Ákærður fyrir hrottafengna frelsissviptingu í Breiðholti

Sigurður Brynjar Jensson er ákærður fyrir frels­is­svipt­ingu í Breið­holti í sumar. Atvikið átti sér stað ein­ungis mán­uði eftir að hann var dæmdur fyrir aðild að hrylli­legri frels­is­svipt­ingu á Vogum á Vatns­leysu­strönd. Þar var hann meðal ann­ars dæmdur fyrir að hafa beitt raf­byssu á kyn­færi fórn­ar­lambs.

Ákærður
Ákærður Sigurður Brynjar var í sumar dæmdur fyrir aðild að Voga­mál­inu. Mynd: Facebook

Sigurður Brynjar Jensson, einn þeirra sem var dæmdur fyrir aðild að frels­is­svipt­ing­unni á Vogum á Vatns­leysu­strönd, hefur verið ákærður á ný fyrir aðra frels­is­svipt­ingu, nú í Breið­holti. Sigurður Brynjar var dæmdur 20. júlí síð­ast­lið­inn fyrir Voga­málið og fékk hann 14 mán­aða fang­els­is­dóm, þar af 12 mán­uðir skil­orðs­bundnir. Atvikið sem hann er nú ákærður fyrir gerð­ist eftir þann dóm, eða 15. ágúst síð­ast­lið­inn. 

„Hafi þeir notað raf­byss­una í langan tíma, meðal ann­ars á háls, maga og bak og kyn­færi hans, með þeim afleið­ingum að hann piss­aði á sig.“

Í nýja mál­inu er Sigurður Brynjar ákærður ásamt öðrum manni sem ekki hefur fengið dóm í sam­bæri­legu máli og verður því ekki nafn­greindur hér. Sigurður Brynjar varð nítján ára á þessu ári en hinn mað­ur­inn er tals­vert eldri, fæddur árið 1988. Samkvæmt ákæru sviptu þeir stúlku á 19. ári og karl­manni á 22. ári frelsi sínu.

Notaði rafbyssu á kynfæri

Sá sem fékk þyngsta dóm­inn í Voga­mál­inu er Kristján Markús Sívars­son, oft kenndur við Skelja­granda, en hann fékk fjög­urra ára og níu mán­aða óskil­orðs­bundið fang­elsi. Sigurður Brynjar bar þó, sam­kvæmt dómi, ábyrgð á mörgum hrotta­leg­ustu mis­þyrm­ingum máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár