Lagt til að styrkjakerfi við einkarekna fjölmiðla verði framlengt um tvö ár

Ef drög að breytingum á fjölmiðla­lögum verða samþykkt mun verða tilgreind í þeim að fjöl­miðlar séu hornsteinn lýðræðis. Árlegur kostnaður ríkis­sjóðs af styrkja­kerfinu er 400 milljónir króna á ári. Von er á nýju frumvarpi til fimm ára á næsta ári.

Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Menningar- og viðskipta­ráðuneytið, sem stýrt er af Lilju D. Alfreðs­dóttur, hefur birt drög að frumvarpi um breytingar á ákvæðum fjölmiðla­laga er varða stuðning til einka­rekinna fjölmiðla í Samráðs­gátt stjórn­valda.

Helsti tilgangur frum­varpsins er að fram­lengja stuðning ríkis­sjóðs við einka­rekna fjölmiðla, sem hefur verið í gildi frá 1. ágúst 2021 en á að óbreyttu að renna út í lok þessa árs, um tvö ár. Verði frum­varpið að lögum munu styrkirnir því áfram verða greiddir úr á árunum 2023 og 2024. Gert er ráð fyrir að árlegur kostnaður ríkis­sjóðs verði allt að 400 milljónir króna á ári. Þá er lagt til orðalags­breyting í markmiðs­ákvæði laganna þess efnis að mælt verði fyrir um að fjöl­miðlar séu hornsteinn lýðræðis.

Samkvæmt drögunum er stefna stjórn­valda að innan þessara ára verði „lagt fram nýtt frumvarp til fimm ára sem sé í takt við þá þróun sem er að verða á hinum Norður­löndunum. Þannig verður Ísland ekki eftir­bátur hinna landanna er kemur að stuðningi við einka­rekna fjölmiðla.“

Ekki er tilgreint hvað eigi að felast í hinu nýja frumvarpi til fimm ára en heimildir Kjarnans herma að stefnt sé að því að leggja það fram næsta vor.

Ísland verði ekki eftirbátur hinna Norðurlandanna

Í greinar­gerð sem fylgir frumvarps­drögunum segir að við mat á stuðningi ársins 2021 hafi mátt greina að sá stuðningur sem einka­reknir fjöl­miðlar fengu hafi nýst afar vel. „Stuðningur við einka­rekna fjölmiðla hefur meðal annars gert sumum fjöl­miðlum kleift að fjölga stöðu­gildum á ritstjórn, halda útgáfu óbreyttri, komið í veg fyrir frekara aðhald í rekstri og bætt aðstöðu blaða­manna, svo fátt eitt sé nefnt. Styrk­þegar eru sammála um að styrkurinn hafi skipt miklu máli. Þrátt fyrir framan­greint hefur komið fram gagnrýni að stuðnings­kerfið sé ekki nægilega fyrir­sjáanlegt en gildis­tími kafla laganna um stuðning við einka­rekna fjölmiðla var einungis til tveggja ára. Til að auka fyrirsjáanleika og stöðug­leika kerfisins er gert ráð fyrir að fram­lengja gildis­tíma kaflans til tveggja ára og skipa úthlutunar­nefnd til sama tíma.“

Þar er einnig farið yfir að í Danmörku, Noregi og Svíþjóð sé unnið að umfangs­miklum breytingum á stuðningi við einka­rekna fjölmiðla. „Í þessum löndum virðist þróunin vera sú að auka fjármagn til úthlutunar en lækka þak einstakra styrkja. Þegar þetta er ritað hafa drög að frum­vörpum þess efnis ekki verið birt. Í ljósi þess að gífurlega miklar breytingar eru í vændum á stuðnings­kerfum Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar og þeirrar miklu reynslu sem framan­greind lönd hafa af fjölmiðla­styrkjum verður gildis­tími laga­ákvæða samkvæmt frumvarpi þessu aðeins tvö ár, með það að markmiði að innan þess tíma verði lagt fram frumvarp til laga með gildis­tíma til fimm ára sem sé í takt við þróun annars staðar á Norður­löndum. Þannig verði Ísland ekki eftir­bátur hinna landanna er kemur að stuðningi við einka­rekna fjölmiðla.“

Ísland er sem stendur í 15. sæti á lista samtak­anna Blaðamenn án landamæra um fjölmiðla­frelsi í heiminum. Noregur, Svíþjóð og Danmörk eru í efstu sætum þess lista.

25 fjölmiðlar fengu styrk í ár

Aðrar smávægilegar breytingar verða gerðar á lögunum. Þannig verður umsóknar­frestur færður frá 1. ágúst ár hvert til 1. október. Þá verður þeim fjöl­miðlum sem fá styrk gert að skila greinar­ferð um ráðstöfun styrkja­fjár svo unnt sé að meta ávinning af styrkja­kerfinu. Auk þess er lagt til að ef miðlar hafi hlotið hafa styrk frá opinberum aðilum vegna efnis þá dragist þeir styrkir frá þeirri fjárhæð sem telst stuðnings­hæfur kostnaður. Undan­tekning er þó gerð í tilviki stuðnings úr byggða­áætlun stjórn­valda.

Þegar styrkjunum var síðast úthlutað í síðasta mánuði fengu alls 25 fjölmiðla­fyrirtæki styrk. Alls var 381 milljón króna úthlutað til þeirra og þrjú stærstu einka­reknu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins, Árvak­ur, Sýn og Torg, tóku þorra upphæðarinnar til sín. Þau fengu hvert um sig tæp­lega 66,8 millj­ónir króna í rekstr­ar­stuðn­ing úr rík­is­sjóði í ár. Því fór 53 prósent upphæðarinnar til þeirra.

Sá aðili sem jók rekstr­ar­stuðn­ing sinn mest milli ára voru Bænda­sam­tök Íslands, sem eru ekki atvinnu­greina­flokkuð sem útgáfu­starf­semi heldur sem hags­muna­sam­tök. Rekstr­ar­stuðn­ing­ur­inn var vegna útgáfu Bænda­blaðs­ins og nam 16,8 millj­ónum króna nú, sem var 4,4 millj­ónum krónum meira en Bænda­sam­tökin fengu í greiðslur í fyrra.

Rit­stjórn Bænda­blaðs­ins heyrir undir útgáfu- og kynn­ing­ar­svið Bænda­sam­taka Íslands. Á heima­síðu Bænda­sam­tak­anna segir að hlut­verk þeirra sé að vera „málsvari bænda og gæta hags­muna þeirra í hví­vetna“. Meg­in­mark­mið þeirra sé að „beita sér fyrir bættri afkomu bænda, betri rekstr­ar­skil­yrðum í land­bún­aði auk þess að miðla upp­lýs­ingum og sinna fræðslu til sinna félags­manna.“

Kjarn­inn er eitt þeirra fjöl­miðla­­fyr­ir­tækja sem nýtur opin­bers rekstr­­ar­­stuðn­­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár