Flugfreyjufélagið hafnar lokatilboði Icelandair

Forstjóri Icelandair segir það mikil vonbrigði að tilboði félagsins hafi verið hafnað. Nýr kjara­samningur er talin forsenda þess að hægt verði að ná í nýtt hlutafé inn í Icelandair.

Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason er for­stjóri Icelandair. Mynd: Skjáskot/RÚV

Flugfreyju­félags Íslands (FFÍ) hefur hafnað loka­tilboði um nýjan kjara­samning frá Icelandair. Viðræður milli deilu­aðila hafa staðið yfir um nokkurra vikna skeið enda hefur verið greint frá því að gerð kjara­samnings við lykil­stéttir sé ein af forsendum þess að Icelandair geti sótt sér nálægt 30 milljörðum króna í nýtt hlutafé. Áður höfðu samninga­nefndir Icelandair og FFÍ átt í viðræðum í um 16 mánuði án þess að niður­staða fengist í kjaramál flug­freyja og flugþjóna. Icelandair hefur þegar náð samningum við flug­virkja og flugmenn.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir þessa niður­stöðu mikil vonbrigði. „Þetta var okkar loka­tilboð og byggir það á sama grunni og þeir samningar sem gerðir hafa verið við stéttar­félög flugmanna og flug­virkja. Í tilboðinu eru fólgnar grunn­launa­hækkanir, aukinn sveigjanleiki varðandi vinnutíma en á sama tíma tryggir það samkeppnis­hæfni og sveigjanleika Icelandair. Því miður verður ekki lengra komist í viðræðum við Flugfreyju­félag Íslands og þurfum við nú að skoða aðrar leiðir. Við ætlum okkur að koma félaginu í gegnum þær krefjandi aðstæður sem nú ríkja og styrkja rekstur þess til framtíðar.”

Í tilkynningu frá félaginu segir að eftir að FFÍ lagði fram tillögur sem ræddar hafi verið í morgun ítrekaði Icelandair loka­tilboð sitt sem tók mið af þeirri umræðu sem fór fram, að því marki sem félagið treysti sér til. Í kjölfarið hafnaði samninga­nefnd FFÍ tilboði Icelandair. „Að mati Icelandair eru tillögur FFÍ þess eðlis að samningurinn fari í kjölfarið langt frá þeim markmiðum sem sett voru í kjara­viðræðum félagsins við stéttar­félög flug­stétta, en Icelandair hefur þegar gert langtíma­samninga við Félag íslenskra atvinnu­flugmanna (FÍA) og Flugvirkja­félag Íslands (FVFÍ). Þeir samningar kveða í megin­atriðum á um sveigjanleika og viðbót við vinnu­skyldu og styðja þar með við markmið Icelandair Group um að auka samkeppnis­hæfni félagsins á alþjóða­markaði en á sama tíma verja ráðstöfunar­tekjur starfs­fólks og tryggja því gott starfs­umhverfi.“

Icelandair segir að tilboðið sem hafi verið hafnað hafi inni­haldið eftir­gjafir frá fyrra tilboði Icelandair sem áttu að koma til móts við þau sjónarmið félags­manna þá. „Tilboðið fól meðal annars í sér hækkun allra grunn­launa, með sérstakri áherslu á lægstu laun, val um starfs­hlutfall, að flugstunda­hámörk innan mánaðar væru færð niður, auk þess sem skorður voru settar um hámarks­fjölda laus­ráðinna flug­freyja og flugþjóna.“

Icelandair Group tilkynnti í lok síðasta mánaðar að félagið ætlaði að auka hlutafé sitt um 30 þús­und milljón hluti. Útgefið hlutafé í dag er 5.437.660.653 hlut­ir. Núver­andi eign hlut­hafa verður því 15,3 pró­sent af útgefnu hlutafé ef það tekst að selja alla ætl­uðu hluta­fjár­aukn­ing­una.

Fyr­ir­hugað hluta­fjár­út­boð, sem verður almennt og fer fram í júní­mán­uði, á að safna rúm­lega 29 millj­örðum króna, eða 200 millj­ónum Banda­ríkja­dala, í aukið hluta­fé. Miðað við það má ætla að til standi að selja hvern hlut í hluta­fjár­út­boð­inu á rúm­lega eina krónu á hlut.

Tekin verður ákvörðun um hvort að af útboðinu verði á hluthafa­fundi sem haldinn verður á föstudag, 22. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár