Skattaskjólafélög eiga 23 þúsund heimili

Skatta­skjóla­félög eiga miklar eignir í Bretlandi, þar á meðal tugþúsundir fasteigna, einkum miðsvæðis í London.

Félög sem skráð eru á þekktum skattskjólum, eins og Bresku jómfrúar­eyjunum, eiga um 23 þúsund fasteignir í Englandi og Wales, samkvæmt rannsókn breska ríkis­útvarpsins BBC.

Þar af er tæplega helmingur í London, og yfir 11 þúsund af þessum eignum, sem félög í þekktum skatta­skjólum eiga, eru í City of Westminister.

Rannsókn BBC miðaði að því að upplýsa um eignir þessara félaga í skatta­skjólum, og voru gögn samkeyrð við fasteigna­skrá í Bretlandi, með fyrr­nefndri útkomu.

Samanlagt virði eignanna sem skatta­skjóla­félögin eiga í London, nemur tæplega 34 milljörðum punda, eða sem nemur um 4.900 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár