Öll félögin á aðalmarkaði hækkuðu mikið í fyrra – Arion banki tvöfaldaðist í virði

Það félag á skráðum mark­aði á Íslandi sem er með mest erlend umsvif og í mestum erlendum vexti hækk­aði minnst allra í verði á árinu 2021. Bankar ruku sér­stak­lega mikið upp í virði. Fjöldi við­skipta hefur ekki verið meiri frá því fyrir hrun.

Kauphöll Íslands.
Kauphöll Íslands. Mynd: Reitir

Virði bréfa í Arion banka hækk­aði um 100,5 pró­sent á síð­asta ári, og meira en nokkur önnur hluta­bréf sem skráð eru í Kauphöll Íslands. Alls er mark­aðsvirði bank­ans nú 291,7 millj­arðar króna. Því hækk­aði virði hluta­bréf­anna um 146 millj­arða króna á árinu 2021. Stærstu eig­endur Arion banka eru líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, en sam­an­lagt eiga þeir að minnsta kosti 41,5 pró­sent beinan hlut í bank­anum. Stærstu einka­fjár­fest­arnir eru fjár­fest­inga­fé­lagið Stoðir með 4,73 pró­sent hlut og Hvalur hf., í eigu Krist­jáns og Birnu Lofts­barna, með 2,22 pró­sent hlut. Aðrir bankar sem skráðir eru á markað hækk­uðu líka mikið í virði. Hluta­bréf í Íslands­banka hækk­uðu um 59,7 pró­sent frá útboðs­gengi í hluta­fjár­út­boði bank­ans í fyrra­sumar og bréf í Kviku banka hækk­uðu um 54,9 pró­sent.

Bréf í öllum félögum sem skráð eru á aðal­markað Kaup­hall­ar­innar hækk­uðu í fyrra.

Minnst var hækk­unin í langstærsta fyr­ir­tæk­inu sem skráð er í Kaup­höll­ina, Marel, en bréf í því félagi hækk­uðu um 10,9 pró­sent. Marel er einnig þá skráða félag sem er í mestum alþjóð­legum vaxt­arfasa og með mest erlend umsvif allra þeirra félaga sem skráð eru á íslenskan hluta­bréfa­markað. Bréf Marel eru einnig skráð á markað í Hollandi en mark­aðsvirði þeirra í íslensku Kaup­höll­inni er 663,5 millj­arðar króna.

Það vekur athygli að bréf í Marel hækk­uðu minna en bréf í Icelandair, sem hefur glímt við marg­hátt­aða erf­ið­leika vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins og ferða­tak­mark­ana sem hann hefur kallað á. Icelandair hefur tapað nálægt 60 millj­örðum króna á árinu 2020 og á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021. Á því tíma­bili fór félagið tví­vegis í hluta­fjár­aukn­ingu og sótti sér yfir 30 millj­arða króna í nýtt hlutafé.

[adspot]Bréf í Icelandair hækk­uðu samt sem áður um ell­efu pró­sent á síð­asta ári.

Ekki verið fleiri viðskipti frá því fyrir hrun

Í sam­an­tekt Nasdaq Iceland, sem rekur íslensku Kaup­höll­ina, vegna síð­asta árs kemur fram að heild­ar­vísi­tala hluta­bréfa hafi hækkað alls um 40,2 pró­sent á árinu 2021. Heild­ar­við­skipti með bréf voru 1.071 millj­arður króna og juk­ust um 77 pró­sent milli ára. Mest var verslað með bréf í Arion banka, eða fyrir 259,8 millj­arða króna. Fjöldi við­skipta jókst líka mikið, alls um 79 pró­sent milli ára, og þau hafa ekki verið fleiri í 14 ár, eða frá því fyrir banka­hrun.

Bréf í Eim­skipa­fé­lag­inu hækk­uðu næst mest á árinu, eða um 95,7 pró­sent. Mark­aðsvirði félags­ins er nú 88,5 millj­arðar króna. Stærsti eig­andi Eim­skipa­fé­lags er Samherji Holding, með 32,8 pró­sent eign­ar­hlut.

Origo hækk­aði líka mikið á árinu sem var að líða, eða um 80,5 pró­sent. Alls hækk­uðu 15 félög á aðal­mark­aði um meira en 30 pró­sent á árinu og níu þeirra hækk­uðu um meira en 50 pró­sent.

Eina félagið í Kaup­höll­inni sem lækk­aði í virði á síð­asta ári var Solid Clouds, sem er skráð á First North mark­að­inn.

Bréf í því félagi, sem skráð var á markað í júlí 2021, lækk­uðu um 26,6 pró­sent frá útboðs­gengi.

Hundruð milljarða flæða til hluthafa

Kaup­höllin tekur ekki lengur saman upp­lýs­ingar um hversu mikið félög skráð á mark­aði greiða sam­tals í arð eða nota til að kaupa eigin bréf til baka, og skila þannig fjár­munum til hlut­hafa sinna. Innherji, und­ir­vefur á Vísi sem fjallar um við­skipti, tók hins vegar saman upp­lýs­ingar um það skömmu fyrir ára­mót og sam­kvæmt þeirri úttekt greiddu félög skráð í Kauphöll meira en 80 millj­arða króna út í arð og í end­ur­kaup á eigin bréfum á síð­asta ári. Það er aukn­ing upp á tæp­lega 50 millj­arða króna milli ára.

Í sömu úttekt kemur einnig fram að senni­legt sé að arð­greiðslur og end­ur­kaup auk­ist gríð­ar­lega á árinu 2022 og verði á bil­inu 150 til 200 millj­arðar króna.

Bara Arion banki, það félag sem jók virði sitt hlut­falls­lega mest á síð­asta ári, greiddi út 25,5 millj­arða króna til hlut­hafa sinna á fyrstu níu mán­uðum síð­asta árs og til­kynnti í haust að hann ætl­aði að greiða um og yfir 60 millj­arða króna til við­bótar í nán­ustu fram­tíð. Ef áform bank­ans ganga að fullu eftir er gert ráð fyrir því að hlut­hafar hans fái 87,9 millj­arða króna út úr honum frá byrjun árs 2020 og þar til útgreiðslu­ferl­inu er lokið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár