ESB vinsælla eftir Brexit

Svo virðist sem útganga Breta úr ESB hafi orðið til þess að fleiri Danir vilji vera í sambandinu.
Svo virð­ist sem útganga Breta úr ESB hafi orðið til þess að fleiri Danir vilji vera í sam­band­inu. Mynd: EPA

Mun fleiri Danir vilja vera í Evr­ópu­sam­band­inu en áður, eftir að Bretar kusu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu að yfir­gefa sam­bandið. Svo virð­ist sem Brexit hafi breytt afstöðu Dana til ESB á skjótan hátt. Þetta kemur fram í tveimur skoð­ana­könn­unum sem fyr­ir­tækið Voxmeter gerði fyrir Ritzau-frétta­stof­una sýna fram á þetta og RÚV greinir frá. Þeim hefur einnig fækkað mjög, sem vilja kosn­ingar um aðild­ina.

Í könnun sem gerð var í vik­unni fyrir Brexit-kosn­ing­arnar sögð­ust 40 pró­sent danskra kjós­enda vilja gera eins og Bretar og kjósa um áfram­hald­andi veru Dan­merkur í ESB. Í sams­konar könnun sem gerð var í vik­unni eftir Brexit-kosn­ing­arnar hafði þeim fækkað niður í 32 pró­sent.

Eftir Brexit sögð­ust um 70 pró­sent Dana vilja vera áfram í ESB, en hlut­fallið var um 60 pró­sent áður. 22 pró­sent töldu vildu að Danmörk yfir­gæfi ESB fyrir Brexit, en þeim fækk­aði niður í 18,2 eftir kosn­ing­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár