Boris Johnson nýr utanríkisráðherra Bretlands

Theresa May, nýr for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur gert Boris Johnson að utan­rík­is­ráð­herra í stjórn sinni. Johnson mun því gegna veiga­miklu hlut­verki í útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu.

Boris John­son er þing­maður og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri í London, Hann var, ásamt Michael Gove, and­lit Leave-bar­átt­unar sem barð­ist fyrir útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu í aðdrag­anda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu þess efnis í lok síð­asta mán­aðar. Eftir að Bretar kusu með útgöngu áttu margir von á því að Johnson myndi sækj­ast eftir því að verða næsti for­maður Íhalds­flokks­ins og þar af leið­andi næsti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Hann til­kynnti hins vegar þann 30. júní að hann myndi ekki sækj­ast eftir for­mennsku í breska Íhalds­flokkn­um, og þar með ekki for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Ákvörðun John­son kom veru­lega á óvart, enda var hann tal­inn einn lík­leg­asti fram­bjóð­and­inn til þess að freista þess að taka við af David Camer­on, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra.

May, sem tók við völdum í dag, hefur einnig gert David Davis að sér­stökum Brexit-ráð­herra og skip­aði Phillip Hammond í emb­ætti fjár­mála­ráð­herra. George Osborne, frá­far­andi fjár­mála­ráð­herra og einn nán­asti sam­starfs­maður Cameron, var ekki boðið sæti í nýju rík­is­stjórn­inni. Amber Rudd hefur verið skipuð í emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra og Michael Fallon í emb­ætti varn­ar­mála­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár