Kínverjar bregðast við tollum Bandaríkjanna

Donald Trump Bandaríkja­forseti er búinn að koma á tolla­stríði við Kína sem hefur stig­magnast að undan­förnu.

Kínverjar hafa svarað nýjustu tollum Bandaríkja­stjórnar, á innfluttar vörur frá Kína, með því að hækka tolla á vöru­innflutning frá Banda­ríkjunum sem tekur til samtals um 60 milljarða Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 6.500 milljörðum króna.

Þetta gerðu Kínverjar eftir að Banda­ríkin tilkynntu um viðskipta­tolla upp á meira en 200 milljarða Bandaríkja­dala til viðbótar við það sem áður hafði verið lagt á. Í fyrstu verða tollarnir um 10 prósent, frá og með 24. september, en frá áramótum hækka þeir í 25 prósent.

Kínverjar hyggjast setja á 5 prósent tolla sem síðan geta hækkað í 10 prósent, en þeir munu ná til mörg þúsund vöru­tegunda.

Stjórn­völd í Kína hafa mótmælt viðskipta­tollum Banda­ríkjanna og segja þá vera í mótsögn við alþjóða­samninga Alþjóða­viðskipta­stofnunarinnar (WTO) og segja þá auk þess grafa undan efnahag bæði Kína og Banda­ríkjanna. Auk þess sem afleidd áhrif geta fundist um allan heim.

Donald Trump Bandaríkja­forseti beinir spjótunum ekki síst að allri fjölda­framleiðslu á raftækjum, þar á meðal símum, en tæplega 50 milljarðar af þeim 200 sem viðskipta­tollarnir munu ná til, teljast til vöru­flokka raftækja.

Í umfjöllun Bloomberg kemur fram að fjár­festar í Banda­ríkjunum óttist að tolla­stríðið muni hafa alvarleg áhrif á alþjóða­viðskipti, ef fram heldur sem horfir. Donald Trump segist fullviss um að stefna hans sé sú eina rétt. Hann sakaði Kínverja auk þess um að skipta sér af kosningunum í Kína, ekki síst með því að ýta undir andúð bænda í Banda­ríkjunum á fyrr­nefndum tollum, en þeir gætu bitnað hart á útflutningi á ýmsum vörum bænda til Kína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár