Bermúda-skjölin næst upp á yfirborðið

Gögnum frá lögmanns­stofu á Bermúda var stolið. Búist er við afhjúpandi umfjöllunum um auðmenn á næstunni.

Upplýsingar um viðskipti og eignir auðugra einstaklinga sem voru viðskipta­vinir lögmanns­stofunnar Appleby, sem er með aðsetur á Bermúda í Karíbahafinu, verða gerðar opinberar á næstunni.

Tilkynnt hefur verið um það, að brotist hafi verið inn í tölvu­kerfi fyrir­tækisins að þaðan stolið töluvert af gögnum. Forsvars­menn Appleby neita að lög hafi verið brotin, en margir af þeim blaða­mönnum sem unnu að því að fjalla um upplýsingar upp úr Panama-skjölum hafa þegar sett sig í samband við stofuna til að leita viðbragða í tengslum við umfjöllun.

Stofan heitir því að starfa með yfir­völdum ef til rann­sóknar kemur.

Samkvæmt umfjöllun The Telegraph er talið líklega að fjölmargir auðugir Bretar séu á meðal viðskipta­vina lögmanns­stofunnar.

Alþjóða­samtök rannsóknar­blaðamanna, ICIJ, unnu að birtingu Panama-skjalanna í samvinnu við fjölmiðla um allan heim. Á meðal þeirra var Reykjavík Media, fyrirtæki Jóhannesar Kr. Kristjáns­sonar, sem síðan vann með íslenskum fjöl­miðlum - Kjarnanum þar á meðal - að mörgum umfjöllunum upp úr skjölunum.

Afhjúpunin leiddi til þess að skatta­yfirvöld á Íslandi hófu rannsókn og athugun á málum, og hafa þau ekki öll verið til lykta leidd enn. Opnuð hafa verið 250 mál, samkvæmt upplýsingum sem komu fram í ársskýrslu Ríkis­skattstjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár