Hagvöxtur eykst í Kína í fyrsta skipti frá árinu 2010

Þrátt fyrir að hagvöxtur hafi verið 6,9 prósent í Kína í fyrra, þá hefur Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn varað við því að undan­förnu að skulda­staða í banka­kerfinu sé komin á „hættulegt stig“.

Hagvöxturinn í Kína, fjölmennasta ríki heims með 1,4 milljarða íbúa­fjölda, var meiri á síðasta ári en spár og markmið yfirvalda gerðu ráð fyrir. Hann var 6,9 prósent en spár höfðu gert ráð fyrir 6,5 prósent, samkvæmt umfjöllun breska ríkis­útvarpsins BBC.

Þetta er í fyrsta skipti síðan árið 2010 sem hagvaxtar­prósentan hækkar á milli ára.

Þykir þetta benda til þess að heims­búskapurinn sé jafnvel að rétt enn meira úr kútnum en grein­endur höfðu þó gefið til kynna.

Útflutningur var meiri en gert var ráð fyrir, og þá höfðu gífurlega umfangs­miklar innviða­fjár­festingar, ekki síst á sviði orkugeira og samgangna, jákvæð áhrif á hagvöxt.

Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn hefur þó að undan­förnu bent á að mikil áhætta hafi safnast upp í efnahags­lífinu í Kína, einkum vegna aukinna skulda og vanskila í banka­kerfinu.

Í álags­prófum sem framkvæmd voru á 33 bönkum í landinu bentu niður­stöðurnar til þess að 27 bankar þyrftu meira fjármagn.

Í skýrslu AGS var sagt að skulda­staðan í Kína, ekki síst hjá bönkum, sveitar­félögum og húsnæðis­lánasjóðum, væri komin á „hættulegt stig“. Yfirvöld hafa gert lítið úr þessu, og sagt að þau hafi fulla stjórn á hagstjórninni, og að vanda­málin muni ekki komast á óviðráðanlegt stig.

AGS hefur þó krafist þess, að gripið verði til aðgerða og hugað verði að helstu áhættu­þáttum í hagkerfinu, til að draga úr líkum á áföllum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár