Forstjóri Boeing: Max vélarnar verða þær öruggustu

Boeing vinnur nú að því að uppfæra hugbúnaðinn í 737 Max vélunum. Forstjórinn biðst afsökunar.

Forstjóri og forseti aðal­stjórnar Boeing, Dennis Muilenburg, sendi frá sér ávarp á vefgáttum félagsins í gær, á Facebook og Youtube þar á meðal, þar sem hann segir að Boeing muni vinna að heilindum af því að tryggja að 737 Max vélar félagsins, verði þær öruggustu í flugflota heimsins.

Þá segist hann harma þau óþægindi sem flugfélög og farþegar um allan heim hafa orðið fyrir, vegna kyrr­setningar á Max vélunum, í kjölfar hörmulegra flugslysa í Indónesíu og Eþíópíu, þar sem allir um létust, samtals 346. 

Hann ítrekaði það sem hefur komið fram hjá honum áður, að hugurinn væri hjá aðstand­endum þeirra sem hefðu látið lífið, og að Boeing myndi gera allt sem hægt væri til að komast til botns í því hvað fór úrskeiðis.

Frum­niðurstöður rann­sóknarinnar á flug­slysinu í Indónesíu, 29. október í fyrra, þegar 737 Max Lion Air hrapaði með þeim afleiðingum að 189 létu lífið, benda til þess að MCAS kerfi hafi brugðist og toga vélina niður, en það kerfi á að vinna gegn ofrisi.

Margt bendir til þess að sambærilegar ástæður hafi verið að baki því þegar 737 Max vél Ethi­opian Air­lines hrapaði 13. mars síðastliðinn með þeim afleiðingum að 157 létu lífið.

Eins og greint hefur verið frá, meðal annars í frétta­skýringum á vef Kjarnans, þá hefur alþjóðleg kyrr­setning á 737 Max vélum Boeing haft víðtæk áhrif á flug­iðnaðinn um allan heim, og gert það að verkum að mörg flugfélög sem voru með Max vélar í notkun, eða höfðu reikna með þeim í flotann, hafa lent í vandræðum með að halda uppi þjónustu eins og leiða­kerfi þeirra gera ráð fyrir.

Flug­um­ferða­stofn­un Banda­ríkj­anna (FAA) sagðist í yfir­lýsingu 16. apríl síðastliðinn telja breyt­ing­arn­ar sem Boeing flug­véla­fram­leiðand­inn legg­ur til að gerðar verði á Boeing 737 Max farþegaþot­un­um séu „viðeig­andi“.

Búist er við því að FAA muni leggja blessun sína yfir aðgerðir Boeing, áður en langt um líður, og þá verður mögulegt að notast við Max vélar í Banda­ríkjunum. Önnur flugmála­yfirvöld hafa þó ekki gefið grænt ljós á notkun Max véla, og óvíst er hvenær kyrr­setningu lýkur og hægt verður að nota vélarnar aftur. Ljóst er að það verður ekki gert fyrr en rann­sóknum á flugslyslunum lýkur, og loka­niðurstöður verða birtar.

Á meðan þessi staða er uppi hafa flugfélög brugðist við með því að fella niður flug og leigja vélar í stað Max vélanna. Mikil eftir­spurn hefur myndast eftir leigu­vélum, og hefur verðið farið hækkandi.

Icelandair notast við Boeing vélar og hafa þrjár Max vélar verið teknar úr umferð í flota félagsins. Félagið hefur veðjað á að Max vélarnar til framtíðar litið, og miðast áætlanir félagsins til lengri tíma litið við það. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár