Setja spurningamerki við Boeing flugflotann

Marg­vís­leg áhrif af kyrr­setn­ing­unni á 737 Max vél­unum frá Boeing, í kjöl­far tveggja flug­slysa, eru nú komin fram. Flugmenn hjá Southwest flug­fé­lag­inu spyrja sig af því hvers vegna er veðjað jafn mikið á Boeing og raun ber vitni.

Í umfjöllun Seattle Times er vitnað til minn­is­blaðs frá fundi sam­taka flug­manna hjá Southwest, þar sem spurn­inga­merki er sett við það að floti félags­ins sé alveg bund­inn við Boeing. Með kyrr­setn­ingu 737 Max véla er komin upp mikil áhætta í rekstri félags­ins, sem ekki er ljóst enn hvernig verður leystur að fullu. Auk þess gætir mik­illar óánægju hjá flug­mönnum fyrir slæma þjón­ustu frá Boeing, og ófull­nægj­andi upp­lýs­inga­gjafar.

Flug­slysin í Indónesíu, 29. októ­ber, og í Eþíóp­íu, 13. mars síð­ast­lið­inn, hafa dregið mik­inn dilk á eftir sér fyrir flug­iðn­að­inn sem ekki sér fyrir end­ann á enn­þá. Allir um borð í 737 Max vélum Lion Air og Ethi­opian Air­lines, sem hröp­uðu lét­ust. Sam­tals 346.

Frum­nið­ur­stöður í rann­sóknum á flug­slys­unum benda til þess að galli hafi verið í hug­bún­aði í vél­un­um, sem teng­ist svo­nefndu MCAS-­kerfi, sem á að sporna gegn ofrisi.

Flug­mála­yf­ir­völd í Indónesíu kynntu frum­nið­ur­stöður - með fyr­ir­vara um að rann­sókn væri ekki lokið - fyrr í mán­uð­inum, og kom þá fram að flug­menn hefðu brugð­ist rétt við, og reynt að vinna gegn því að flug­vélin hefði tog­ast nið­ur. Allt kom fyrir ekki.

Airbus, getur það verið?

Flugmenn Southwest eru sagðir á fundi hafa rætt um hvort það sé til­efni fyrir félagið að horfa annað eftir flug­vélum heldur en til Boeing, og þá einkum til Airbus.

Þó þetta virð­ist vera rök­rétt umræða, í ljósi stöð­unnar sem upp er komin, þá þykja þetta vera mikil tíð­indi, þar sem tryggð­ar­sam­band Southwest við 737 vélar Boeing teygir sig aftur til 1971. Ef Southwest færi að horfa annað en til Boeing eftir vélum, þá gæti það haft keðju­verk­andi áhrif á flug­iðn­að­inn og aðra við­skipta­vini Boeing.

Icelandair er eitt margra flug­fé­laga sem glímir við áhrifin af því að 737 Max vél­arnar hafa verið kyrr­settar og notkun á þeim bönnuð, á meðan rann­sókn á flug­slys­unum stendur yfir. Félagið hefur þegar tekið 3 Max vélar úr umferð og hefur nú leigt þrjár vélar í stað­inn.

Sam­kvæmt upp­færðri flug­á­ætlun Icelandair miðar hún við að Boeing 737 MAX flug­vélar félags­ins verði kyrr­settar til 16. júní næst­kom­andi. Það verður að koma í ljós, hvort kyrr­setn­ing vél­anna mun falla úr gildi á þeim degi eða fyrr, en sú sviðs­mynd er allt eins lík­leg að vél­arnar verði kyrr­settar leng­ur. Vandi er um slíkt að spá, eins og fjallað var um í frétta­skýr­ingu á vef Kjarnans 11. apríl síð­ast­lið­inn.

Icelandair hefur veðjað á Max vél­arnar í sínu leiða­kerfi og hefur sagt að þegar allt er komið úr píp­unum hjá Boeing, til afhend­ingar hjá Icelandair, þá verði Max vél­arnar 16 tals­ins og muni henta vél til að þjón­usta leiða­kerfið til Evrópu og Norður-Ameríku, eins og það er orðað á vef félags­ins.

Alvar­leg­ustu hlið­ar­verk­anir slysanna - fyrir utan dauðs­föllin og áhrif á aðstand­endur þeirra sem lét­ust - er mikið högg í fram­leiðslu hjá Boeing í Renton í útjaðri Seattle. Þar starfa um 80 þús­und starfs­menn.

Þegar mest var í fyrra, þá komu 57 vélar úr fram­leiðslu­kerfum Boeing í mán­uði þar sem Max vél­arnar urðu til, en fram­leiðslan er nú komin niður í 42.

Ástæðan er bann við notkun á Max vél­unum og kyrr­setn­ing þeirra, og óvissa um hvenær (og hvort) Max vél­arnar geti kom­ist í notkun hjá flug­fé­lög­um.

Mikil áhrif á Ísland

Þessi vandi Boeing getur haft mikil áhrif á land eins og Ísland, sem fær 43 pró­sent af útflutn­ings­tekjum sínum frá ferða­þjón­ustu.

Sókn­ar­leikur hjá Icelandair, sem kynntur var stjórn­völdum í aðdrag­anda falls WOW air, virð­ist ekki í kort­unum, eins og mál standa nú.

Frekar er mik­ill varn­ar­leikur framundan, þar sem félagið mun þurfa á því að halda að ná að end­ur­nýja flot­ann með hag­kvæmum hætti, án þess að leiða­kerfið drag­ist saman eða þjón­usta félags­ins versni.

Í versta falli verður tölu­verður sam­dráttur í þjón­ustu félags­ins, vegna þess hve vandi Boeing vegna kyrr­setn­ingar Max véla, er orð­inn umfangs­mik­ill. En það verður að koma í ljós hvernig tekst að greiða úr þess­ari stöðu.

Í lok árs í fyrra var eigið fé Icelandair 55 millj­arðar og skuldir félags­ins 110 millj­arðar. Und­an­farnir mán­uðir hafa verið félag­inu erf­iðir og tap­aði það 6,8 millj­örðum króna á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins í fyrra. Ljóst er að fyrstu mán­uðir árs­ins hafa einnig verið erf­iðir, en upp­gjör vegna þess tíma­bils hefur ekki verið kynnt enn.

Mark­aðsvirði Icelandair er um 45 millj­arðar króna, en félagið lækk­aði um 2,65 pró­sent í dag.

Mark­aðsvirði Boeing er 220 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða um 26 þús­und millj­arðar króna, en mark­aðsvirði Southwest er 28,7 millj­arðar Banda­ríkja­dala, eða um 3.400 millj­arðar króna. Það er upp­hæð sem nemur um þre­földu mark­aðsvirði allra skráðra félaga á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár