Gífurleg aukning fíkniefnadauðsfalla dregur úr lífslíkum

Frá því í byrjun árs 2014 hafa næstum 240 þúsund einstak­lingar dáið úr of stórum skammti fíkniefna í Banda­ríkjunum.

Lífslíkur í Banda­ríkjunum lækkuðu um 0,1 ár milli ára og eru þær nú metnar 78,6 árs. Þetta er annað árið í röð sem lífs­líkurnar lækka milli ára og segir Robert Anderson, yfirmaður Stofnunar Banda­ríkjanna á sviði hagtalna um heilbrigðismál (NCHS), í viðtali við breska ríkis­útvarpið BBC, að tölurnar séu „sjokkerandi“.

Þetta hefur ekki gerst í Banda­ríkjunum tvö ár í röð síðan á árunum 1962 til 1963.

Lækkunin nú er rakin til gífurlegrar aukningar dauðsfalla vegna fíkniefna, en í fyrra létust 64 þúsund manns í Banda­ríkjunum af þeim sökum.

Flestir létust vegna efna á borð við morfín, heróín, kó­dín, meta­dón og petidín. En algjör­lega stjórn­laus aukning virðist vera á framboði fíkniefna í hinu ógnar­stóra svarta hagkerfi landsins. Á það á við um svonefnd náttúruleg fíkniefni, eins og kókaín og heróín, en einnig verksmiðju­framleidd efni og lyfseðils­skyld lyf (læknadóp).

Á árunum 2014, 2015, 2016 og það sem af er 2017, hafa látist nærri 240 þúsund einstaklingar í Banda­ríkjunum vegna of stórra skammta af fíkni­efnum.

Donald Trump Bandaríkja­forseti hefur hrint af stað átaki til að sporna gegn aukningunni, en afar deildar meiningar eru innan bandaríska stjórn­kerfisins um hvernig eigi að bergjast gegn aukningunni.

Jeff Sessions, dómsmála­ráðherra, vill beita meiri hörku og þyngri refsingum, til að reyna að ná tökum á flæði fíkn­efnanna um samfélögin, en því eru margir leiðtogar á sviði stjórn­mála í Banda­ríkjunum algjör­lega ósammála. Bara borgar­stjórnir víða í Banda­ríkjunum meðal annars hvatt til þess að stjórn­völd endur­skoði stefnu sína, og beiti sér frekar fyrir því að fíklum verði hjálpað með læknis- og meðferðar­hjálp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár