Repúblikanar í Harvard fordæma Trump

Í fyrsta sinn í 128 ár styðja Repúblikanar í Harvard ekki fram­bjóðanda flokksins. Meðlimir hópsins segast skammast sín fyrir Trump og hvetja flokks­menn til að fordæma „þennan hættulega mann.“

Umdeildur
Umdeildur Ekki eru allir repúblikanar sáttir við við fram­bjóð­anda flokks­ins

Forsvars­menn repúblikana flokksins í Harvard háskóla lýstu því yfir í gær að fram­bjóðandi flokksins til forseta „ógnaði framtíð landsins,“ og báðu á sama tíma formenn flokksins og félaga sína í röðum íhalds­manna um að „sameinast okkur í að fordæma og draga úr stuðningi við þennan hættulega mann.“

Ákvörðunin um að hafna fram­bjóðandanum opinber­lega var tekin fyrr í vikunni, segir forseti Harvard Republican Club, Declan Garvey, í samtali við CNN. Einhverjir meðlimir ætla sér að kjósa Hillary Clinton og enn aðrir halla sér óflokks­bundna fram­bjóðandanum Gary Johnson. 80% repúblikana í Harvard segjast ekki ætla að kjósa Trump, 10% styðja hann og önnur 10% eru óákveðin.

„Einræðis­tilburðir hans og daður við fasisma eiga sér ekki hliðstæðu í sögu landsins.“

Í 800 orða yfir­lýsingu sem hópurinn birti á Facebook segir að Trump búi ekki yfir skap­gerðinni eða persónu­leikanum sem er nauðsyn­legur til þess að leiða Banda­ríkin í gegnum sífellt hættulegri heim. „Einræðis­tilburðir hans og daður við fasisma eiga sér ekki hliðstæðu í sögu landsins. Hann vill stía okkur í sundur eftir kynþætti, efnahag og trú og gera okkur nógu hrædd og kvíðin til þess að hann komist í Hvíta Húsið.“

Kosningateymið í sjálfsvígshugleiðingum

Á miðvikudaginn heyrðust fréttir þess efnis að starfs­fólk kosninga­teymis Donald Trump væru í sjálfsvígs­hugleiðingum. Eftir sífellt tryllingslegri yfir­lýsingar fram­bjóðandans væru ráðgjafar hans að gefast upp á því að hægt væri að hafa hemil á honum.

Paul Manafort
Paul Manafort Kosninga­stjórinn er sagður hafa gefist upp á því að hafa hemil á Trump

Paul Manafort, sem fenginn var til að stýra kosninga­baráttunni eftir að ljóst var að Trump yrði fram­bjóðandi flokksins er, samkvæmt innan­búðafólki, orðinn svo fráhverfur Trump að hann hefur í raun lagt niður öll störf. Vonir stóðu til að eftir að Manafort, sem hefur mikla reynslu í faginu, tók við barátt­unni, fengi hún á sig eðlilegri blæ. Það þykir hins vegar vera að koma í ljós að Trump sé einfald­lega of óstýrlátur til þess að það gæti gengið eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetakjör í BNA 2016

ErlentForsetakjör í BNA 2016

Bergmálið frá Hitler: Er Trump fasisti?

Á dögunum sagði Ásta Guðrún Helga­dóttir, þingmaður Pírata, úr ræðustól á Alþingi að Donald Trump Bandaríkja­forseti væri fasisti. Óli Björn Kárason þingmaður Sjálfstæðis­flokksins andmælti því, og nokkrir aðrir sömuleiðis. En fleiri hafa velt þessu fyrir sér og ekki aðeins hér á landi. Nýlega birti vefsíðan Slate viðtal sem blaða­maðurinn Isaac Chotiner tók við breska sagn­fræðinginn Richard Evans, þar sem einmitt var fjallað um hvort Trump væri á svipuðum slóðum og fasistar eða nasistar líkt og Adolf Hitler.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár