Hélt að þingmaður Pírata væri varaþingmaður en gefur lítið fyrir gagnrýni á mætingarleysi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrr­verandi forsætis­ráðherra og þingmaður Framsóknar­flokksins, mætir illa til vinnu og hélt að þingmaður Pírata væri vara­þingmaður. Hann blandar eiginkonu sinni inn í umræðuna um mætingar­leysi sitt og segir að hún sé orðin „lang­þreytt á biðinni“ eftir því að einhver skammi sig að vanrækja fjöl­skylduna.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrr­verandi forsætis­ráðherra og þingmaður Framsóknar­flokksins, brást í kvöld við gagnrýni sem hann hefur sætt fyrir að mæta illa til vinnu. Í svari sínu kallar hann þingmann Pírata, Smára McCarthy, vara­þingmann. Smári er í hópi þeirra þingmanna sem hafa haldið flestar þingræður og talað hvað lengst eftir að þing kom saman í desember. 

„Það er langt síðan ég hætti að nenna að svara nettröllum, jafnvel þótt þau detti inn á Alþingi. Ég ætla þó að gera smá undan­tekningu því frúin er að ergja sig á því að kunnug­legir hrekkja­lómar séu að reyna að halda því fram að ég sinni ekki vinnunni. Hún er nefnilega orðin lang­þreytt á biðinni eftir að einhver skammi mig fyrir hið gagnstæða, þ.e. að vanrækja fjöl­skylduna,“ skrifar Sigmundur í stöðu­uppfærslu sem hann birti á Facebook. „Henni fannst því fokið í flest skjól þegar að ónefndur frétta­maður Vísis hafði eftir vara­þingmanni Pírata að ég væri ekki nógu mikið í vinnunni og það daginn eftir að hún spurði hvort ég væri alveg búinn að gleyma að ég ætti fjöl­skyldu.“

Í fréttinni sem Sigmundur Davíð vísar til er vitnað í orð Smára McCarthy, þingmanns Pírata, sem segir að sér kross­bregði í hvert skipti sem hann sjái Sigmund í þing­húsinu. 

Smári bregst við ummælum Sigmundar og skrifar:

„Ef þú mættir aðeins oftar, eins og lög kveða á um, þá myndirðu vita að ég er ekki vara­þingmaður. Öll sinnum við fundum og ýmiskonar störfum þingmanna langt frá Austur­velli (í augna­blikinu er ég að sinna þing­störfum í 7400km fjarlægð frá Austur­velli, til dæmis), en flestir þingmenn sjá sér samt fært að mæta á nefndar­fundi og atkvæða­greiðslur, þó ekki sé annað.“

Þá leggur Viktor Orri Valgarðsson, vara­þingmaður Pírata, orð í belg og spyr Sigmund hvort hann viti í alvörunni ekki að Smári McCarthy er Alþingis­maður. 

„Þegar þú segir "vara­þingmaður Pírata" þá ertu væntanlega að vísa í Smára McCarthy þingmann, þar sem fyrirsögn Vísis er tilvitnun í hans orð og Helgi Bergmann er hvorki þingmaður né vara­þingmaður Pírata. Vissirðu í alvöru alvöru ekki að Smári er alþingis­maður? Þú ættir í alvöru að mæta oftar,“ skrifar Viktor og bætir við: „Það er sko mjög lítið vandamál fyrir alla aðra þingmenn að fylgja (í mismiklum mæli) lögum um mætingu þingmanna á fundi þings og fasta­nefnda, jafnframt því að sinna öðrum hlutum starfsins og kjördæma sinna. Hvað ertu eiginlega búinn að vera að gera svona miklu meira utan þingsins en aðrir þingmenn á þessu þingi, að þú hefur ómögulega getað mætt eða boðað forföll á fleiri en örfáa þingfundi, eða á fleiri en 4 nefndar­fundi af 13?“

Frá því Alþingi var sett þann 6. desember hefur Sigmundur Davíð verið fjar­verandi í 87 prósent atkvæða­greiðsla. Hann var seinast viðstaddur í atkvæða­greiðslu þann 22. desember á seinasta ári þegar hann samþykkti mál um frestun á fundum Alþingis. Síðan þá hefur hann verið fjar­verandi og ekki kallað inn varamann í sinn stað. Auk þingsetu er Sigmundur Davíð aðalmaður í utan­ríkismála­nefnd. Fastir fundir í nefndinni eru á þriðjudögum og fimmtudögum en frá því nefndin hóf störf sín í lok janúar hefur Sigmundur aðeins mætt á fimm fundi af 19. Þegar hann hefur mætt hefur hann mætt of seint, fyrir utan eitt skipti. Mest hefur Sigmundur komið einum klukku­tíma og 41 mínútu of seint, en þeim fundi var slitið 19 mínútum síðar.

Sigmundur Davíð þiggur þing­fararkaup sem nemur um 1,1 milljón króna á mánuði. Í ljósi þess að Sigmundur er þingmaður í Norðaustur­kjördæmi, eftir að hann skráði sig til heimilis á eyðibýli í eigu tengda­foreldra sinna á Fljótsdals­héraði, á hann rétt á samtals 204 þúsund krónur á mánuði í skatt­frjálsar tekjur vegna húsnæðis- og dvalar­kostnaðar, ferða­kostnaðar og starfs­kostnaðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár