Samtök sem berjast gegn kjarnorkuvopnum fengu friðarverðlaun Nóbels

Tilkynnt var í Osló hver myndi hreppa friðar­verðlaun Nóbels árið 2017 og kom valið töluvert á óvart. ICAN, samtök gegn kjarnorku­vopnum, urðu fyrir valinu en þau hafa barist ötullega fyrir kjarnorku­lausum heimi.

ICAN-samtökin fengu friðarverðlaun Nóbels árið 2017.
ICAN-sam­tökin fengu frið­ar­verð­laun Nóbels árið 2017. Mynd: EPA

Samtökin ICAN fengu friðar­verðlaun Nóbels árið 2017 en markmið þeirra er að berjast gegn kjarnorku­vopnum og að stuðla að kjarnorku­lausum heimi. Þetta var tilkynnt í morgun í Osló.

Valið kom heldur á óvart en líklegt þykir að ástandið í Norður-Kóreu hafi haft mikil áhrif á norsku Nóbels­nefndina. Berit Reiss-Andersen, formaður Nóbels­nefndarinnar, segir að ICAN hafi hlotið verð­launin fyrir brautryðjenda­starf sitt í baráttu gegn kjarnorku­vopnum.

ICAN stendur fyrir the International Campaign to Abolish Nuclear Weapons og stóð fyrir sáttmála sem var undir­ritaður af 122 ríkum þann 7. júlí síðastliðinn. Hann miðar að því að eyða öllum kjarnorku­vopnum í heiminum. Ekkert kjarnorku­veldanna níu var aftur á móti á meðal þessara ríkja. Reiss-Andersen hvatti því þessar þjóðir í ræðu sinni í morgun til að semja um eyðingu vopnanna á næstu árum.

Framkvæmda­stjóri ICAN, Beatrice Fihn, segist í viðtali við frétta­stofu Reuters vera með skilaboð til Donalds Trump, forseta Banda­ríkjanna og stjórn­valda í Norður-Kóreu. Hún bendir á að kjarnorku­vopn séu ólögleg. Að hóta að nota kjarnorku­vopn sé ólöglegt og að eiga þau og þróa sé einnig ólöglegt. Þessar þjóðir þurfi að hætta öllu slíku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár