New York Times kaupir The Athletic og nælir sér í 1,2 milljónir áskrifenda

Þrátt fyrir að The Athletic hafi aldrei náð að skila hagnaði frá stofnun miðilsins árið 2016 stendur nú til að New York Times kaupi vefmiðilinn, sem einbeitir sér að íþrótta­umfjöllun á dýptina, á jafnvirði rúmlega 70 milljarða króna.

The Athletic kom eins og stormsveipur yfir Atlantshafið til Bretlands árið 2019 og sópaði til sín mörgum af þekktustu fótboltablaðamönnum landsins.
The Athletic kom eins og storm­sveipur yfir Atl­ants­hafið til Bret­lands árið 2019 og sóp­aði til sín mörgum af þekkt­ustu fót­bolta­blaða­mönnum lands­ins. Mynd: The Athletic

Útgáfu­félag New York Times, New York Times Company, hefur komist að samkomu­lagi um kaup á íþrótta­vefmiðlinum The Athletic. Bandaríska stór­blaðið mun greiða 550 milljón dali, jafnvirði yfir 70 milljarða íslenskra króna, fyrir vefmiðilinn, sem stofnaður var árið 2016.

The Athletic hefur aldrei skilað hagnaði, en hefur náð að safna 1,2 milljónum áskrifenda á heimsvísu. Íþrótta­miðillinn hefur lagt áherslu á dýpri frétta­flutning og greiningar úr heimi íþrótta og hefur það vakið mikla athygli hvernig miðillinn hefur sópað til sín mörgum af öflugustu íþrótta­skríbentum rótgrónari miðla í Banda­ríkjunum og síðar Bretlandi.

Í frétt um þessi viðskipti á vef New York Times segir að kaupin á The Athletic færi New York Times nær markmiði blaðsins að vera komið með 10 milljónir áskrifenda á heimsvísu árið 2025. Auk þess muni kaupin færa áskrifendum New York Times dýpri umfjöllun um þau rúmlega 200 íþrótt­alið í Norður-Ameríku, Bretlandi og á megin­landi Evrópu sem blaðamenn The Atletic fylgist sérstak­lega með.

Til stendur að rekstur The Athletic verði áfram í þeirri mynd sem hann er nú og að ritstjórn miðilsins verði sjálfstæð og óháð ritstjórn New York Times. Áskriftir að The Athletic verða fyrst um sinn seldar stakar, en síðar verður boðið upp á þær sem hluta af áskriftar­pakka New York Times. New York Times mun áfram reka sína eigin íþrótta­deild.

Trúðu því að fólk vildi borga fyrir betri íþróttafréttir

Sem áður segir fór The Athletic fyrst í loftið árið 2016, en stofn­endur miðilsins eru þeir Alex Mather og Adam Hansmann, sem áður störfuðu saman hjá fyrir­tækinu Strava. Miðillinn var stofnaður í Chicago og fyrst um sinn beindist umfjöllunin aðallega að íþrótta­liðunum þar í borg, en síðan færði miðillinn út kvíarnar og fór frá borg í borg í Banda­ríkjunum og Kanada og kippti til sín færum íþrótta­frétta­mönnum sem höfðu sérþekkingu á þeim liðum og íþrótta­greinum sem þar störfuðu.

Árið 2019 heyrðu íslenskir íþrótta­áhugamenn ef til margir um þennan miðil í fyrsta skipti, en þá færði The Athletic sig yfir Atlantshafið til Bretlands og hóf að fjalla af krafti um ensku knatt­spyrnuna. Réði miðillinn meðal annars til sín helstu fótbolta­blaða­mennina af bæði breska ríkis­útvarpinu BBC og blaðinu Guardian.

Hugsunin hjá Mather og Hansmann var frá upphafi sú að forfallnir íþrótta­áhugamenn væru ekki að fá þá tegund umfjöllunar um sín uppáhalds íþrótt­alið í þeim fjöl­miðlum sem væru starfandi á markaði, enda ættu flestir þeirra erfitt uppdráttar og oft væri byrjað á því að skera niður í íþrótta­umfjöllun.

Þeir höfðu þá trú að notendur yrðu tilbúnir að greiða fyrir góða frétta­mennsku og fram­setningu, gott snjall­símaforrit og auglýsinga­leysi. Í ljós hefur komið að fjöldi íþrótta­áhugamanna um heim allan er tilbúinn að greiða fyrir slíka áskrift, en áskrifendurnir voru orðnir 1,2 milljónir talsins í desember, samkvæmt frétta­tilkynningu frá New York Times Company.

Reiknað með hagnaði eftir þrjú ár

Þessi töluverði fjöldi áskrifenda hefur þó ekki reynst nægur til að skila hagnaði og það er af þeim sökum sem stofnendurnir hafa nú um nokkurt skeið verið að reyna að selja félagið.

Alls eru um 600 manns starfandi hjá The Athletic – þar af um 400 á ritstjórn og nam tap félagsins um 55 milljónum dala, 7 milljörðum króna, árið 2020. Ekki stendur til að segja upp fólki þegar kaupin ganga í gegn, en búist er við að það verði fyrir 1. apríl.

Í tilkynningunni frá Times segir að búist sé við að kaupin hafi neikvæð áhrif á afkomu félagsins í um það bil þrjú ár, en að með auknum vexti og uppbyggingu auglýsinga­kerfis hjá The Athletic verði reksturinn byrjaður að skila móður­félaginu hagnaði að þeim tíma loknum.

Stofnendurnir Mather og Hansmann munu áfram leiða The Athletic í lykil­stjórnenda­hlutverkum, en David Perpich, sem er stjórn­andi hjá New York Times Company, verður útgefandi miðilsins.

Í tilkynningu er Perpich sagður hafa mikla reynslu að baki í því að fjölga stafrænum áskrifendum og stækka ýmsar vörur hjá New York Times. Hann er meðal annars sagður maðurinn á bak við bæði matreiðslu- og leikjavef New York Times, sem hafa á síðustu árum orðið miklar tekju­lindir fyrir fjölmiðla­fyrirtækið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár