Brotist inn í tölvupósta bandarískra saksóknara

Óttast er að viðkvæmum gögnum hafi verið stolið er brotist var inn í tölvur tæplega þrjátíu embætta saksóknara í Banda­ríkjunum á síðasta ári. Bandarísk yfirvöld telja Rússa standa að baki árásinni.

Joe Biden forseti Bandaríkjanna tilkynnti í apríl að viðskiptaþvingunum yrði beitt á Rússland vegna njósnanna.
Joe Biden for­seti Banda­ríkj­anna til­kynnti í apríl að við­skipta­þving­unum yrði beitt á Rússland vegna njósn­anna. Mynd: EPA

Bandaríska dómsmála­ráðuneytið segir að brotist hafi verið inn í tölvu­póstforrit tæplega þrjátíu embætta saksóknara í landinu á síðasta ári. Til verksins var notaður bandaríski hugbúnaðurinn SolarWinds en fyrir­tækið sem hann selur hafði sjálft orðið fórnar­lamb tölvu­innbrots á síðasta ári. Bandarísk yfirvöld telja Rússa standa að baki tölvu­árásinni og ríkis­stjórn Joe Bidens setti viðskipta­þvinganir á Rússland í apríl. Óttast er að tölvu­þrjótarnir hafi með athæfinu komist yfir viðkvæmar upplýsingar, mögulega nöfn á uppljóstrurum.

BBC hefur eftir fyrr­verandi saksóknara í Banda­ríkjunum að tölvu­póstar sem berast embættum saksóknara geti inni­haldið mjög viðkvæmar upplýsingar og mikil trúnaðarmál. Hafi þrjótunum tekist að komast yfir nöfn uppljóstrara gæti það stefnt þeim í voða.

Upp komst um innbrotið í desember á síðasta ári en talið er að það hafi jafnvel hafist í maí í fyrra. Ljóst er að það er umfangs­mikið og að mögulega hafi þeim sem að því stóðu tekist að komast inn í 18 þúsund tölvur opinberra aðila sem og einka­aðila.

Brosti var m.a. inn í tölvupósts­forrit starfs­manna fjögurra embætta saksóknara í New York, embætta sem hafa iðulega með höndum rann­sóknir á stórum sakamálum, m.a. meintum fjársvika­málum.

Dómsmála­ráðuneytið segir að nú þegar umfangið sé ljóst hafi allir sem mögulega urðu fyrir innbrotinu verið látnir vita og öryggi hert. Ráðuneytið hefur hins vegar ekki greint frá því hvaða gögnum var stolið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár