Aukin sjálfvirkni í atvinnulífi gæti þurrkað út helming starfa

Í nýrri skýrslu OECD segir að ríki þurfi að bregðast hratt við vegna aukinnar sjálf­virkni í atvinnu­lífi.

Aukin sjálf­virkni í atvinnu­lífi mun þurrka út allt að helming starfa á næstu 20 árum og reynda á innviði samfélaga með fordæma­lausum hætti.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu OECD, en til hennar er vitnað í umfjöllun Bloomberg. Þar segir að þróun sem nú sé að eiga sér stað, þegar kemur að sjálf­virkni, meðal annars með notkun gervi­greindar, muni breyta í grundvallar­atriðum hvernig gangverk fram­leiðslu gengur fyrir sig.

Stefano Scarpetta, framkvæmda­stjóri málefna vinnu­markaðar hjá OECD, segir í viðtali við Bloomberg að þjóðir heimsins þurfi að bregðast við með mun meira hraða heldur en nú þekkist, til að geta aðlagað samfélögin að breyttu landslagi þegar kemur að atvinnu­markaðnum. Störf muni hverfa, önnur koma í staðinn og mörg atriði sem snúi að menntun starfs­fólks á vinnu­markaði þurfi að breytast.

Samkvæmt skýrslu OECD er það ekki síst staða ungs fólks og kvenna í láglauna­störfum sem er viðkvæm, en talið er að aukin sjálf­virkni geti haft verulega mikil og hröð áhrif á atvinnu­möguleika margra sem þessum hópum tilheyra á næstu 10 til 20 árum. Til að ekki komi til mikils atvinnu­leysis og erfið­leika, þurfi að vinna að því að auka sveigjanleika vinnuafls með aukinni menntun og færni á þeim sviðum sem ný tækni og sjálf­virkni geti opnað á ný tækifæri.

Lilja Alfreðs­dótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hefur sagt að í ljósi fjórðu iðn­bylt­ing­ar­innar og þeirrar sjálf­virkni­væð­ingar sem sé fyrir dyrum þá þurfi Íslands að takast á við þær áskor­anir að fjölga iðn- og tækni­mennt­uðu fólki.

Þetta kom meðal annars fram í viðtali við hann Hringbraut í mars síðastliðnum.

Hún telur að sjálf­virkni­væð­ingin verði góð fyrir fámenna þjóð eins og Ísland. „Það sem okkur hefur oft­ast skort er vinnu­afl. En núna þegar við erum komin með þessa tækni og við erum að fjár­festa í henni og við erum með mannauð­inn þá á okkur að vegna vel á næstu árum. En þá þurfum við að hafa öfl­ugt mennta­kerfi til að búa til þessa þekk­ingu. Og þess vegna er ég að segja að grunn­ur­inn að þessu öllu eru kenn­ar­arnir í land­in­u,“ sagði Lilja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár