Af hverju græða íslensku bankarnir svona mikið af peningum?

Sam­an­lagður hagn­aður þeirra þriggja banka sem voru end­ur­reistir eftir banka­hrunið frá byrjun og til dags­ins í dag er tæp­lega 706 millj­arðar króna. Fyrstu árin var mikið um ein­skipt­is­hagnað.

Í fyrra­sumar birti Seðla­banki Íslands nýja útgáfu af Fjár­mála­stöð­ug­leika­riti sínu. Um var að ræða fyrsta slíka ritið sem kom út frá þvi að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á. Í því birt­ist sviðs­mynda­grein­ing á áhrifum far­ald­urs­ins á stöðu kerf­is­lega mik­il­vægu bank­ana þriggja: Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka.

Í jákvæð­ustu sviðs­mynd­inni var gert ráð fyrir því að áhrifin á hagnað bank­anna yrðu þau að hann yrði í kringum núllið frá miðju ári 2020 og fram á mitt ár 2021. Svo myndi hagn­að­ur­inn fara að aukast, þegar liði á árið 2021. Vert er að taka fram að þarna voru ekki komin fram nein bólu­efni við kór­ónu­veirunni, sem breyttu ekki ein­vörð­ungu hinum heil­brigð­is­lega veru­leika heldur einnig þeim efna­hags­lega.

Í miðsvið­mynd­inni var gert ráð fyrir að bank­arnir myndu skila tap­rekstri í fyrra og í ár, einkum vegna virð­is­rýrn­unar útlána upp á 140 millj­arða króna. Hagnaður átti svo að fara að mynd­ast á árinu 2022 þegar virð­is­rýrnun hefði færst í eðli­legt horf og hreinar vaxta­tekjur gætu vaxið á ný með batn­andi gæðum lána­safns og auknum útlána­vexti.

Í þriðju, og svört­ustu, sviðs­mynd­inni var gert ráð fyrir að bank­arnir þrír yrðu reknir í umtals­verðu tapi fram á mitt ár 2022 og að virði útlána þeirra myndi rýrna um 210 millj­arða króna.

Þegar þessi spá var sett fram lá fyrir að bank­arnir þrír hefðu tapað sam­tals 7,2 millj­örðum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2020, sem var nei­kvæður við­snún­ingur upp á 17,6 millj­arða króna frá árinu áður. Stjórn­völd og Seðla­banki Íslands höfðu gripið til ýmissa aðgerða til að efla við­náms­þrótt bank­anna vegna ástands­ins. Þar má nefna ákvörðun rík­is­stjórn­ar­innar um að lækka banka­skatt, sem skil­aði rík­is­sjóði á milli sjö til átta millj­örðum krónum minna í tekjur í fyrra, og ákvörðun Seðla­bank­ans um að afnema sveiflu­jöfn­un­ar­auka, sem los­aði veru­lega um það fé sem bank­arnir þurftu að halda á. Þá voru stýri­vextir lækk­aðir úr 4,5 pró­sent niður undir eitt pró­sent á rúmu ári, sem átti að skila sér í betri kjörum fyrir við­skipta­vini bank­anna, jafnt heim­ila sem fyr­ir­tækja.

Nú, rúmu ári síðar, hafa bank­arnir birt upp­gjör sín fyrir árið 2020 og fyrri hluta árs­ins 2021. Og þau sýna allt annan veru­leika en þann sem Seðla­bank­inn spáði.

Stóraukinn hagnaður í heimsfaraldri

Í fyrra reynd­ust bank­arnir fljótir að snúa við erf­iðri stöðu og á end­anum var sam­eig­in­legur hagn­aður þeirra 29,8 millj­arðar króna á árinu öllu. Sá hagn­aður varð til á síð­ari hluta þess árs, þegar sam­an­lagður hagn­aður bank­anna var um 30 millj­arðar króna. Það er meiri hagn­aður á hálfu ári en þeir skil­uðu allt árið 2019, þegar kór­ónu­veiran var ekki komin til sög­unnar á Íslandi.

Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2021 hagn­að­ist Lands­bank­inn um 14,1 millj­arð króna, Arion banki hagn­að­ist um 13,9 millj­arða króna og Íslands­banki um níu millj­arða króna. Sam­an­lagður hagn­aður þeirra var því um 37 millj­arðar króna. Það er meiri hagn­aður en bank­arnir þrír skil­uðu sam­tals allt árið í fyrra. Það er líka meiri hagn­aður en bank­arnir skil­uðu allt árið 2019. Og 2018.

Aðgerðir Seðlabanka Íslands í heimsfaraldrinum hafa gert bönkum kleift að stórauka útlánagetu sína, sem hefur aðallega skilað mikilli aukningu í lána til húsnæðiskaupa. Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri.
Aðgerðir Seðla­banka Íslands í heims­far­aldr­inum hafa gert bönkum kleift að stór­auka útlána­getu sína, sem hefur aðal­lega skilað mik­illi aukn­ingu í lána til hús­næð­is­kaupa. Ásgeir Jónsson er seðla­banka­stjóri.

Það þarf að fara aftur til árs­ins 2017 til að finna heilt ár þar sem bank­arnir græddu meira en þeir gerðu á sex mán­uðum í ár, en þá var sam­eig­in­legur hagn­aður þeirra rúm­lega 47 millj­arðar króna. Borð­leggj­andi er að hagn­aður yfir­stand­andi árs mun verða meiri, og að það muni lík­lega ger­ast strax við upp­gjör á þriðja árs­fjórð­ungi. Ef bank­arnir þrír hagn­ast saman jafn mikið á seinni hluta árs og þeir gerðu á fyrri hlut­anum mun hagn­aður árs­ins 2021 verða 74 millj­arðar króna. Hagnaður bank­anna á fyrstu tólf árunum eftir að þeir voru búnir til var að með­al­tali tæp­lega 55,8 millj­arðar króna á ári, og eru þá talin með öll árin þar sem ein­skipt­is­hagn­aður, vegna betri heimta af lánum fyr­ir­tækja eftir banka­hrunið sem búið var að færa mikið niður í virði og sölu eigna sem bank­arnir sátu uppi með vegna þess, spil­uðu stóra rullu í upp­gjöri banka.

Því gæti hagn­að­ur­inn í ár orðið þriðj­ungi meiri en með­al­tals­hagn­aður síð­ustu ára.

Aðgerðir stjórnvalda skipta miklu

Af hverju er þessi skekkja? Við blasir að hana má rekja til þess að virð­is­rýrnun útlána til ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja hefur verið miklu minni í bókum bank­anna en reiknað var með, hvað svo sem síðar verður.

Stjórnvöld hafa kynnt margvíslega aðgerðarpakka til að mæta efnahagslegum áhrifum kórónuveirufaraldursins. Flestar aðgerðirnar hafa aðallega nýst ferðaþjónustufyrirtækjum.
Stjórn­völd hafa kynnt marg­vís­lega aðgerð­ar­pakka til að mæta efna­hags­legum áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Flestar aðgerð­irnar hafa aðal­lega nýst ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum.

Þar skiptir máli að stjórn­völd hafa dælt pen­ingum inn í geir­ann til að halda honum við í gegnum kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn í þeirri von að hann muni leiða efna­hags­lega end­ur­reisn hag­kerf­is­ins. Í nýlega birtri skýrslu sem Rann­sókn­ar­mið­stöð ferða­mála gerði kom fram að ferða­þjón­ustus­fyr­ir­tæki hafi fengið úthlutað 65 pró­sent af þeim stuðn­ingi sem ætl­aður var rekstr­ar­að­ilum, utan sjálf­krafa frest­unar á skatt­greiðslum, úr rík­is­sjóði á árinu 2020. Í sömu skýrslu sagði að heild­ar­um­fang þeirra fjár­muna sem fór í aðgerðir ætl­aðar rekstr­ar­að­ilum hafi verið 35 millj­arðar króna frá mars til des­em­ber 2020, og 22,7 millj­arðar króna af þeim fóru þar af leið­andi til ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja.

Heimilin hafa fundið viljann til að skuldsetja sig á ný

Þar skiptir líka máli að bank­arnir hafa stór­aukið hús­næð­is­lán sín, með því að bjóða upp á betri kjör. Þar er nær allur vöxtur í útlánum þeirra frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hófst. Það hafa bank­arnir gert án þess að vaxta­munur þeirra – mun­ur­inn á þeim vöxtum sem bank­arnir greiða fólki og fyr­ir­tækjum fyrir inn­lán sem þau geyma hjá þeim og vöxt­unum sem þeir leggja á útlán – hefur hald­ist svip­aður og hann var.

Vaxta­munur bank­anna þriggja var á bil­inu 2,4-2,7 pró­sent á fyrri helm­ingi yfir­stand­andi árs, sem er mjög svipað og hann var á árinu 2020, þegar hann var 2,7 pró­sent að með­al­tali. Til sam­an­burðar þá var vaxta­munur nor­ræna banka sem eru svip­aðir að stærð og þeir íslensku 1,68 pró­sent í fyrra. Hjá stórum nor­rænum bönkum er hann undir einu pró­senti, sam­kvæmt því sem fram kemur í árs­riti Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Vaxtatekjur meginuppistaðan í tekjum banka

Vaxta­mun­ur­inn myndar hreinar vaxta­tekjur. Í dag borgar Lands­bank­inn t.d. 0,05 pró­sent vexti fyrir þá sem geyma pen­ing­ana sína á óbundnum óverð­tryggðum veltu­reikn­ingum, eins og launa­reikn­ingum þorra þjóð­ar­innar. Ef fólk er til­búið að binda sparn­að­inn sinn í t.d. tvö ár er hægt að fá allt að 1,6 pró­sent ávöxtun.

Á sama tíma lánar sami banki út óverð­tryggð hús­næð­is­lán á 3,45 pró­sent breyti­legum vöxtum. Sam­an­dregið þá borgar bank­inn lægri upp­hæð fyrir að fá pen­inga á láni og rukkar álag fyrir að taka þá pen­inga og end­ur­lána á hærri vöxtum. Það álag stendur undir rekstr­ar­kostn­aði bank­ans og myndar stærstan hluta hagn­aðar hans, en almennt hafa um 70 pró­sent tekna kerf­is­lega mik­il­vægu bank­anna á Íslandi verið hreinar vaxta­tekjur.

Vert er að taka fram að bankar fjár­magna sig líka með skulda­bréfa­út­gáfu sem fag­fjár­festar kaupa, ekki ein­ungis með inn­lánum almenn­ings, líf­eyr­is­sjóða og fyr­ir­tækja.

Mikil aukning í þóknanatekjum

Hinn stóri póst­ur­inn í tekju­mód­eli banka eru þókn­ana­tekjur, stundum líka kall­aðar þjón­ustu­tekjur. Þar er um að ræða þókn­anir fyrir t.d. eigna­stýr­ingu og fyr­ir­tækja­ráð­gjöf. Þessar tekjur hafa vaxið gríð­ar­lega það sem af er ári. Í til­felli Lands­bank­ans hafa þær vaxið um 40 pró­sent það sem af er ári miðað við sama tíma­bil í fyrra. Hjá Arion banka og Íslands­banka juk­ust þær um tæp 19 pró­sent.

Í ljósi þess að íslensku bank­arnir starfa nán­ast ein­vörð­ungu í íslensku hag­kerfi þá verður að álykta að stór hluti við­skipta­vina þeirra séu stærstu fag­fjár­fest­arnir innan þess, íslenskir líf­eyr­is­sjóðir. Þeir eiga þorra verð­bréfa – hluta­bréfa og skulda­bréfa – sem sýslað er með hér­lendis og þurfa að koma á milli 80 til 90 millj­örðum króna af iðgjöldum sem almenn­ingur greiðir inn í þá árlega umfram útgreiðslur í vinnu fyrir sig. Líf­eyr­is­sjóðir eru því nær örugg­lega að greiða umtals­verðan hluta af áður­nefndum þókn­ana­tekjum.

Ástæða þess að þessi tekju­póstur hefur vaxið svona hratt á und­an­förnu ári má líka rekja til þess að pen­ingar hafa orðið ódýr­ari með vaxta­lækk­unum og því að nei­kvæðir raun­vextir á inn­láns­reikn­ingum hafa þrýst sparn­aði fólks frekar í áhættu­sam­ari ávöxtun á borð við hluta­bréfa­kaup. Úrvals­vísi­tala íslensku kaup­hall­ar­innar, sem mælir gengi bréfa þeirra tíu skráðu félaga sem eru með mestan selj­an­leika, hefur enda rúm­lega tvö­fald­ast frá því í fyrra­vor. Virði bréfa í Arion banka hefur á sama tíma næstum þre­fald­ast í verði. Frá því að Íslands­banki var skráður á markað í sumar hefur hluta­bréfa­verð í honum hækkað um 45 pró­sent.

Hvert fer hagnaðurinn?

Það er eðli­legt að velta fyrir sér hvað kerf­is­lega mik­il­vægu við­skipta­bank­arnir þrír gera við þennan hagnað. Í til­felli Lands­bank­ans, sem er nán­ast að öllu leyti í rík­i­s­eigu, þá skilar hagn­að­ur­inn sér aftur til rík­is­sjóðs í formi hækk­andi eign­ar­virðis, arð­greiðslna eða eftir atvikum end­ur­kaupum á hluta­bréfum.

Arion banki, eini bank­inn af stóru bönk­unum þremur sem er ekki að neinu leyti í eigu rík­is­ins, hefur þá yfir­lýstu stefnu að greiða sem mest af umfram eigin fé sínu út til hlut­hafa. Á fyrri hluta yfir­stand­andi árs greiddi bank­inn næstum 18 millj­arða króna til hlut­hafa sinna í formi arðs eða end­ur­kaupa á bréfum þeirra. Stefnan er að greiða út yfir 50 millj­arða króna til við­bótar á allra næstu árum með sama hætti. Stór hluti þeirra upp­hæðar mun fara til líf­eyr­is­sjóða, sem eiga nálægt helm­ings­hlut í bank­anum. En fjöl­margir einka­fjár­festar munu einnig fá háar fjár­hæðir í sinn hlut, til við­bótar við hækk­un­ina sem orðið hefur á virði hluta­bréfa bank­ans.

Íslands­banki, sem er nú í 65 pró­sent eigu rík­is­ins eftir að 35 pró­sent hlutur var seldur í sumar, á útgreið­an­legt umfram eigið fé upp á rúm­lega 30 millj­arða króna. Yfirlýst mark­mið bank­ans er svo að greiða út 50 pró­sent af hagn­aði hvers árs í formi hefð­bund­inna arð­greiðslna. Þá ætlar hann auk þess að nýta umfram eigið fé bank­ans til frek­ari arð­greiðslna eða kaupa á eigin bréfum.

Þær greiðslur fara að óbreyttu að mestu til íslenskra rík­is­ins og íslenskra líf­eyr­is­sjóða, sem eru saman stærstu eig­endur bank­ans fyrir utan hið opin­bera. Í eig­enda­hópnum eru þó einnig nokkrir erlendir fag­fjár­festar, íslenskir einka­fjár­festar og nokkur þús­und ein­stak­lingar sem keyptu í bank­anum fyrir lægri fjár­hæðir í útboð­inu í sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár