Þarf að hækka leiguna hjá stærsta leigufélagi Íslands?: Vaxtagjöldin 330 milljónum hærri en rekstrarhagnaðurinn

Heima­vellir skil­uðu 2,7 millj­arða króna hagn­aði í fyrra en sá hagn­aður er til­kom­inn af bók­færðri hækkun á um 2000 íbúðum fyr­ir­tæk­is­ins en ekki af sterkum rekstri. Fram­kvæmda­stjór­inn segir vaxta­kostn­að­inn vera háan og að mark­miðið með skrán­ingu Heima­valla á markað sé að lækka vaxta­kostn­að­inn.

Hagnaður stærsta leigufélagsins byggir á fasteignabólunni
Hagnaður stærsta leigu­fé­lags­ins byggir á fast­eigna­bólunni Bók­færður hagn­aður stærsta leigu­fé­lags Íslands byggir á bók­færðri hækkun fast­eigna­verð en ekki á sterkum kjarna­rekstri. Munurinn á vaxta­gjöldum og rekstr­ar­hagn­aði Heima­valla er rúm­lega 300 millj­ónir áður en mats­breyt­ing fast­eigna kemur til sög­unnar. Mynd: Shutterstock

Fjár­magns­kostn­aður leigu­fé­lags­ins Heima­valla var rúm­lega 300 millj­ónum krónum hærri en hagn­að­ur­inn af rekstri félags­ins áður en bók­færð verð­hækkun á fast­eignum fyr­ir­tæk­is­ins er tekin með í reikn­ing­inn. Þetta þýðir að það kost­aði 337 millj­ón­unum krónum meira, 1959 millj­ónir króna, að greiða af lánum Heima­valla en fyr­ir­tækið fékk í kass­ann fyrir leigu fast­eigna sinna eftir að búið var að greiða allan rekstr­ar­kostnað þeirra, 1622 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Heima­valla fyrir árið 2017 sem gerður var opin­ber í dag. 

Í frétta­til­kynn­ingu frá Heima­völlum kemur fram að hagn­aður fyr­ir­tæk­is­ins hafi numið 2,7 millj­örðum króna árið 2017. Þennan hagnað má rekja til „mats­breyt­inga á fjár­fest­ing­ar­eignum“, það er að segja til hækk­andi verð­mats á íbúðum fyr­ir­tæk­is­ins sem voru um 2000 tals­ins í lok síð­asta árs. Heima­vellir munu taka við rúm­lega 300 nýjum íbúðum á þessum ári sem bæt­ast við þessa 2000.

Ekki má rugla þess konar hagn­aði af hækkun fjár­fest­ing­ar­eigna saman …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár