Tilskipun bindur endi á aðskilnað barna frá foreldrum

Vaxandi þrýstingur var á Donald Trump Bandaríkja­forseta, bæði meðal Repúblikana og Demókrata, um að binda endi á aðskilnað barna og foreldra þeirra meðal ólöglegra innflytjenda.

Donald Trump Bandaríkja­forseti undir­ritaði í dag forseta­tilskipun (e. order) þar sem mælt er fyrir um það, að hætt verði að skilja að börn og foreldra ólöglegra innflytjenda á landa­mærum Mexíkó og Banda­ríkjanna, á meðan réttað er í málum foreldrana.

Óhætt er að segja að þær aðgerðir bandarískra yfirvalda, að aðskilja börn frá foreldrum sínum og geyma þau í búrum á meðan, hafi fallið í grýttan jarðveg víða, en síðustu fjórar forseta­frúr Banda­ríkjanna, þar á meðal Melania Trump, núverandi forsetafrú, mótmæltu þessum aðgerðum með yfir­lýsingum á síðustu tveimur dögum.

Trump hefur kennt Demó­krötum í þinginu um, og sagt að það sé einungis verið að fram­fylgja lögum. Á það hefur verið bent, að það sé í reynd ekki raunin, heldur hafi stefnu­breyting yfirvalda, frá því í apríl, leitt til þessara aðgerða. Jeff Sessions, dómsmála­ráðherra, hefur varið aðgerðirnar meðal annars með tilvitnunum í biblíuna.

„Þetta snýst um að fjöl­skyld­ur séu sam­an,“ sagði Trump þegar hann und­ir­ritaði til­skip­un­ina við form­lega at­höfn í Washingt­on. „Ég var ekki hrif­inn af því að fjöl­skyld­ur voru aðskild­ar,“ bætti hann við.

Hann sagði samt, að áfram yrði horft til þess að loka landa­mærum Banda­ríkjanna fyrir þeim sem koma ólöglega til landsins, til að tryggja öryggi og ná stjórn á landa­mærunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár