Segir Harald hafa lagt sig fram við að gera fólk óánægt í starfi

Vara­rík­is­sak­sókn­ari, sem starf­aði áður innan rík­is­lög­reglu­stjóra, segir að Haraldur Johann­es­sen, sem nýlega hætti sem rík­is­lög­reglu­stjóri, hafi lagt sig fram við það að gera starfs­fólk emb­ætt­is­ins óánægt með fram­komu sinni.

Helgi Magnús Gunnarsson ríkissaksóknari
Helgi Magnús Gunn­ars­son rík­is­sak­sókn­ari Mynd: Bára Huld Beck

Helgi Magnús Gunn­ars­son, sem verið hefur verið vara­rík­is­ak­sókn­ari frá árinu 2011 og var þar áður yfir efna­hags­brota­deild rík­is­lög­reglu­stjóra frá árinu 2007, segir að Haraldur Johann­es­sen, sem nýverið samdi um að hætta sem rík­is­lög­reglu­stjóri, hefði lagt sig fram við að gera starfs­fólk emb­ætt­is­ins óánægt í starfi með fram­komu sinni árum saman. Hann hefði getað sagt fyrir um það sem nú væri að ger­ast fyrir tíu árum síðan.

Þetta er meðal þess sem fram kom í ítar­legu við­tali Kjarnans við Helga Magnús sem birt var á annan í jólum. Haraldur samdi nýverið um starfs­lok sín við dóms­mála­ráð­herra og er kostn­aður vegna þeirra starfs­loka áætl­aður 47,2 millj­ónir króna án launa­tengdra gjalda. Þegar þeim er bætt við er kostn­að­ur­inn 56,7 millj­ónir króna. Í sept­em­ber síð­ast­liðnum lýstu átta af níu lög­reglu­stjórum lands­ins og for­manna­fundur Lands­sam­bands lög­reglu­manna yfir van­trausti á Har­ald. Þeir báru við­tal sem hann fór við í Morg­un­blað­inu fyrr í þeim mán­uði fyrir sig sem lyk­ilá­stæðu þeirrar ákvörð­un­ar.

Í við­tal­inu sagði Har­aldur meðal ann­ars að verið væri að reyna að hrekja hann úr emb­ætti með því að dreifa vís­vit­andi rang­færslum og róg­burði um hann. Þeir sem væru að gera það væru lög­reglu­menn sem teldu sig eiga harma að hefna gegn hon­um, meðal ann­ars vegna þess að hann hafi gripið inn í vegna starfs­hátta eða fram­komu þeirra eða vegna þess að þeir hafi ekki fengið stöður sem þeir sótt­ust eft­ir. Ef til starfs­loka hans kæmi myndi það kalla á enn ítar­legri umfjöllun af hans hálfu um valda­bar­átt­una bak við tjöld­in.

Telur Harald hafa vikið sér undan rannsóknum

Þar seg­ist Helgi Magnús hafa verið mjög ósáttur við þá aðferð­ar­fræði sem beitt var á sínum tíma þegar emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara var sett á fót. „Þetta var gert svona, að stofna nýtt emb­ætti, vegna þess að Haraldur Johann­es­sen, þáver­andi rík­is­lög­reglu­stjóri, sem var þá í ágætis sam­bandi við dóms­mála­ráð­herr­ann á þeim tíma[Björn Bjarna­son], vildi ekki sitja uppi með þennan pakka úr banka­hrun­inu. Hann var búinn að brenna sig á Baugs­mál­inu, sem honum fannst í lagi þegar allt virt­ist ganga vel og líta vel út fyrir emb­ætti hans en strax og það fór að verða erfitt þá snéri hann baki við því og þeim sem komu nálægt mál­inu. Kannski var það að ein­hverju leyti skyn­sam­legt hjá Haraldi, að víkja sér undan rann­sókn hrun­mála, vegna þess að hann hefur gert sér grein fyrir að það myndi ekki pen­ingur fylgja með verk­efn­inu. Að emb­ættið myndi sitja uppi með banka­hruns­mál í efna­hags­brota­deild án nokk­urra pen­inga.“

Hann segir að mögu­lega hefði staðan orðið þannig, að rann­sókn hrun­mála hefði verið and­vana fædd, ef þær breyt­ingar sem urðu í sam­fé­lag­inu snemma árs 2009 hefðu ekki orðið. „Eva Joly, ný stjórn og mikil reiði og allt hitt sem fylgdi sem gerði það á end­anum að verkum að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara varð ekki and­vana fætt heldur fékk pen­inga til að lifa og gera það sem það þurfti að gera mjög lengi. Ég hef þó ekki enn fengið skýr­ingu á því hvers vegna hann vildi ekki standa með til­lögu minni um að flytja efna­hags­brota­deild­ina frá rík­is­lög­reglu­stjóra­emb­ætt­inu? Hvers vegna að hanga á deild­inni þegar hann hafði engan metnað til að standa með henni eða að baki þeim störfum sem þar voru unnin? Eitt af því sem hafði gert efna­hags­brota­deild erfitt fyrir í rann­sókn Baugs­máls­ins voru vanga­veltur, eða ásak­anir, um stöðu rík­is­lög­reglu­stjóra gagn­vart dóms­mála­ráð­herra, og skort á sjálf­stæði frá póli­tísku valdi. Ég tel þetta hafa verið til mik­ils skaða fyrir trú­verð­ug­leika efna­hags­brota­deildar í mörgum málum og einkum í Baugs­mál­inu. Sama hefði án ef orðið uppi í hrun­málum hefðu þau komið til kasta efna­hags­brota­deildar en lausnin var ekki að stofna aðra efna­hags­brota­deild.“

Hann spyr sig hins vegar hvers konar kerfi það sé sem þurfi slíkan þrýst­ing til að magna upp reiði svo að það sé gripið til aðgerða. „Það er áhyggju­efni ef að ákæru­valdið og lög­regla eigi að virka eins og ein­hverjar stormsveitir þegar næg reiði blossar upp. Þetta er eins og að vera með heil­brigð­is­kerfi sem myndi ekki fá neinn pen­ing nema þegar nógu margir yrðu nógu reiðir yfir því hversu margir væru að deyja á biðlistum.“

Fagleg della

Faglega telur hann að það hafi verið della að setja á fót emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, í stað þess að byggja nýja og sterk­ari stofnun efna­hags­brota í kringum þá efna­hags­brota­deild sem var þegar til staðar. En til þess þurfti að flytja hana frá rík­is­lög­reglu­stjór­anum og gera hana sjálf­stæða ákæru­valds­stofnun. „Við vorum með ein­hverjar 12-13 mann­eskjur sem voru not­hæfar til að rann­saka efna­hags­brot og þær voru í efna­hags­brota­deild­inni, en samt átti að fara að stofna nýtt emb­ætti, safna þar saman fólki og búa til nýjan stofn­anakúltúr til hliðar við þann sem við vorum búin að vera að þróa í efna­hags­brota­deild­inni í ein­hver tíu ár, líta til fyr­ir­mynda og sækja okkur menntun til Noregs til að hafa grunn í þetta.

Það var ljóst að það yrðu slags­mál um fólk og til yrðu tvær stofn­anir í þessu litla landi að rann­saka sams­konar brot og að þú fengir mis­mun­andi með­ferð eftir því hvort þú værir að draga þér fé í bygg­inga­vöru­verslun eða banka. Þú myndir fá miklu skjót­ari með­ferð hjá annarri deild­inni vegna meiri fjár­heim­ilda. Að það væru rýmri rann­sókn­ar­heim­ildir öðru megin. Og svo fram­vegis. Þetta er bara þvæla. Ég taldi betra að taka efna­hags­brota­deild­ina frá Rík­is­lög­reglu­stjóra og byggja síðan í kringum hana þannig að úr yrði stofnun eins og Økokrim í Noregi, sem stendur sjálf­stætt. Ég lagði þetta til við ráðu­neyti og Alþingi í tengslum við lög­töku laga um með­ferð saka­mála árið 2007. Það er nú komið eftir að til varð emb­ætti Hér­aðs­sak­sókn­ara, en mörgum árum of seint. Þá var búið að setja á fót emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara sem varð til þess að efna­hags­brota­deildin varð í raun gjald­þrota, vegna þess að fólkið fór allt yfir til sér­staks sak­sókn­ara og fékk hærri laun. Fyrir utan að Haraldur lagði sig fram við að gera það sem eftir stóð óánægt í starfi með sinni fram­komu, eins og honum hefur tek­ist við alla núna loks­ins. Ég hefði getað sagt þetta fyrir tíu árum síðan, sem nú er að ger­ast, að það væri eðli­legt að Haraldur færi á eft­ir­laun.“

Deild­irnar tvær hafi meira að segja farið í hús­leitir á sömu lög­manns­stof­unni, annar fyrir hádegi og hinn eftir hádegi í sitt­hvoru mál­inu. „Einu sinni gerð­ist það. Við mætt­umst bara í dyr­unum. Þá er það svo að mörg stór mál í efna­hags­brota­deild dróg­ust á lang­inn vegna mann­eklu og speki­leka til sér­staks sak­sókn­ara. Þessi mál voru mörg sam­bæri­leg í umfangi og þau mál sem sér­stakur var að fást við ef frá eru talin þau fáu allra stærstu. Dragist saka­mál á lang­inn er með því brotið gegn rétti sak­born­ings og refs­ingar taka mið af þeim drætti til góða fyrir sak­born­ing.“

Hægt er að lesa við­talið við Helga Magnús hér í heild.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár