Hannes Hólmsteinn kveðst loks orðinn ósammála Trump

Stjórnmála­fræðingurinn segist ekki haldinn trumptruflun, en að hann telji of langt gengið í Grænlands­málinu.

Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son Stjórn­mála­fræði­pró­fess­or­inn var lengi einn helsti hug­mynda­fræð­ingur Sjálf­stæðís­flokks­ins. Hann hefur verið sam­mála Banda­ríkja­for­seta í mörgu, þar til nú. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmála­fræðingur greinir frá því í kvöld að hann sé loks orðinn ósammála Donald Trump Bandaríkja­forseta, þegar kemur að yfirtöku Grænlands. Hann segir þó að margir séu haldnir Trumptruflunarheilkenni.

Hannes var lengi vel einn helsti hugmynda­fræðingur íslenskra stjórn­mála, sem náinn banda­maður Davíðs Oddssonar, áður forsætis­ráðherra og nú ritstjóra Morgun­blaðsins. Talaði Hannes fyrir harðri frjáls­hyggju, en eftir efnahags­hrunið var hann meðal annars fenginn af þáverandi formanni Sjálfstæðis­flokksins til að vinna skýrslu, fjár­magnaða af íslenska ríkinu, um erlendar orsakir hrunsins.

„Ég hef verið hlynntur mörgu, sem Trump gerir,“ segir Hannes Hólmsteinn á Facebook í kvöld.

„Evrópu­ríkin eiga að greiða sjálf fyrir varnir sínar. Rétt er að lækka skatta og fækka reglu­gerðum. Kenningin um hamfara­hlýnun er studd hæpnum rökum, enda hljóta loftslags­breytingar að vera að miklu leyti nátt­úrunnar verk, og því rétt að laga sig að þeim og virkja nýjustu tækni til þess. Karlar eiga ekki að keppa í kvenna­íþróttum. Landamæri geta ekki verið galopin fyrir þá, sem koma í þeim tilgangi einum að komast á bætur,“ segir hann.

Þá kvartar hann undan hugmynda­fræðilegum áherslum í háskólum í fjöl­miðlum. „Öfga­vinstrimenn hafa hreiðrað um sig í háskólum og á fjöl­miðlum og misnota aðstöðu sína,“ segir hann og lýsir stuðningi við málstað Ísraels, þrátt fyrir að alþjóða­stofnanir hafi komist að þeirri niður­stöðu að Ísrael stundi þjóðar­morð. Einnig styður hann ýmsar hernaðar­aðgerðir Trumps.

„Rétt er að styðja af alefli eina vestræna lýðræðis­ríkið í Miðausturlöndum, Ísrael. Það var þjóðþrifa­verk að sprengja í tætlur kjarnorku­búnað erkiklerk­anna í Íran og sækja Maduro til Venesúela, og sýndi hvort tveggja undra­verða tæknilega getu Bandaríkja­hers. Margt fleira má telja.“

Hannes tekur fram að þrátt fyrir að hann sé nú ósammála Trump í því máli sem viðkemur yfirtöku hans á Grænlandi, segist hann ekki haldinn trumptruflun.

„Ég hef ekki talið mig haldinn Trump-heilkenninu, Trump Derangement Syndrome, en sé það ljós­lifandi á sumum vinum mínum, sem geta ekki viðurkennt neitt rétt eða eðlilegt frá Trump. En í Grænlands­málinu hefur Trump farið langt fram úr sjálfum sér. Þessi færsla hans er með ólíkindum.“

Hannes bendir þar á færslu Bandaríkja­forseta þar sem hann hótar refsitollum upp á 10% og svo 25% gegn þeim þjóð­ríkjum sem standa gegn yfirtöku hans á Grænlandi.

Hótun TrumpBanda­ríkja­for­seti hótar Evr­ópu­þjóðum refsi­að­gerðum fall­ist þær ekki á yfir­töku hans á Græn­landi.
Kjósa
-4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PJ
    Pétur Jósafatsson skrifaði
    Hvenær í veröldinni var Hannes "einn helsti hugmyndafræðingur íslenskra stjórnmála" ????
    3
    • TM
      Tómas Maríuson skrifaði
      "... Sjálfstæðisflokksins" stendur undir myndinni og má það vel vera.
      0
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Þið vitið að Davíð kom þessari persónu á laun hjá okkur hinum án vinnuframlags fyrir okkur, en bara fyrir Davíð og flokkinn ! Trump og Hannes hvvað !
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár