„Ég er niðurbrotin vegna misgjörða minna,“ sagði tárvot Elizabeth Holmes í dómsal í Kaliforníu á föstudag þegar hún var dæmd til 11 ára fangelsisvistar fyrir að svíkja fjárfesta.
Dómurinn markar ákveðin kaflaskil í áralangri umræðu um menningu í Kísildalnum sem snýr að ýkjum og öfgum í frumkvöðlaheiminum. Niðurstaða dómsins sendir skýr skilaboð til Kísildalsins: Það eru afleiðingar af því að ljúga að fjárfestum.
Holmes þráði frá unga aldri að „uppgötva eitthvað sem mannkynið vissi ekki að væri mögulegt“, eins og hún orðaði það níu ára gömul í bréfi sem hún skrifaði föður sínum. Hún var sannfærð um að henni hefði tekist það þegar hún hætti í námi í efnaverkfræði við Stanford-háskóla árið 2003 og stofnaði líftæknifyrirtækiið Theranos, þá 19 ára gömul.
13 árum síðar kom hún af krafti inn í Kísildalinn þegar hún hélt því fram að hafa þróað byltingarkennda blóðskimunartækni sem gæti greint hundruð sjúkdóma, líkt og krabbamein og sykursýki, með örfáum blóðdropum. Með þessari byltingarkennda nýju tækni yrðu nálar úr sögunni.
Það reyndist ekki rétt.
En Holmes náði að sannfæra marga valdamikla einstaklinga til að fjárfesta í fyrirtækinu eða sitja í stjórn þess. Eða hvort tveggja. Þeirra á meðal eru fjölmiðlajöfurinn Rupert Murdoch og tæknirisinn Larry Ellison. Þá áttu tveir áhrifamiklir stjórnmálamenn sæti í stjórn Theranos, Henry Kissinger fyrrverandi utanríkisráðherra og James Mattis fyrrverandi varnarmálaráðherra.
Metið á níu milljarða dollara þegar best lét
Þegar best lét var Theranos metið á níu milljarða dollara eða sem nemur rúmlega 1.300 milljörðum króna. Árið 2015 fór að halla undan fæti þegar uppljóstrari innan fyrirtækisins steig fram og sagðist efast um greiningartæki fyrirtækisins.
The Wall Street Journal skrifaði ítarlegar fréttaskýringar um fyrirtækið þar sem í ljós kom að helsta rannsóknartæki Theranos, Edison-vélin, byggði á tækni og tækjum sem þegar voru aðgengileg á markaði. Fljótlega kom í ljós að um stærðarinnar blekkingarleik var að ræða. Starfsleyfi fyrirtækisins var afturkallað árið 2016 og tveimur árum síðar var Theranos leyst upp.

Holmes var handtekin í júní 2018, sökuð um að hafa svikið fjárfesta um 945 milljónir dollara, sem nemur rúmlega 123 milljörðum króna. Holmes var látin laus gegn tryggingu og árið 2019 giftist hún William Evans, 27 ára erfingja Evans-hótelkeðjunnar. Þau eignuðust son í júlí í fyrra. Nýtilkomið móðurhlutverk Holmes var talið geta haft áhrif á ákvörðun kviðdómsins en svo virðist ekki hafa verið.
Holmes var sakfelld í byrjun janúar en dómur var kveðinn upp fyrir helgi. Holmes, sem er 38 ára, er ólétt af öðru barni þeirra hjóna. Aftur var þeirri spurningu velt upp hvort barneignir myndu hafa áhrif á afstöðu dómara þegar dómur var kveðinn upp fyrir helgi. Óljóst er hversu langt hún er gengin, og er það líklega af ásettu ráði sem Holmes gefur það ekki upp.
Afplánun hefst í lok apríl
Holmes á að hefja afplánun 27. apríl. Talið er að hún sé komin um sex til sjö mánuði á leið sem þýðir að hún mun geta varið nokkrum vikum með nýfædda barninu áður en hún verður aðskilin frá fjölskyldu sinni meira og minna næstu ellefu árin. Mögulega lengur þar sem í dómnum er fyrirvari um áframhaldandi þriggja ára, en skilorðsbundinn, dóm eftir að 11 ára afplánun lýkur.
Fastlega er gert ráð fyrir að Holmes áfrýi niðurstöðu dómsins en það ferli mun taka marga mánuði. Lögfræðingar hennar fóru fram á 18 mánaða stofufangelsi en saksóknari fór fram á 15 ára fangelsisvist, auk 800 milljóna Bandaríkjadala í skaðabætur til fjárfesta.
Áður en dómarinn, Edward Davila, kvað upp dóm sinn á föstudag ávarpaði Holmes dómsalinn tárvot og bað fjárfesta, starfsfólk Theranos og þau sem höfðu nýtt sér tæknina afsökunar.
„Það veldur mér djúpum sársauka að sjá hvað fólk gekk í gegnum af því að ég brást því,“ sagði Holmes.
Dómarinn sagði Holmes „bráðgáfaðan“ frumkvöðul. Harmleikurinn í þessu máli, að mati dómarans, er að Elizabeth Holmes er bráðgáfuð.
„Mistök eru eðlileg. En að mistakast með því að svíkja fé út úr fólki er ekki í lagi,“ sagði Davila í beinu ávarpi til Holmes.
Dómur yfir “Sunny”Balwani kveðinn upp í desember
Mál Holmes hefur vakið athygli um allan heim, ekki bara í Kísildalnum. Hlaðvarp og sjónvarpsþáttaröð að nafni „The Dropout“ hafa notið mikilla vinsælda. Í þáttunum er farið yfir ferlið og þar spilar Ramesh “Sunny” Balwani, fyrrverandi kærasti og viðskiptafélagi Holmes, stórt hlutverk.

Í réttarhöldunum í janúar sakaði Holmes Balwani um andlegt ofbeldi og kynferðislega misnotkun sem átti sér stað á þeim tíma sem hún á að hafa svikið fjárfesta. Holmes segir að ofbeldið hafi haft áhrif á andlegt ástand hennar á þessum tíma.
Balwani, sem er 19 árum eldri en Holmes, hefur neitað ásökununum Holmes og sagt þær svívirðilegar. Balwani var, líkt og Holmes, sakfelldur fyrir að svíkja fjárfesta í sumar en dómur verður kveðunn upp yfir honum í desember.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir