Telur að sjálvirknivæðingin verði góð fyrir Ísland

Lilja Alfreðs­dóttir segir að þjóð eins og Ísland, sem skorti oft­ast vinnu­afl, muni njóta góðs af því þegar tækni­fram­farir stuðli að auk­inni sjálf­virkni.

Lilja Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, segir að í ljósi fjórðu iðn­bylt­ing­ar­innar og þeirrar sjálf­virkni­væð­ingar sem sé fyrir dyrum þá þurfi Íslands að takast á við þær áskor­anir að fjölga iðn- og tækni­mennt­uðu fólki.

Hún telur að sjálf­virkni­væð­ingin verði góð fyrir fámenna þjóð eins og Ísland. „Það sem okkur hefur oft­ast skort er vinnu­afl. En núna þegar við erum komin með þessa tækni og við erum að fjár­festa í henni og við erum með mannauð­inn þá á okkur að vegna vel á næstu árum. En þá þurfum við að hafa öfl­ugt mennta­kerfi til að búa til þessa þekk­ingu. Og þess vegna er ég að segja að grunn­ur­inn að þessu öllu eru kenn­ar­arnir í land­inu.“

[adspot]Þetta er meðal þess sem Lilja sagði í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Lilja sagði að Íslend­ingar þurfi hik­laust að grípa til aðgerða vegna þessa.

Þegar litið sé á þann fjölda sem útskrif­ist starfs-, iðn- og tækni­grein­unum þá séu allt önnur hlut­föll hjá okkur en til að mynda á Norð­ur­lönd­unum og önnur ríki sem standi mjög fram­ar­lega í þessum málum. „Við ætlum að fjölga iðn­mennt­uðum og þeim sem eru í tækni­greinum og erum búin að vera að for­gangs­raða fjár­munum í þá veru. Við höfum verið að auð­velda aðgengi með því að fella niður efn­is­gjöld í þessum greinum. En þarna þurfum við að gera meira.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár