Var lofað upplýsingum um Hillary Clinton

Trump yngri, Kushner og Manaford hittu rússneskan lögmann sem lofaði upplýsingum sem kæmu höggi á Hillary Clinton í aðdrag­anda kosninga.

Donald Trump yngri, sonur forseta Bandaríkjanna, í Trump-turni í New York í Bandaríkjunum.
Donald Trump yngri, sonur for­seta Banda­ríkj­anna, í Trump-turni í New York í Banda­ríkj­unum. Mynd: EPA

Elsti sonur Donalds Trump, forseta Banda­ríkjanna, Donald Trump yngri, var lofað upplýsingum sem mundu koma höggi á Hillary Clinton, fyrir fund með rússneskum lögmanni með tengsl í Kreml í aðdrag­anda forseta­kosninganna í fyrra.

Fundinn sátu Trump yngri, Paul J. Manaford kosninga­stjóri Trumps og tengda­sonur forsetans, Jared Kushner. Manaford og Kushner greindu nýlega frá því að fundurinn hafi farið fram.

Bandaríska dagblaðið The New York Times hefur þetta eftir heimildar­mönnum innan Hvíta hússins og fleirum sem höfðu vitneskju um fundinn. Blaðið greindi frá því á laugardag að fundurinn með rússneska lögmanninum hefði farið fram en hafði þá ekki upplýsingar um tildrög hans. Heimildar­menn gáfu sig fram við blaðið í kjölfar þeirrar fréttar.

Fundurinn fór fram í Trump-turni í New York 9. júní 2016, tveimur vikum eftir að Donald Trump hafði tryggt sér útnefningu Repúblikana­flokksins fyrir forseta­kosningarnar. Efni fundarins er talið vera lykil­atriði í svarinu við megin­spurningum þeirra sem rannsaka meint tengsl kosninga­baráttu Trumps við Rússa. New York Times segir hér vera komna fyrstu opinberu vísbendinguna um að í það minnsta einhverjir viðriðnir kosninga­baráttuna hafi verið ginnkeyptir fyrir hjálp frá Rússlandi.

Ekki er víst að rússneski lögmaðurinn, Natalia Veselnitskaya, hafi reitt fram upplýsingar um Clinton.

Í yfir­lýsingu sem Trump yngri sendi frá sér í gær lýsir hann því sem svo að Veselnitskaya hafi sagst hafa upplýsingar um að einstaklingar tengdir Rússlandi hafi verið að styrkja kosninga­baráttu Clinton og Demókrata­flokkinn. „Orð hennar voru á reiki, óljós og stóðust ekki skoðun,“ segir Trump yngri og bætir við að engin gögn sem studdu orð lögmannsins hafi verið borin á borð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár