Framlög til RÚV aukist um 720 milljónir á tveimur árum en aðrir fá minna á hverju ári

Lilja D. Alfreðs­dóttir ætlar að fram­lengja líf­tíma rekstr­ar­stuðn­ings við einka­rekna fjöl­miðla. Pott­ur­inn sem þeir skipta á milli sín minnkar hins vegar ár frá ári. Framlög til RÚV aukast hins vegar milli ára og verða tæp­lega 5,4 millj­arðar króna.

Höfuðstöðvar RÚV í Efstaleiti.
Höf­uð­stöðvar RÚV í Efsta­leiti. Mynd: Bára Huld Beck

Framlög til RÚV úr rík­is­sjóði aukast um 290 millj­ónir króna á næsta ári og verða 5.375 millj­ónir króna, sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar sem kynnt var á mánu­dag. Framlög til RÚV voru hækkuð um 430 millj­ónir króna milli áranna 2021 og 2022 og því munu fram­lögin hafa hækkað um 720 millj­ónir króna á tveimur árum, verði fjár­laga­frum­varpið sam­þykkt óbreytt.

Á sama tíma munu er gert ráð fyrir því að stuðn­ingur við einka­rekna fjöl­miðla nemi 376,7 millj­ónum króna á næsta ári, sem er 7,6 millj­ónum krónum lægri upp­hæð en var til úthlut­unar í ár, þegar alls 25 fjöl­miðla­fyr­ir­tæki fengu rekstr­ar­stuðn­ing. Það eru fjögur fleiri en fengu stuðn­ing árið 2021, þegar 392 millj­ónir króna til úthlut­unar. Því mun sú upp­hæð sem rík­is­sjóður veitir til að styðja við einka­rekna fjöl­miðla að óbreyttu drag­ast saman um 15,3 millj­ónir króna á tveggja ára tíma­bili, á meðan að fram­lög til RÚV hafa hækkað um 720 millj­ónir króna.

Frumvarp um eina leið samþykkt í fyrra

Bág rekstr­­ar­­staða fjöl­miðla hefur verið til umræðu hér­­­lendis árum sam­­an. Árið 2016 var skipuð nefnd til að fjalla um vand­ann, svo var rituð skýrsla sem skilað var rúmum tveimur árum síðar með sjö til­­lögum til úrbóta, þá var unnið úr til­­lögum hennar og loks smíðuð frum­vörp.

Ein­ungis ein þeirra til­­lagna, styrkja­­kerfið fyrir einka­rekna fjöl­miðla, hefur náð í gegn. Frum­varp um var end­anum sam­þykkt á Alþingi í maí í fyrra, eftir nokkrar til­raunir sem stopp­aðar voru af þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks.

[adspot]Ekk­ert hefur verið gert með til­­lögur um að breyta stöðu RÚV á aug­lýs­inga­­mark­aði, lækka virð­is­auka­skatt á tekjur þeirra enn frekar, heim­ila aug­lýs­ingar sem hafa verið bann­aðar hér­­­lendis en eru leyf­i­­legar í flestum öðrum lönd­­um. Þá lagði nefndin til að settar yrðu skýrar reglur um gagn­­sæi í aug­lýs­inga­­kaupum hins opin­bera þannig að opin­berum aðilum beri að birta sund­­ur­lið­aðar upp­­lýs­ingar um kaup á aug­lýs­ing­­um. Af því hefur ekki orð­ið.

Til við­­bótar við ofan­­greint hef­ur það haft mikil áhrif á rekstr­­ar­um­hverfi fjöl­miðla að aug­lýs­inga­­tekjur hafa flætt frá hefð­bundnum íslenskum miðlum til alþjóð­­legra sam­­fé­lags­miðla- og net­­fyr­ir­tækja sem greiða ekki skatta af þeim tekjum hér­­­lend­­is. Um er að ræða tugi millj­arða króna. Íslensk stjórn­völd hafa ekki gert neinar til­raunir til að skatt­leggja þessar tekj­ur.

Ráðherra ætlar að leggja fram frumvarp í október

Í frum­varp­inu sem sam­þykkt var í fyrra fólst að 400 millj­ónum króna yrði skipt á milli þeirra einka­reknu fjöl­miðla sem upp­fylla skil­yrði fyrir styrkja­greiðsl­unni, að frá­dregnum kostn­aði við úthlut­un­ina sem reynd­ust átta millj­ónir króna.

Upp­haf­lega stóð til að styrkirnir yrðu að hámarki 50 millj­ónir króna til hvers fjöl­mið­ils, en frum­varpið átti í erf­ið­leikum að ná í gengum þing­flokk Sjálf­stæð­is­flokks í því formi. Því var þakið hækkað upp í 100 millj­ónir króna sem þýddi að þrjú stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins: Árvak­ur, Torg og Sýn, fá mun hærri upp­hæð en í fyrri útgáfu og minni fjöl­miðlar fyrir vikið mun minna.

Styrkja­kerfið var með sól­ar­lags­á­kvæði, sem þýðir að það gildir út árið 2022 en fellur svo úr gildi.

Í fjár­mála­á­ætlun er hins vegar gert ráð fyrir stuðn­ings­greiðslum til fjöl­miðla út árið 2025, þótt þær lækki reglu­lega lít­il­lega og verði 368,8 millj­ónir króna á því ári. Þótt lögin um styrkja­kerfið séu að renna út um kom­andi ára­mót er einnig gert ráð fyrir greiðslum á næsta ári í fjár­laga­frum­varp­inu sem lagt var fram á mánu­dag.

Á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar má sjá að Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og við­skipta­ráð­herra, ætlar að leggja fram frum­varp til að fram­lengja líf­tíma þess í októ­ber næst­kom­andi. Í frum­varp­inu verða einnig lagðar til breyt­ingar á gild­andi fyr­ir­komu­lagi sem ætlað er að auka fyr­ir­sjá­an­leika styrkj­anna.

Vill fara „dönsku leiðina“ og kynnir áform næsta vor

Á mál­þingi sem haldið var um opin­bera styrki til einka­rek­inna fjöl­miðla í febr­úar 2022 lýsti Lilja því yfir að hún ætli að beita sér fyrir því að RÚV fari af aug­lýs­inga­mark­aði – RÚV var með 2,4 millj­arða króna í sam­keppn­i­s­tekjur í fyrra – vildi fara „dönsku leið­ina“ í mál­efnum fjöl­miðla hér á landi.

Í Dan­mörku er DR ekki á aug­lýs­inga­mark­aði og stutt er við einka­rekna fjöl­miðla með nokkrum mis­mun­andi leiðum með það að mark­miði að tryggja fjöl­ræði á fjöl­miðla­mark­aði.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans stendur yfir vinna við mótun þá stefnu yfir í ráðu­neyti Lilju og til stendur að leggja hana fram vorið 2023.

Margháttar afleiðingar

Stuðn­­ingur við rekstur einka­rek­inna fjöl­miðla er umtals­verður á hinum Norð­­ur­lönd­un­­um.

Í vísi­­tölu sam­tak­anna Blaða­­manna án landamæra raða þau sér í efstu sætin yfir þau lönd þar sem ríkir mest fjöl­miðla­frelsi. Nor­egur er í fyrsta sæti, Finn­land er í öðru sæti, Dan­­­mörk í þriðja sæti og Sví­­­þjóð í fjórða sæti.

[links]Ísland situr hins vegar í 16. sæti á lista sam­tak­anna og féll um eitt sæti á milli ára.

Afleið­ing þeirrar þró­unar sem átt hefur sér stað á rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi hefur átt sér ýmsar aðrar birt­ing­ar­mynd­ir. Ein slík birt­ist í Menn­ing­ar­vísum Hag­stof­unnar sem birtir voru í fyrra­sum­ar. Þar kom fram að árið 2013 hefðu 2.238 manns starfað í fjöl­miðlun á Íslandi. Árið 2020 voru þeir orðnir tæp­­lega 876 tals­ins. Fækk­­unin hafði ágerst hratt á síð­­­ustu árum. Frá árinu 2018 og út árið 2020 fækk­­aði starf­andi fólki í fjöl­miðlum 45 pró­­sent, eða 731 manns.

Sam­hliða fækkun starfs­­manna fjöl­miðla hefur launa­sum­­ma, árleg summa stað­greiðslu­­skyldra launa­greiðslna launa­­fólks, einnig dreg­ist saman meðal rekstr­­ar­að­ila í fjöl­mið­l­un. Árið 2018 var launa­summan 8,1 millj­­arður króna. Árið 2020 var hún hins vegar komin niður í 5,3 millj­­arða króna og hafði því dreg­ist saman um 35 pró­­sent á tveimur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár