Keyptu Fjaðrárgljúfur fyrir 280 milljónir króna

Félagið Hveraberg ehf. hefur keypt jörðina Heiði en innan hennar er náttúru­perlan Fjaðrár­gljúfur. Kaup­verðið, samkvæmt kaup­tilboði sem Kjarninn fékk afhent, er 280 milljónir króna. Til stendur að rukka bílastæða­gjald af ferða­mönnum.

Fjaðrárgljúfur er vinsæll viðkomustaður ferðamanna.
Fjaðrár­gljúfur er vin­sæll við­komu­staður ferða­manna.

Félagið Hveraberg ehf. er kaupandi jarðarinnar Heiði í Skaftár­hreppi þar sem Fjaðrár­gljúfur er að finna. Brynjólfur Baldursson er framkvæmda­stjóri félagsins og skrifaði undir kaup­tilboðið fyrir hönd þess. Íslenska ríkið hafði forkaups­rétt á Heiði en nýtti hann ekki. Umhverfis-, orku- og loftslags­ráðuneytið og Hveraberg ætla samkvæmt samkomu­lagi að vinna að frið­lýsingu svæðisins „enda telja aðilar hagsmunum gljúfursins best borgið með frið­lýsingu,“ sagði í tilkynningu frá ráðuneytinu í morgun.

Kjarninn óskaði eftir því við ráðuneytið að fá sendar upplýsingar um kaup­andann og samkomu­lagið sem gert var við hann. Við þeirri beiðni varð ráðuneytið og samkvæmt kaup­tilboði sem er meðal gagna greiddi Hveraberg ehf. 280 milljónir króna fyrir jörðina Heiði en náttúru­perlan Fjaðrár­gljúfur, sem er á náttúru­verndar­skrá, er á mörkum hennar og jarðarinnar Holts.

Félagið Hveraberg ehf. var stofnað árið 2017 og hefur verið leiðandi í uppbyggingu Gróður­hússins í Hvera­gerði, en í þeirri byggingu er hótel, auk mathallar og verslunar­rýmis. Samkvæmt ársreikningi félagsins frá árinu 2020 er Brynjólfur Baldursson eini eigandi félagsins í gegnum félag sitt Eldborg Capital ehf. Brynjólfur á einnig hlut í Reykja­dals­félaginu sem hefur unnið að uppbyggingu ferða­þjónustu við rætur göngu­leiðarinnar upp í Reykjadal ofan Hvera­gerðis. Brynjólfur var á árum áður í fjármála­geiranum og tók þátt í að stofna Alfa verðbréf, sem MP banki keypti árið 2011. Brynjólfur varð í kjölfarið framkvæmda­stjóri eigna­stýringar hjá MP Banka, sem nú heitir Kvika banki.

Eigendur jarðarinnar Heiði voru samkvæmt kaup­tilboðinu sex talsins og áttu fimm þeirra jafnan hlut, 13,3 prósent. Þorbjörn Bjarnason átti svo stærstan hlut, 33,32 prósent. Samkvæmt tilboðinu átti að greiða kaup­verðið út með peningum við undir­ritun kaup­samnings og nýju láni frá lána­stofnun gegn skilyrtu veðleyfi sem greiða á að þing­lýsingu lokinni. Kaup­tilboðið var undir­ritað 10. mars.

Í apríl barst ráðuneytinu erindi þar sem óskað var afstöðu ríkis­sjóðs til nýtingar forkaups­réttar vegna sölunnar á jörðinni. Samkvæmt lögum um náttúru­vernd hefur ríkis­sjóður forkaups­rétt að jörðum og öðrum landareignum sem eru að hluta eða öllu leyti á náttúru­minjaskrá.

Er það mat ráðuneytisins að verndar­þörf á svæðinu sé talsverð vegna mikils ágangs ferða­manna en hægt sé að ná markmiðum verndar án þess að ríkið gangi inn í kaupin, sagði í tilkynningu ráðuneytisins í morgun. „Með frið­lýsingu svæðisins og samkomu­lagi við nýjan eiganda verður vernd svæðisins og nauðsynleg uppbygging sameiginlegt verkefni ríkisins og nýs eiganda.“

Samkvæmt samkomu­laginu skuld­bindur nýr eigandi jarðarinnar sig til að vinna „í fullu samstarfi við Umhverfis­stofnun að frið­lýsingu Fjaðrárgjúfurs sem náttúru­vætti, samkvæmt ákvæðum laga um náttúru­vernd“.

„Hófleg“ gjöld

Hveraberg áformar að taka „hófleg bílastæða­gjöld til að byggja upp þjónustu“ á svæðinu en samkvæmt samkomu­laginu við ráðuneytið skulu gjöldin ekki verða til þess að skerða eða tálma frjálsa för einstaklinga, sem ekki nýta bíla­stæðið um hið friðlýsta svæði, eða grann­svæði þess samkvæmt reglum náttúru­verndar­laga um almanna­rétt.

Innheimta og ráðstöfun gjalda sem tekin kunna að verða vegna lagningu vélknúinna farar­tækja skal alfarið renna til uppbyggingar þjónustu, reksturs og innviða fyrir þá sem ferðast um svæðið.

Félagið ætlar að reisa þjónustu­miðstöð á jörðinni, þar sem gestum verður veitt grunn­þjónusta í formi m.a. veitinga, salernis og verslana.

Eigendur annarra jarða sem Fjaðrár­gljúfur er hluti af hafa einnig lýst sig viljuga til að vinna að frið­lýsingu gljúfursins.

Ríkið heldur forkaupsrétti

„Það er ánægjulegt að samkomulag hafi náðst við kaupanda Fjaðrár­gljúfurs um vernd svæðisins og eðlilegt að ríkið og eigendur standi saman að uppbyggingu þessarar náttúru­perlu sem ferðamenn njóta þess að heimsækja,“ var haft eftir Guðlaugi Þór Þórðar­syni, umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra í tilkynningunni.

Forkaups­réttur ríkisins hvílir áfram á jörðinni komi hún aftur til eigenda­skipta.

Fjaðrár­gljúfur er stór­brotið og hrikalegt, um 100 metra djúpt og um tveir kíló­metrar að lengd, segir í upplýsingum um þetta náttúru­fyrirbæri á vef jarð­vangsins Kötlu. Gljúfrið er veggbratt, örlítið hlykkjótt og þröngt. Berg­grunnurinn í Fjaðrár­gljúfri er að mestu móberg frá kulda­skeiðum ísaldar og telst um tveggja milljóna ára gamalt. Fjaðrá á upptök sín í Geir­landshrauni og fellur fram af heiðar­brúninni í þessu mikilfeng­lega gljúfri þar til hún skilar sér niður í Skaftá. Fjaðrá er bergvatnsá og ljóst er að hún hefur breyst mikið í tímans rás. Fjaðrár­gljúfur er á náttúru­minjaskrá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár