Messi verður með Íslandi á HM í Rússlandi

Argentíski snill­ing­urinn Lionel Messi skaut Argentínu áfram á HM í Rússlandi með þrennu gegn Ekvador, í 1-3 sigri.

Lionel Messi, Argentínu­maðurinn frábæri hjá Barcelona, fór fyrir sínu liði sem fyrirliði í 1-3 sigri Argentínu gegn Ekvador, en með sigrinum tókst Argentínu að gull­tryggja sæti sitt í úrslita­keppninni.

Fyrir leikinn var Argentínu í 6. sæti riðilsins en einungis fjögur efstu sætin tryggja sæti í úrslita­keppninni.

Landið í 5. sæti þarf svo að spila umspils­leik um laust sæti. Með sigrinum tókst Argentínu að hífa sig upp í 3. sæti. Síle náði ekki að komast á HM en Suður-Ameríku meistararnir töpuðu 3-0 gegn Brasilíu, sem var langefst í riðlinum.

Í umsögn Skysports um leik Argentínu og Ekvador segir að frammistaða Messi í leiknum hafi verið einhver sú besta sem sést hefur á alþjóð­legu sviði fótboltans.

Honum héldu engin bönd í leiknum, og eftir að Ekvador komst yfir, eftir aðeins 38 sekúndur, var hann óstöðvandi.

Portúgal, með Cristiano Ronaldo fremstan í flokki, tryggði sér einnig sæti á HM með 2-0 sigri á Sviss. Þar með er ljóst að Messi og Ronaldo verða í eldlínunni á HM í Rússlandi, nema að meiðsli setji strik í reikninginn.

Fyrir þessa síðustu umferð voru Argentína og Portúgal ekki búin að tryggja sæti sín á HM, en með sigrum tókst þeim það.

Dregið verður í riðla á HM 1. desember og verður Ísland í pottinum, eins og alkunna er. Ísland er fámennasta landið í sögunni sem nær að tryggja sér sæti í loka­keppni HM.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár