Árið 2021 var ár íslensku bankanna sem græddu á tá og fingri

Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á gripu Seðla­banki Íslands og stjórn­völd til marg­hátt­aðra aðgerða til að gera bönkum kleift að takast á við versn­andi efna­hags­á­stand.

Árið 2021 var að mörgu leyti ár bank­anna. Þeir græddu á tá og fingri og nýttu sér það svig­rúm sem stjórn­völd og Seðla­banki Íslands veitti þeim til að bregð­ast við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum út í ystu æsar.

Eftir að hafa tapað sam­tals 7,2 millj­­örðum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2020 end­uðu stóru bank­­arnir þrír með sam­eig­in­­legan hagnað upp á 29,8 millj­­arða króna á öllu síð­­asta ári.

Arion banki (22,1 millj­arður króna), Lands­bank­inn (21,6 millj­arðar króna) og Íslands­banki (16,6 millj­arðar króna) högn­uð­ust svo um sam­tals 60,3 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021. Mestur hagn­aður féll til á þriðja árs­fjórð­ungi, eða alls 23 millj­arðar króna.

Sam­eig­in­legur hagn­aður bank­anna á þessu níu mán­aða tíma­bili er meiri en hann hefur verið innan heils árs frá árinu 2015.

Aðgerðir yfirvalda skiptu miklu máli

Hvað var gert til að skapa þessar aðstæður? Tvennt má nefna sér­stak­lega. Annars vegar var svo­kall­aður sveiflu­jöfn­un­ar­auki afnum­inn tíma­bundið í fyrra­vor. Hann er við­­­bót­­­ar­­­kröfur á eigið fé fjár­­­­­mála­­­fyr­ir­tækja umfram lög­­­bundnar eig­in­fjár­­­­­kröfur til að sporna gegn miklum sveiflum í fjár­­­­­mála­­­kerf­inu. Ef mikil hætta er á þenslu getur Seðla­­­bank­inn hækkað auk­ann til að koma í veg fyrir of mik­inn útlána­vöxt, en ef hætta er á sam­drætti getur bank­inn lækkað auk­ann til að efla útlána­­­getu fjár­­­­­mála­­­fyr­ir­tækj­anna.

Þegar sveiflu­­jöfn­un­­ar­auk­inn var afnumin í mars í fyrra var það gert til að auka þrótt efna­hags­lífs­ins til að takast á við afleið­ingar kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­s­ins ­með því að skapa svig­­­rúm til nýrra útlána sem átti að nema allt að 350 millj­­­örðum króna. Þorri þessa svig­­rúms hefur verið nýtt í að lána til hús­næð­is­­kaupa. En aukið aðgengi að ódýru lánsfé, vegna þess að stýri­vextir voru lækk­aðir niður í 0,75 pró­sent, hefur líka haft sitt að segja um hækkun á hluta­bréfum. Úrvals­vísi­tala Kaup­hallar Íslands hefur hækkað um 112 pró­sent frá því í mars í fyrra.

Á einu ári hafa hluta­bréf í Arion banka hækkað um 104 pró­­sent, hluta­bréf í Kviku banka um 73 pró­­sent og bréf í Íslands­­­banka hafa hækkað um 55 pró­­sent frá því í sum­­­ar, þegar hann var skráður á mark­að. Lands­bank­inn er ekki skráður á markað.

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd ákvað í sept­em­ber síð­ast­liðnum að end­­ur­vekja sveiflu­­jöfn­un­­ar­auk­ann til að auka þrótt kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna þriggja til að lána heim­ilum og fyr­ir­tækj­u­m. Seðla­bank­inn hóf svo vaxta­hækk­un­ar­ferli í vor og nú eru stýri­vextir komnir í tvö pró­sent.

Ríkið gaf eftir milljarðatekjur

Hins vegar var banka­skattur lækk­aður hraðar en áður var stefnt að, úr 0,376 í 0,145 pró­­sent á heild­­ar­skuldir þeirra banka sem skulda yfir 50 millj­­arða króna. Alls borga fimm fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki skatt­inn en þorra hans greiða stóru bank­­arnir þrír: Lands­­bank­inn, Íslands­­­banki og Arion banki.

Lækkun bankaskatts var hluti af fyrsta aðgerðarpakkanum sem ríkisstjórnin kynnti til sögunnar til að takast á við efnahagslegar afleiðingar kórónuveirufaraldursins.
Lækkun banka­skatts var hluti af fyrsta aðgerð­ar­pakk­anum sem rík­is­stjórnin kynnti til sög­unnar til að takast á við efna­hags­legar afleið­ingar kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Síð­­asta rík­­is­­stjórn, sem nú hefur end­­ur­nýjað sam­­starf sitt, hafði lengi stefnt að því að lækka skatt­inn, sem hafði skilað rík­­is­­sjóði miklum tekjum í kjöl­far banka­hruns­ins, fyrst með að leggj­­ast af krafti á þrotabú föllnu bank­anna og síðan með því að leggj­­ast á starf­andi íslenska við­­skipta­­banka.

Í kjöl­far kór­ón­u­veiru­far­ald­­­ur­s­ins var lækk­­­un­inni flýtt og gjald­hlut­­­fallið var fært niður í 0,145 pró­­­sent vegna skulda í árs­­­lok 2020. Hún kom því öll til fram­­kvæmda í fyrra í stað þess að verða í skrefum á fjórum árum.

Fyrir vikið lækk­­aði álagður banka­skattur sem rík­­is­­sjóður lagði á bank­ana um 6,1 millj­­arð króna vegna árs­ins 2020 og var 4,8 millj­­arðar króna. Það er lækkun upp á 56,2 pró­­sent.

Áætlað er að hann verði 4,8 millj­­arðar króna í ár og tæp­­lega 5,3 millj­­arðar króna á næsta ári.

Skörp lækkun banka­skatts­ins, hefur ekki skilað því að vaxta­munur banka hafi lækkað sem neinu nemur en spilað inn í miklar hækk­­­anir á virði hluta­bréfa í þeim bönkum sem skráðir eru á mark­að.

Hafa tvöfaldast að stærð

Eigið fé bank­anna þriggja, sem voru stofn­settir á grunni fall­inna fyr­ir­renn­ara sinna haustið 2008, hefur vaxið mikið. Það var sam­an­lagt tæp­lega 300 millj­arðar króna árið 2008 en var komið upp í rúm­lega 667 millj­arða króna sam­an­lagt í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Á manna­máli þýðir það að bank­arnir eru rúm­lega tvisvar sinnum stærri nú en þeir voru við stofn­un.

Erfitt er hins vegar að horfa ein­ungis á krónur þegar rýnt er í hagn­að­ar­tölur kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna hér­lend­is. Taka verður til­lit til þess að þeir högn­uð­ust að stóru leyti áður á eigna­sölu og betri end­ur­heimtum á lán­um.

Tekjur bank­anna á þessu ári eru allt ann­ars eðl­is. Þær falla ann­ars vegar til vegna auk­inna vaxta- og þókn­ana­tekna og hins vegar til vegna þess að var­úð­ar­nið­ur­færslur á lánum fyr­ir­tækja sem lentu í vanda eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á hafa verið dregnar að hluta til bak­a. Þar hafa aðgerðir stjórn­valda og seðla­banka til að örva efna­hags­kerfið í kjöl­far kór­ónu­veiru­krepp­unnar skipt miklu máli. Þær hafa leitt til mik­illa verð­hækk­ana á hús­næð­is­mark­aði vegna stór­auk­innar eft­ir­spurn­ar, aðal­lega vegna þess að vextir voru lækk­aðir skarpt. Þá hefur hluta­bréfa­verð rúm­lega tvö­fald­ast frá því í mars í fyrra.

Arðsemi eigin fjár mjög mikil

Einn mæli­kvarði sem er not­aður til að mæla árangur banka er arð­semi eigin fjár. Þangað til í ár var hún hæst á árunum 2010 og 2016 (tæp­lega 16 pró­sent að með­al­tali hjá öllum þremur bönk­um). Í ár stefnir hún í að vera sú hæsta í mörg ár. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins var arð­semi eigin fjár hjá Lands­bank­anum 10,9 pró­sent, hjá Íslands­banka 11,7 pró­sent og hjá Arion banka heil 15,2 pró­sent. Allt er þetta yfir mark­miðum bank­anna.

Þegar horft er á síð­asta birta árs­fjórð­ung, sem hófst í byrjun júlí og lauk í lok sept­em­ber, er arð­semin enn hærri. Hjá Arion banka var arð­semin 17 pró­sent, hjá Íslands­banka 15,7 pró­sent og hjá Lands­bank­anum ell­efu pró­sent. Það er ekki langt frá bestu árum bank­anna eftir hrun.

Tímabil hárra arðgreiðslna og mikilla endurkaupa runnið upp

Íslands­banki var skráður á markað í sumar þegar ríkið seldi 35 pró­sent af hlut sínum í honum. Stefna rík­is­stjórn­ar­innar er að selja rest­ina af eign­ar­hlut sínum á næstu tveimur árum.

Íslandsbanki var skráður á markað í júní. Hér sést Birna Einarsdóttir, bankastjóri bankans, hringja inn viðskipti með bréf í bankanum við það tilefni.
Íslands­banki var skráður á markað í júní. Hér sést Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri bank­ans, hringja inn við­skipti með bréf í bank­anum við það til­efni.

Yfir­­lýst mark­mið bank­ans er að greiða út 50 pró­­sent af hagn­aði hvers árs í formi hefð­bund­inna arð­greiðslna. Þá ætlar hann auk þess að nýta umfram eigið fé bank­ans til frek­­ari arð­greiðslna eða kaupa á eigin bréf­­um.

Sá kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna sem hefur leitt útgreiðslur til hlut­hafa sinna á því tíma­bili sem liðið er frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á er hins vegar Arion banki. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021 greiddi Arion banki 25,5 millj­­arða króna til hlut­hafa sinna í formi arðs upp á 2,9 millj­­arða króna með end­­ur­­kaupum á eigin bréfum þeirra upp á 22,7 millj­­arða króna.

Bank­inn hefur þegar til­­kynnt að hann ætli að kaupa eigin bréf af hlut­höfum fyrir tíu millj­­arða króna á síð­­­ustu þremur mán­uðum árs­ins og greiða þeim 11,3 millj­­arða króna í arð. Það þýðir að frá byrjun árs og með þeim arð- og end­­ur­­kaupa­greiðslum sem hann hefur þegar ákveðið mun Arion banki skila 46,8 millj­­örðum króna til hlut­hafa sinna.

Í kynn­ingu á mark­aðs­degi Arion banka, sem fór fram í nóv­em­ber, kom fram að von sé á meiru. Miðað við mark­mið Arion banka um hvert eig­in­fjár­­hlut­­fall hans ætti að vera telja stjórn­­endur bank­ans hægt að losa um 30,1 millj­­arð króna til við­­bótar til hlut­hafa án þess að fara niður fyrir þau mörk. Ef salan á greiðslu­mið­l­un­­ar­­fyr­ir­tæk­inu Valitor til ísra­elska fyr­ir­tæk­is­ins Rapyd, sem ákveðin var í sum­­­ar, verður sam­­þykkt af Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu eiga að losna á bil­inu átta til ell­efu millj­­arðar króna til við­­bótar sem hægt yrði að greiða út til hlut­hafa.

Því er ljóst að ef áform Arion banka um arð­greiðslur og end­­ur­­kaup frá byrjun síð­­asta árs og þangað til að hlut­­fall eig­in­fjár­þáttar 1 hjá bank­­anum er komið niður í 17 pró­­sent ganga eft­ir, og Sam­keppn­is­eft­ir­litið heim­ilar söl­una á Valitor, munu hlut­hafar hans fá um 84,9 til 87,9 millj­­arða króna út úr honum frá byrjun árs 2020 og þar til þessu útgreiðslu­­ferli er lok­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2021

Mest lesið undanfarið ár