Sjálfstæðismenn ætlast til þess að fjármálaáætlun Benedikts taki breytingum

Ekki er meirihluti fyrir fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar á Alþingi.

Þingmenn Sjálfstæðis­flokksins eru óánægðir með ýmis atriði í fjármála­áætlun Benedikts Jóhannessonar fjármála­ráðherra og vilja að hún taki breytingum í meðförum þingsins. Um er að ræða stærsta málið sem Benedikt hefur lagt fram frá því að ríkis­stjórn Sjálfstæðis­flokksins, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar var mynduð en eins og greint var frá í gær er ekki meirihluti fyrir áætluninni á Alþingi nema áform um skatta­hækkanir á ferða­þjónustu verði endur­skoðuð.

Tveir þingmenn Sjálfstæðis­flokksins, sem báðir tengjast fyrir­tækjum í ferða­þjónustu, hafa lýst því yfir að þeir muni ekki samþykkja áætlunina að óbreyttu. Greint var frá þessu í kvöld­fréttum RÚV í gær, en nú er einnig orðið ljóst að Haraldur Benediktsson, formaður fjár­laganefndar og þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, vill að fjármála­áætlunin taki breytingum og ýmis atriði verði endur­skoðuð.

Þegar ríkis­fjármála­áætlun Bjarna Benedikts­sonar, núverandi forsætis­ráðherra, var samþykkt í fyrra voru engar efnislegar breytingar gerðar á henni í meðförum Alþingis. Eygló Harðar­dóttir, þáverandi félags- og húsnæðis­mála­ráðherra, sat hjá þegar greidd voru atkvæði um áætlunina og gaf þá ástæðu að þar væri ekki hlúð nægilega að barna­fjölskyldum, öldruðum og öryrkjum. Með þessu uppskar hún gríðar­lega hörð viðbrögð frá þungavigtar­fólki í Sjálfstæðis­flokknum og líkti Bjarni Benediktsson framgöngu hennar við hegðun leik­skólabarns. 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár