Trump varð undir – Dró frumvarpið til baka

Mikil dramatík varð í bandaríska þinginu í dag þegar frumvarp um nýtt skipulag heilbrigðis­trygginga var til umfjöllunar.

„Við höfum ákveðið að draga frum­varpið til baka [...] Obamacare verður því áfram fyrir hendi,“ sagði Repúblikaninn og forseti fulltrúa­deildar Banda­ríkjaþings, Paul Ryan, á blaðamanna­fundi eftir að ljóst varð að ekki var stuðningur við frumvarp Don­alds J. Trump Banda­ríkja­for­seta um heilbrigðis­tryggingar.

Trump óskaði eft­ir því að frum­varp hans vegna heil­brigðis­trygg­inga yrði dregið til baka, skömmu áður en at­kvæða­greiðsla um það átti að hefjast á banda­ríska þing­inu, en þá þegar virtist augljóst að frum­varpið yrði fellt.

Þetta er mikill og niður­lægjandi ósigur fyrir Bandaríkja­forseta, sem hefur lofað því ítrekað, að Obamacare verði aflagt og nýju og betra skipulagi - sem frumvarp hans fjallaði um - komið á.

Opinber yfir­lýsing frá Hvíta húsinu á enn eftir birtast, en Trump hafði sett full­trú­um Re­públi­kana í full­trú­ar­deild þings­ins afar­kosti vegna frum­varps­ins en það bar ekki ár­ang­ur. Ekki var ein­hug­ur inn­an hans eig­in flokks um að samþykkja frum­varpið.

Á Twitter svæði sínu sagði Trump í morgun, að eftir sjö ár af Obamacare væri nú loksins komin upp stund, þar sem væri hægt að afnema það kerfi. Þessi tilraun Trumps heppnaðist ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár