Trump krefst þess að New York Times opinberi huldumanninn

Opið bréf hátt setts embættis­manns innan Hvíta hússins var birt á vef New York Times í gær. Þar er Trump harðlega gagn­rýndur.

Donald Trump Bandaríkja­forseti krefst þess að ritstjórn New York Times gefi upp nafn þess sem skrifar opið bréf á vef New York Times í gær, en hann er sagður hátt settur embættis­maður í Hvíta húsinu. 

Þar er Trump gagn­rýndur harðlega og honum lýst sem vanhæfum forseta og segist höfundur vera hluti af andspyrnunni gegn honum í Hvíta húsinu.

Á Twitter síðu sinni hefur Trump farið hamförum og spyr að því hvort landráð hafi verið framið með þessum skrifum, ef höfundur er þá raun­verulega til. Trump gagnrýnir einnig New York Times almennt, og segir það fals­fréttamiðil.

Í bréfinu sem birt er á vef New York Times segir að Trump sé siðblindur og að fólk treysti honum ekki. Þá er hann sagður hafa dálæti á einræðis­herrum. Höfundur bréfsins segist einn þeirra sem telji það mikilvægt að vinna gegn forsetanum vegna þess að hann sé hættu­legur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár