5.605 íslenskar fjölskyldur áttu 29,2 milljarða króna á erlendum reikningum

Innstæður lands­manna jukust um 84 milljarða króna á árinu 2020. Í lok þess árs voru þær ekki langt frá því sem inni­stæður voru árið 2008, fyrir bankahrun, þegar þær voru mestar í Íslands­sögunni.

Þeim peningum sem Íslendingar geyma á innstæðureikningum fjölgaði umtalsvert á árinu 2020.
Þeim pen­ingum sem Íslend­ingar geyma á inn­stæðu­reikn­ingum fjölg­aði umtals­vert á árinu 2020. Mynd: Anton Brink

Innstæður lands­manna jukust mikið á árinu 2020 stóraukist og slöguðu lang­leiðina upp í það sem þær voru árið 2008, þegar þær voru í methæðum. Landsmenn áttu 940,3 milljarða króna á banka­reikningum í lok árs 2020, sem var 84 milljörðum eða 9,8 prósent meira en á sama tíma árið áður. Frá árinu 2013 hafa þær aukist um 332,4 milljarða króna.

Þetta kemur fram í umfjöllun um álagn­ingu ein­stak­linga á árinu 2021 í Tíund, frétta­blaði Skatts­ins, sem Páll Kol­beins rekstr­ar­hag­fræð­ingur skrif­ar.

Kórónu­veiru­faraldurinn spilar þarna stóra rullu. Erfiðara var að eyða peningum á árinu 2020 en árin á undan, meðal annars vegna þess að það var einfald­lega ekki hægt að ferðast til útlanda. Íslendingar voru að eyða um 200 milljörðum króna í öðrum löndum á ári áður en kórónu­veiran lét á sér kræla. Á sama tíma lækkuðu vextir af lánum skarpt, sem lækkaði samhliða fjármagns­kostnað fólks, og samnings­bundnar launa­hækkanir tóku gildi. Þá lækkuðu stjórn­völd kostnað af viðhalds­framkvæmdum með endur­greiðslum á virðis­aukaskatti undir hatti átaksins „Allir vinna“, sem gerði það að verkum að milljarðar króna sem ella hefðu runnið í ríkissjóð sátu áfram inni á banka­reikningum fólks og fyrir­tækja.

Allar innstæður tryggðar í hruninu

Þegar neyðarlög voru sett á Íslandi 6. októ­ber 2008 voru inn­­­­­stæður í bönkum gerðar að for­­­gangs­­­kröfum í slitabú þeirra banka sem féllu í kjöl­far­ið, og lögin náðu til. Sam­hliða gaf rík­­­is­­­stjórn Íslands út yfir­­­lýs­ingu um að allar inn­­­­­stæður á Íslandi væru tryggðar og á grund­velli þeirrar yfir­­­lýs­ingar voru inn­­­­­lendar inn­­­­­stæður færðar með handafli inn í nýja banka sem stofn­aðir voru á grunni hinna fölln­u.

Yfir­­lýs­ingin hafði þó aldrei haft neitt laga­­­legt gildi, heldur byggði á því að stjórn­­­völd höfðu sýnt það í verki að þau myndu tryggja inn­­­­­stæður ef á það myndi reyna.

Í sept­em­ber 2016 ákvað rík­is­stjórn Íslands að fella yfir­lýs­ing­una um ábyrgð rík­is­sjóðs á inn­stæðum úr gildi, en þá átti ríkið allt hlutafé í tveimur af þremur stærstu bönkum lands­ins og 13 pró­sent hlut í þeim þriðja.

Í Tíund sem birt var í fyrravor sagði að á hrunárinu 2008 hafi inn­stæður 183.765 fjöl­skyldna verið árit­aðar á skatt­fram­tal en þá voru inn­stæður 933,7 millj­arðar og inn­stæður barna um 24,1 millj­arð­ur. „Inn­stæður juk­ust því um 471,9 millj­arða eftir að þær voru árit­aðar eða 102,2 pró­sent og inn­stæður barna um 21 millj­arð.“

Uppreiknað að teknu tilliti til verðbólgu er sú upphæð tæplega 967 milljarðar króna á gengi ársins 2020.

Næstu árin minnk­uðu inn­stæð­urnar jafnt og þétt, eða alls um 40,5 pró­sent til árs­ins 2013. Það sama gilti um inn­stæður barna, sem dróg­ust saman um 21,1 pró­sent. Í nýja góð­ær­inu, sem hófst af alvöru 2013, fóru inn­stæð­urnar svo að vaxa á ný og voru, líkt og áður sagði, 940,3 milljarðar króna í lok árs 2020.

Umtalsvert fé á erlendum reikningum

Alls 5.605 íslenskar fjöl­skyldur áttu 29,2 milljarða króna á erlendum reikningum samkvæmt umfjöllun í nýjustu Tíundar.

Þar segir að það veki nokkra athygli að erlendar innstæður hafi aukist um 4,3 milljarða króna, eða 17,2 prósent á milli ára. „Gengis­breytingar kunna hér að valda nokkru.“

Vaxta­tekjur af banka­innstæðum drógust hins vegar verulega saman milli ára. Þar skiptir mestu að stýri­vextir Seðla­banka Íslands voru lækkaðir niður í 0,75 prósent eftir að faraldurinn skall á og héldust þar fram á vormánuði 2021, þegar þeir tóku aftur að hækka. Fyrir vikið fengu þeir sem geymdu peninganna sína á banka­reikningum minni vaxta­greiðslur frá bönkunum sem fengu þá lánaða, en vaxta­tekjur bankanna sjálfra stórjukust hins vegar samhliða.

Í Tíund segir að landsmenn hafi talið fram ellefu milljarða króna í vexti af innstæðum í bönkum á árinu 2020, sem var 8,4 milljörðum krónum minna en árið áður. Um er að ræða samdrátt upp á 43,3 prósent.

Þeir sem áttu innstæður erlendis töldu fram 179 milljónir króna í vexti sem var 16 milljónum króna minna en árið áður og börn fengu 222 milljónir króna í vexti á innstæður árið 2020, sem var fimm milljónum krónum minna en árið áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár