Vilja greiða bætur til fjölskyldna sem aðskildar voru á landamærunum

Enn hefur ekki tekist að hafa uppi á öllum börnunum sem voru aðskilin frá foreldrum sínum á landa­mærunum í stjórnartíð Donalds Trump. Fjöl­skyldur sem í þessu harðræði lentu glíma enn við áfallið.

Tveggja ára barn frá Hondúras grætur á meðan landamæravörður leitar á móður þess við komuna til Bandaríkjanna. Myndin, sem John Moore tók í byrjun júní 2018 vakti heimsathygli.
Tveggja ára barn frá Hondúras grætur á meðan landamæra­vörður leitar á móður þess við kom­una til Banda­ríkj­anna. Myndin, sem John Moore tók í byrjun júní 2018 vakti heims­at­hygli. Mynd: Skjáskot: New York Times/John Moore

Ríkis­stjórn Joes Biden áformar að bjóða fjöl­skyldum sem var stíað í sundur á landa­mærum Banda­ríkjanna í stjórnartíð Donalds Trump bætur. Til stendur að bjóða hverjum einstaklingi sem fyrir þessu varð 450 þúsund dali sem samsvarar um 56 milljónum króna að því er heimildir Wall Street Journal herma. Í grein Wall Street Journal segir að innan­ríkis­ráðuneytið og dómsmála­ráðuneytið standi í viðræðunum fyrir hönd ríkis­stjórnar Bidens og að rætt sé um að bæturnar nemi tæpri einni milljón dala fyrir hverja fjöl­skyldu sem ströng innflytjenda­stefna Trumps bitnaði á þar sem hver þeirra hafi yfirleitt saman­staðið af einum full­orðnum einstaklingi og einu barni.

Með þessu reynir stjórn Bidens að ná sáttum í fjölda dómsmála sem höfðuð hafa verið af hálfu foreldra og barna sem voru aðskilin við komuna yfir landa­mærin frá Mexíkó í leit að hæli.

Í frétt Wall Street Journal segir að samninga­viðræður nái nú þegar til 940 fjöl­skyldna sem segja bæði fullorðna og börn sem aðskilin voru hafa orðið fyrir miklu áfalli og glíma við lang­varandi kvíða, streitu og aðra heilsufars­lega erfið­leika. Í sumum tilvikum voru börn aðskilin frá foreldrum sínum mánuðum og jafnvel árum saman.

Biden hét því í kosninga­baráttunni að gera róttækar breytingar á innflytjenda­löggjöfinni og er nú undir miklum þrýstingi að standa við þau loforð.

Er Trump komst til valda árið 2016 hóf hann undir­búning að hertri innflytjenda­löggjöf. Árið 2018 færði hann svokallaða „núll stefnu“ gagnvart innflytjendum í lög sem gekk út á að koma í veg fyrir með öllum ráðum að fólk sem ekki hefði tryggt sér dvalar­leyfi kæmist inn í Banda­ríkin. Stefnan fólst einnig í því að leita uppi óskráða innflytjendur sem þegar voru komnir til landsins og höfðu sumir hverjir búið þar árum og jafnvel áratugum saman.

Komið fyrir í fóstri

Samkvæmt laga­breytingunni var koma til Banda­ríkjanna án dvalar­leyfa gerð ólögleg og fullorðið fólk var sótt til saka fyrir slíkt og vísað úr landi. Börn þeirra, meðal annars ungbörn, voru tekin af foreldrum sínum eða öðrum forráða­mönnum og sett í sérstakar búðir. Þaðan voru þau svo flutt til ýmissa staða innan Banda­ríkjanna, er rifjað upp í frétt Al Jazeera um málið. Mörgum þeirra var komið fyrir í fóstri.

Talið er að þetta hafi verið gert við meira en 5.500 fjöl­skyldur.

Stefna Trumps var gagnrýnd harðlega um allan heim og aðeins nokkrum mánuðum eftir að hún var sett á var hún afnumin. Hins vegar var stefnunni bæði framfylgt áður en hún var sett í lög og einnig lengi eftir að hún var sögð fallin úr gildi.

Mann­réttinda­samtökin American Civil Liberties Union (ACLU) segja að enn séu nokkur hundruð fjöl­skyldur aðskildar. Þau segja að Trump-stjórnin hafi ekki haldið nákvæma skráningu um fólkið sem tekið var við landa­mærin með þessum hætti og því sé oft ómögulegt fyrir foreldra að hafa uppi á börnum sínum.

Þrátt fyrir að Biden hafi gagnrýnt stefnu Trump harðlega hefur hann ekki afnumið laga­ákvæði um að hægt sé að vísa hælis­leitendum frá Banda­ríkjunum um leið og þeir koma yfir landa­mærin í suðri sem gerir þeim ókleift að sækja um hæli í landinu. Stjórn­völd hafa sagt að ákvæðið sé enn í gildi vegna heims­faraldursins. Ein breyting hefur þó verið gerð sem er að börn sem koma ein yfir landa­mærin frá Mexíkó geta sótt um hæli og er ýmist komið í umsjá ættingja í Banda­ríkjunum eða stuðnings­fulltrúa sem ríkið útvegar þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár