðir á dag með Kötluvikur

„Þetta er ekkert smáræði og ég held að menn átti sig engan veginn á því hvað þetta er mikið umfang,“ segir Guðmundur Oddgeirsson, bæjar­fulltrúi í Ölfusi, um fyrir­hugaða vikurnámu á Mýrdals­sandi og flutninga á efninu til Þorláks­hafnar.

Vikurnáman yrði austan við Hafursey á Mýrdalssandi.
Vik­ur­náman yrði austan við Hafursey á Mýr­dals­sandi. Mynd: South.is

Yrði vikurnáma við Hafursey á Mýrdals­sandi að veruleika og vinnslan næmi um 1 milljón tonna á ári, líkt og þýska fyrir­tækið STEAG Power Minerals (SPM) áformar, þyrftu vörubílar að aka tæplega 30 þúsund ferðir á ári um 180 kílómetra leið til Þorláks­hafnar með vikurinn. Miðað við 249 vinnudaga á ári eins og áætlanir gera ráð fyrir, yrðu ferðir vöru­bílanna 120 á hverjum þeirra. „Svo má tvöfalda þessar tölur til að fá ferðirnar fram og til baka.“

Þetta segir Guðmundur Oddgeirsson, bæjar­fulltrúi O-lista framfara­sinna og félags­hyggju­fólks í Ölfusi. Hann hefur ýmislegt við hina fyrir­huguðu námu­vinnslu að athuga, vinnslu sem yrðu sú lang­stærsta sinnar tegundar hér á landi – segir verið að reyna „að slá ryki í augu fólks“ – en bendir ennfremur á að önnur stór vikur­vinnsla sé í kortunum. Þau áform eru á vegum Eignarhalds­félagsins Hornsteins ehf. og efnið yrði fengið úr Litla-Sandfelli í Þrengslunum. Félagið og Ölfus undir­rituðu vilja­yfirlýsingu vegna verk­efnisins fyrir tæpu ári.

Að mati Guðmundar þarf að ræða þessi áform í samhengi, m.a. með tilliti til mikilla þunga­flutninga um vegakerfi sem þegar er tæpt vegna álags, en einnig út frá áhrifunum á umhverfið og íbúa. „Þetta er ekkert smáræði og ég held að menn átti sig engan veginn á því hvað þetta er mikið umfang.“

Tillaga SPM að mats­áætlun vegna vikur­vinnslunnar á Mýrdals­sandi var auglýst í sumar. Sjö lögbundnar umsagnir bárust frá stofnunum en eina athugasemdin sem barst að öðru leyti var frá Landvernd. Mats­áætlun er eitt skref í umhverfis­mats­ferli framkvæmda sem lýkur með áliti Skipulags­stofnunar.

SPM stofnaði fyrir­tækið Power Minerals Iceland ehf. hér á landi og festi það kaup á jörðinni Hjörleifs­höfða, sem hin fyrir­hugaða náma er innan, og á í henni 90 prósent á móti 10 prósenta eignar­hlut Lásastígs ehf.

Efnið yrði tekið úr vikurlagi úr Kötlu­gosum austan og suðaustan Hafurs­eyjar á Mýrdals­sandi. Til að byrja með myndi vinnslan nema um 200 þúsund tonnum á ári en að fimm árum liðnum um einni milljón tonna. Vikrinum, sem ætlaður er sem íblöndunar­efni í sement, yrði svo ekið á geymslu­svæði í Þorláks­höfn og þaðan sett um borð í skip sem flytti hann til Evrópu og mögulega Norður-Ameríku.

Tillagan var til umræðu á síðasta fundi skipulags- og umhverfis­nefndar Ölfus og setur hún spurningar­merki við áhrif verk­efnisins á lífsgæði íbúa m.a. vegna foks á efni og mikillar umferðar. Einnig er í afgreiðslu nefndarinnar lögð áhersla á að ef af verk­efninu verður verði að gera ráðstafanir til að hindra efnisfok og að efni verði ekki haugsett á hafnar­svæði.

Guðmundur lagði á þessum fundi framítarlega bókun þar sem m.a. sagði að efnis­flutningarnir frá Mýrdals­sandi til Þorláks­hafnar, haug­setningin og akstur til skips og frá, myndu „vissulega hafa marg­vísleg áhrif til lakari lífsgæði íbúa Þorláks­hafnar“.

Bæjarráðið áhugasamt

Sama dag og skipulags- og umhverfis­nefnd fjallaði um málið var það einnig til umfjöllunar í bæjarráði. Þar var tekið fyrir minnis­blað frá SPM þar sem fyrir­tækið lýsir þeim vilja sínum að fá að koma upp aðstöðu til að geyma því sem nemur um það bil tveimur skips­förmum, um 18 þúsund tonnum, af jarðefnum nærri Þorláks­höfn. Sérstak­lega lýsa þeir áhuga á þremur lóðum við Óseyrar­braut.

„Bæjarráð lýsir sig áhugasamt fyrir framgangi þessa máls og [er] jákvætt fyrir því að finna starfseminni hentuga lóð innan sveitar­félagsins svo fremi sem tryggt sé að allt jarðefni verði geymt í lokuðum húsum þannig að ekki sé sjón-, ryk- eða hávaða­mengun af starfseminni,“ segir í samþykkt ráðsins um málið. Var bæjar­stjóra falið að upplýsa fyrir­tækið um þessa afstöðu og vinna því áfram farveg.

„Við höfum hist til að fara yfir hlutina en málin eru á frumstigi hvað okkur varðar,“ segir Elliði Vignisson, bæjar­stjóri Ölfus, við Kjarnann. Forsvars­menn fyrir­tækisins hafi sagst þurfa lóð sem næst hafnar­svæðinu sem og skipalægi. „Við höfum á sama hátt útskýrt áherslur okkar hvað varðar skipulag og gert félaginu grein fyrir því að ríkar kröfur verði gerðar til allrar starfsemi sem liggur nærri íbúða­svæðum. Þannig komi ekki til greina að um verði að ræða opnar efnis­geymslur né nokkra starfsemi sem leiðir til ryk- eða hljóð­mengunar svo dæmi sé tekið.“

Guðmundur bendir á að hafnar­svæðið sé nálægt byggðinni og „ef vikurinn af Mýrdals­sandi yrði fluttur til Þorláks­hafnar yrði unnið með hann allan sólar­hringinn“ og því myndi fylgja hávaði, hvort sem haugarnir yrðu yfir­byggðir eða ekki. Flytja þurfi efnið frá geymslu­svæði til skips – hvort sem það yrði með færibandi, eins og nefnt er í skýrslunni, eða á vörubílum.

Hann bendir enn fremur á að byggðin í Þorláks­höfn færist sífellt nær þeim vegi sem vörubílar aka að hafnar­svæðinu. „Framkvæmda­aðilar eru svo tvísaga í því, samkvæmt skýrslunni, hvar haug­setningin á að vera.“ Ýmist sé talað um að hún yrði í 2,5 kílómetra fjarlægð frá höfninni eða fimm. Þá megi einnig skilja, við lestur skýrslunnar, að hún yrði á hafnar­bakkanum.

Að mati Guðmundar verður að gera ríkari kröfu á framkvæmda­aðila í nákvæmni í skýrslum sem þessum – enda séu þær grundvallar­plagg fyrir eftirlits­aðila, sveitar­félög og aðra til að gera upp hug sinn varðandi áformaðar framkvæmdir. Í skýrslu SPM sé bæði magn og fyrir­hugaðar stað­setningar starfseminnar á reiki. Á einum stað sé t.d. talað um 200 milljóna tonna vinnslu á ári „sem er augljós­lega villa,“ segir Guðmundur. „Menn eru almennt alltof ginkeyptir fyrir að stökkva á eitthvað án þess að skoða málin til enda.“ Í þessu tilviki sé verið að tala um 200 þúsund tonna fram­leiðslu í byrjun, „en við eigum að horfa á enda­punktinn, það sem þeir stefna á að gera, sem er um milljón tonna ársframleiðsla“.

Félagið í söluferli

SPM er í söluferli. Fyrir­tækið EP Power Europe (EPPE), sem er hluti af tékknesku Energetický a průmyslový holding (EPH) samsteypunni, er að kaupa það af STEAG. Um þetta er fjallað í mats­skýrslu fyrir­tækisins. EPPE mun með kaupunum eignast SPM að fullu og allar eignir þess á Íslandi, þ.m.t. jörðina Hjörleifs­höfða og Power Minerals Iceland ehf. Guðmundur kallaði þetta „brask“ í bókun sinni í skipulags- og umhverfis­nefnd. Spurður nánar út í hvað hann eigi við segir hann söluna vekja spurningar um ávinning verk­efnisins. „Er þetta raun­verulega að fara að skila einhverju fyrir lofts­lagið og hagkerfið eins og þeir vilja vera láta?“

STEAG er einn af stærstu orku­fram­leiðendum Þýska­lands og sérhæfir sig í kolaverum og hin síðari ár einnig í öðrum orku­gjöfum. SPM, dóttur­félag þess, heldur utan um viðskipti með hliðar­afurðir kola­brennslunnar, m.a. sölu á svokallaðri flugösku sem notuð er sem íblöndunar­efni í sement. Megin­markmiðið með því að vinna vikur á Mýrdals­sandi er að sögn SPM að draga úr kolefnis­losun tengdri sements­framleiðslu með því að nota vikur í stað öskunnar. „Með aukinni umhverfis­vitund hefur kolaverum í Vestur-Evrópu fækkað mikið og framboð á kolaösku dregist saman,“ segir í mats­áætlun SPM. Í Þýska­landi sé stefnt að því að árið 2038 verði búið að loka öllum kolaverum. „Í stað þess að útvega kolaösku annars staðar frá ætlar SPM sér að nota vikur til að bjóða viðskipta­vinum sínum umhverfis­vænt hráefni.“

En hver yrði hin raun­verulega kolefnis­losun frá vikur­fram­leiðslunni, með þessum mikla akstri lands­hluta á milli sem og skipa­flutninga til Evrópu og Norður-Ameríku? Á þetta benda bæði Landvernd og Heilbrigðis­eftirlit Suður­lands í athuga­semdum sínum við tillögu að mats­áætlun framkvæmdarinnar og vilja að kolefnis­spor hinnar fyrir­huguðu starfsemi verði reiknað út.

„Svo er það náttúru­verndin í þessu,“ segir Guðmundur sem furðar sig á þeirri stað­hæfingu sem sett er fram í skýrslu SPM að hin áformaða náma sé „vissulega endurnýjanleg“ – líkt og það er orðað. Katla muni gjósa aftur „og það munu koma jökulhlaup niður á Mýrdals­sand sem bera með sér óhemju af vikri og öðrum jarðefnum“.

Ef þetta væru gild rök, segir Guðmundur, „væri þá ekki hægt að heimfæra þau á allt? Hverja einustu framkvæmd sem hér hefur verið gerð? Þetta er einkennileg réttlæting á raski á nátt­úrunni og allt eins mætti þá segja: Að öllum líkindum má búast við ísöld og að mannanna verk muni afmást. Eru það gild rök fyrir að raska landi?“

Elliði bæjar­stjóri segir að fundir með framkvæmda­aðilum hafi verið „með ágætum“, enda fyrir­tækið ekki að „fara fram á neitt annað af okkur en lóð og hafnar­aðstöðu. Eitthvað sem við erum svo sem að vinna að alla daga. Staðan núna er sú að við erum að lenda í þröngri stöðu með lóðir undir atvinnu­starfsemi og fjölmargar fyrir­spurnir frá fyrir­tækjum sem sjá fram­tíðina í Þorláks­höfn“.

Hann segir eingöngu hafa verið rætt við fyrir­tækið um að koma starfsemi þeirra fyrir annað hvort utan þétt­býlisins í Þorláks­höfn eða innan iðnaðar- og hafnar­svæðis. „Í báðum tilvikum með aðkomu beint að höfninni án umferðar um íbúða­byggðina.“

Segir aðkomu íbúa verða tryggða

Viðræðurnar séu enn á frumstigi og of snemmt sé að fullyrða nokkuð um hvert þær leiði. Spurður hvort að til greina komi að íbúar fái að kjósa um málið segir hann það ekki hafa verið rætt sérstak­lega „en það er þó hverjum degi ljósara að ef til dæmis þarf að breyta skipulagi þá verður aðkoma íbúa tryggð“.

Guðmundi hugnast hins vegar hugmyndin alls ekki. Starfsemin yrði af þeirri stærðar­gráðu að hún myndi hafa mikil áhrif, ekki síst í litlu samfélagi eins og Þorláks­höfn. „Þó að þetta myndi skila tekjum með hafnar­gjöldum og fleiru þá verðum við að hugsa um hverju við erum að fórna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár